Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Side 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Side 40
40 – Sjómannablaðið Víkingur Að þessu sinni fengum við vel á annað hundrað ljósmyndir frá meira en tíu einstaklingum. Valið var erfitt, ekki aðeins vegna fjölda mynda heldur einnig vegna þess hversu góðar þær voru. Um það vorum við allir fjórir í dómnefndinni sammála. En hættum þessu tali og snúum okkur að úrslitum. Eftir óvenju- mikil átök innan dómarakvartettsins stóðum við að lokum uppi með 15 myndir er halda áfram í Norðurlandakeppnina. Við hefðum þess vegna getað sent 30 eða 40, svo góðar voru hinar er eftir sátu. Þeir sem áttu þessar fimmtán ljósmyndir eru Davíð Már Sigurðsson, Guðmundur St. Valdimarsson, Hlynur Ágústs- son, Jón Kr. Friðgeirsson, Svavar Gestsson og Þorgeir Baldurs- son. Er þá komið að úrslitum. Í fyrsta sæti hafnaði Þorgeir Bald- ursson en í öðru og þriðja sæti eru Hlynur Ágústsson og Davíð Már Sigurðsson. Við óskum þremenningunum til hamingju, einnig þeim er fara með þeim í Norðurlandakeppnina, og þökkum öllum þátt- tökuna og frábærar myndir. Að lokum þakkar Víkingurinn þakka dómurum og starfsmanni góð og ósérhlífin störf. Gleðileg jól. Ljósmyndakeppni sjómanna 2013 Mynd Þorgeirs Baldurssonar er hafnaði í fyrsta sæti. Dómarar frá vinstri, Jón Hjaltason, Pálmi Guðmundsson, ritstjóri síðunnar ljósmyndari.is, Ægir Steinn Sveinþórsson, er að þessu sinni fyllti skarð Árna Bjarnasonar, Hilmar Snorrason, sem er maðurinn á bak við tjöldin og kallar sig starfsmann dómaranna, og Jón Svavarsson ljósmyndari. 1

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.