Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Síða 28
28 – Sjómannablaðið Víkingur
Hér á Vesturlöndum miðum við lok
miðalda oft við landafundina miklu,
þegar Kólumbus sigldi til Ameríku 1492,
Vasco da Gama fór fyrir suðurodda Afríku
til Indlands á árunum 1497–8 og floti
Magellans sigldi umhverfis jörðina 1519–
22. Eins og mörg dæmi eru um af öðrum
sviðum, voru Kínverjar á undan Evrópu-
mönnum þegar kom að úthafssiglingum og
landkönnun.
Kínverski flotinn í lok miðalda
Fáir Vesturlandabúar ferðuðust til Kína á
miðöldum. Frægastir eru trúlega Marco
Polo (1254–1324), kaupmannssonur frá
Feneyjum, sem dvaldist í Kína á síðasta
fjórðungi þrettándu aldar og komst þar til
metorða, og Ibn Battuta (1304–1369), sem
fór frá heimalandi sínu, Túnis, í skylduför
til Mekka árið 1326, en lét sér það ekki
nægja heldur sótti á þremur áratugum heim
flestöll lönd í menningarheimi múslíma allt
vestan frá veldi Mára á Spáni um Afríku og
Asíu austur til Kína. Báðir greina þessir
menn frá stórum hafskipum og miklum
skipasmiðjum í Kína.
Á fyrri hluta fimmtándu aldar var kín-
verski flotinn hinn stærsti í heimi. Þegar best lét voru í honum 400
haffær herskip búin skotvopnum, þar með fallbyssum og eldflaug-
um, sum til muna stærri en nokkurt evrópskt skip þá á tímum, á
annað þúsund minni skip til strandvarna og gæslu á fljótum lands-
ins, einnig ein 400 stór farmskip, auk um 3000 kaupskipa, sem
hægt var að breyta í herskip með litlum fyrirvara. Heimahöfn flot-
ans var Nanjing (eða Nanking), hjá ósum Jangtsefljóts við austur-
strönd Kína, sem þá var höfuðborg landsins og stærsta borg heims.
Þar voru fimm skurðir eða síki með miklum skipasmiðjum. Tvö
þessara síkja hafa verið fyllt undir byggð og stóð til að fara eins
með hin þrjú, en árið 2002 fengu fornleifafræðingar þau friðlýst.
Þar verður minjasafn um þennan forna flota, og er farið að leita
þar merkja um hann.
Siglingaleiðir Vesturlandabúa og kínverska flotans skárust
aldrei, og margt er óljóst um gerð skipanna. Heimildir herma að
flaggskipið hafi verið 400 feta langt, eða um 120 metra. Gríðarmik-
ið stýrisspjald, sem fundist hefur í rústum skipasmiðjanna, bendir
líka til þess að það hafi átt að fara á 120 metra langt skip. Til sam-
anburðar má geta þess að skip Kólumbusar voru um 20 metra
löng.
Flotaforinginn
Foringi þessa mikla flota hét Zheng He, stundum skráður Cheng
Ho, og nafnið mun borið fram eitthvað í líkingu við Jung Húh. Á
árunum 1405 til 1433 stýrði hann sjö stórleiðöngrum til landa
Suðaustur-Asíu, um vestanvert Kyrrahaf og um Indlandshaf allt til
austurstrandar Afríku. Með ferðunum átti að sýna „villimönnunum
handan hafsins“ dýrð kínverska keisaradæmisins, enda kom Zheng
He ávallt fram sem fulltrúi keisara síns og lét hvarvetna verða sitt
fyrsta verk að ganga til fundar við þjóðhöfðingjann, sem hann
færði gjafir keisara síns og þekktist gjafir á móti. Hann færði til
dæmis heim með sér frá Sómalíu sebrahest, oryxantílópu og
gíraffa. Frá sumum stöðum sigldi með Kínverjunum sendinefnd
heimamanna á fund keisarans, og sneri til síns heima á skipum
næsta leiðangurs.
Með í för voru kaupmenn með silki og postulín til skipta fyrir
Örnólfur Thorlacius
Kínverskur landkönnuður
Flaggskip Zhengs He er talið hafa verið níu mastra og 120 metra langt. Til samanburðar er sýnt skip
Kólumbusar, Santa Maria.