Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Side 38
38 – Sjómannablaðið Víkingur
„Maður verður að treysta guði og lukk-
unni, og er það ekki beysið.“
Gömul kona sem hafði verið falin fjár-
hirðing á meðan karlarnir voru við sjó-
róðra.
*
„Ég var nú orðinn fulltíða maður áður
en steinolían kom hér á bæi og dafnaði
vel við grútakolu og fífukveik og ég get
látið mér nægja lampana og steinolíuna,
hvað ég kann að eiga eftir að tóra. Og
hvernig dettur ykkur líka í hug að raf-
magnið komist hérna upp snarbratta
brekkuna hjá mér?“
Gamall bóndi á Suðurlandi þegar til
stóð að koma upp fyrstu rafstöðinni í
sveitinni.
*
„Það er mikið betra að byggja úr stein-
steypu því að það er hægt að brúka
kvenfólk og krakka í steypuna.“
Ónefndur ræðumaður þegar deilt var
um hvaða efnivið ætti að nota í nýju
kirkjuna í þorpinu.
*
„Það er ekki gerandi nema fyrir flug-
skýra menn að stela.“
Einar Sæmundsson, faðir Látra-
Bjargar.
*
„Ég fór inn á spítalann á Akureyri fyrir
tveimur árum í von um að fá bót meina
minna. Þar tóku á móti mér blessaðar
hjúkrunarkonurnar og skipuðu mér að
fara í bað og vatnið var svo heitt að það
ætlaði mig lifandi að drepa. Og svo var
ég lagður í ískalt rúm við opinn glugga
og mér ætlaði aldrei að hitna svo það var
mesta mildi að ég skyldi ekki fá lugna-
bólgu af því. Næsta morgun heimtaði ég
fötin mín og fékk þau - og svo fór ég
heim aftur því ég sá að það var ekki
nema fyrir stálhrausta menn að vera á
spítala.“
Gamall maður úr Fnjóskadal um
spítalavist á Akureyri.
*
„Þeir eru réttnefndir kristninnar krabba-
mein.“
Oddur Hjaltalín læknir þegar Stein-
grímur Jónsson biskup vísiteraði að
Helgafelli og spurði hversu safnaðarfólki
líkaði við presta sína.
*
„Eg var á ferð á Mýrdalssandi og mætta
eg draugi. Það var kvendraugur, og
réðumst eg á hann, og svo fellda eg
hann. Þá sagði draugurinn: „Neyttu
fallsins, karlmaður.“
Og svo gerða eg.“
Vigfús geysir Jónsson er bjó allmörg
ár á Hervararstöðum á Holtsdal á Síðu,
og þótti ýkinn til muna og nokkuð sér-
legur í tali.
Þurrgalli með innbyggðu floti, upphífingarlínu, félagalínu, ljósi og flautu
Áratuga reynsla og áreiðanleg þjónusta
PS5002 Björgunargalli fyrir íslenskar aðstæður
VIKING BJÖRGUNARBÚNAÐUR ehf
Ishella 7 . IS-221 Hafnarfjörður . Iceland
Tel.: +354-544-2270 . Fax: +354-544-2271
e-mail: viking-is@viking-life.com . www.VIKING-life.com
„Kristninnar krabbamein“
Lífsviðhorf Íslendinga
„Neyttu fallsins, karlmaður“, sagði draugurinn.