Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Qupperneq 40
40 – Sjómannablaðið Víkingur
Að þessu sinni fengum við vel á annað hundrað ljósmyndir frá
meira en tíu einstaklingum. Valið var erfitt, ekki aðeins vegna
fjölda mynda heldur einnig vegna þess hversu góðar þær voru.
Um það vorum við allir fjórir í dómnefndinni sammála. En
hættum þessu tali og snúum okkur að úrslitum. Eftir óvenju-
mikil átök innan dómarakvartettsins stóðum við að lokum uppi
með 15 myndir er halda áfram í Norðurlandakeppnina. Við
hefðum þess vegna getað sent 30 eða 40, svo góðar voru hinar
er eftir sátu. Þeir sem áttu þessar fimmtán ljósmyndir eru Davíð
Már Sigurðsson, Guðmundur St. Valdimarsson, Hlynur Ágústs-
son, Jón Kr. Friðgeirsson, Svavar Gestsson og Þorgeir Baldurs-
son.
Er þá komið að úrslitum. Í fyrsta sæti hafnaði Þorgeir Bald-
ursson en í öðru og þriðja sæti eru Hlynur Ágústsson og Davíð
Már Sigurðsson.
Við óskum þremenningunum til hamingju, einnig þeim er
fara með þeim í Norðurlandakeppnina, og þökkum öllum þátt-
tökuna og frábærar myndir. Að lokum þakkar Víkingurinn
þakka dómurum og starfsmanni góð og ósérhlífin störf.
Gleðileg jól.
Ljósmyndakeppni
sjómanna 2013
Mynd Þorgeirs Baldurssonar er hafnaði í fyrsta sæti.
Dómarar frá vinstri, Jón Hjaltason, Pálmi Guðmundsson, ritstjóri síðunnar
ljósmyndari.is, Ægir Steinn Sveinþórsson, er að þessu sinni fyllti skarð Árna
Bjarnasonar, Hilmar Snorrason, sem er maðurinn á bak við tjöldin og kallar sig
starfsmann dómaranna, og Jón Svavarsson ljósmyndari.
1