Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Page 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Page 22
22 – Sjómannablaðið Víkingur Fimmtudaginn 28. nóvember síðast- liðinn setti Árni Bjarnason forseti 46. sambandsþing Farmanna- og fiski- mannasambands Íslands. Árni kom víða við í setningarræðu sinni. Hann velti meðal annars fyrir sér hvað væri „hóf- legt veiðigjald“ og staðhæfði að hug- myndir Jóhönnu-stjórnar þar um hefðu riðið litlum og meðalstórum útgerðar- fyrirtækjum að fullu. Þá drap Árni á að ekkert myndi gerast í málefnum sjávar- útvegsins fyrr en fyrir lægi frumvarp um framtíðarfyrirkomulag stjórnkerfis fiskveiða. Einnig kom Árni inn á að krafa útgerðarinnar á hendur sjómönn- um, um aukna kostnaðarþátttöku þeirra í útgerðinni, væri ekki í neinu samræmi við afburða góða afkomu greinarinnar. * Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, ávarpaði þingið og kallaði eftir samráði og sam- starfi. Á eftir ráðherranum gekk Sævar Gunnarsson, formaður Sjómanna- sambands Íslands, í pontu. Það er sið- venja að við ávörpum þing hvors annars, sagði Sævar, og gerðist síðan þungorður um það ófremdarástand er hann sagði ríkja í verðmyndun sjávarafla. Sævar vék líka að sjómannaafslættinum sem hann sagði „rosalegt prinsippmál.“ * Þegar hér var komið sögu hafði þing- heimur vitaskuld kjörið þingforseta, engan annan en Guðjón Ármann Einars- son. Hann sté nú í pontu og kvaðst bein- línis verða þunglyndur ef ræða ætti verð- lagsmálin svona í morgunsárið. Kannski til að forða sér frá þeim örlögum gaf Guðjón Ármann nafna sínum, Guðjóni Arnari Kristjánssyni, orðið um nýútkom- ið skipstjórnartal sem segir meira af á öðrum stað í blaðinu. * Þá var röðin komin að Viðari Magnús- syni, yfirlækni bráðaþjónustu utan sjúkrahúsa. Þar með er þyrlusveit Land- helgisgæslunnar á hans könnu. Viðar sagði okkur margt og mikið af starfi sínu, heima og erlendis. Hann vakti meðal annars athygli á að læknar þyrlusveitarinnar væru á bak- vöktum en biðu ekki á vellinum eftir út- köllum. Auk þess væri þetta ekki aðal- vinna þeirra, heldur aukastarf. „Mér er í nöp við hvorutveggja,“ lýsti Viðar yfir. „Það getur kostað líf að hafa bakvakt en ekki staðarvakt.“ Annað sem hann sagði – í rúmlega klukkutíma löngu erindi og festist í Vík- ingnum – var um lyfjakistu skipanna. Það kom Viðari mikið á óvart þegar hann áttaði sig á því nýlega að þar var ekki að finna aspirín eða magnyl – barnamagnyl eða það sem kallast nú til dags, hjartamagnyl. Magnyl er gott en það virkar hægar en 300 mg af aspiríni. Aspirínið er lyf sem kostar kannski krónu eða tvær taflan en getur hreinlega skipt sköpum og bjargað lífi. Aspirínið er blóðþynnandi og getur jafnvel leyst upp kökkinn – læknað kransæðasjúklinginn, benti Viðar á. Þá var spurt úr sal: „En getur þetta ekki reynst hættulegt ef viðkomandi þarf í uppskurð?“ „Við þessar aðstæður gera 300 milli- „Aspirín bjargar lífi“ Frá 46. sambandsþingi FFSÍ „Aspirín bjargar mannslífum og galið að það skuli ekki vera í lyfjakistunni.“ Árni íhugar næstu skref. Viðar Magnússon læknir: Kaupið aspirín strákar og hafið um borð – ALLTAF. Ómar Ellertsson, skipstjóri á Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270, og Páll Halldórsson, skipstjóri á Páli Pálssyni ÍS 102. Þess má geta að leiðir Ómars og Júlíusar lágu saman í maí 1968 og hefur ekki skilið á milli síðan.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.