Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Side 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Side 42
42 – Sjómannablaðið Víkingur Stórvirki, er orðið sem mér kemur fyrst í hug þegar opnað er 2. bindi Skipstjórnarmanna Þorsteins Jónssonar ættfræðings. Líkt og í fyrsta bindinu er hér á ferðinni gríðarlegur fróðleikur um menn og málefni. Strax í byrjun er á sömu síðu fjallað um Eið Kristján Benediktsson – fæddur á Ísafirði 1878, dáinn 1963 á Akureyri – og ótrúlegt afrek hans að synda í land úr strönduðu skipi, í stórsjó og veðurofsa. Kannski er ekki rétt að tala um sund í þessu samhengi þar sem Eiður kunni ekki þá kúnst. Sannarlega lygileg frá- sögn. Hér taka þó æviskrár mest rýmið, eins og vera ber. Títtnefndur Eiður er fyrstur í röðinni – á bls. 646 – en Guðbjörn Magnús Þórsson, fæddur 1943 í Reykja- vík, rekur lestina – á bls. 1048. Á milli er ótölulegur grúi æviþátta og myndirnar maður – þær nálgast að vera óteljandi – og eru margar hverjar hrein gersemi. Skipstjórnarmenn er því ekki neitt venjulegt stéttartal, því fer fjarri. Bókin er þríein; ævir manna, frásagnir og ljósmyndir. Og allt leggst þetta á eitt um að gera ritið að sannkölluðu stór- virki sem flestir, jafnvel allir, geta unað sér við að fletta og skoða. Hér er hún komin: JÓLAGJÖF SJÓMANNSINS – og raunar allra áhugamanna um ættfræði og ljós- myndir. Fyndnustu bækur Íslandssögunnar Í bókinni Húmör í Hafnarfirði segir Ingvar Viktorsson gamansögur af Hafnfirðingum og útkoman er vægast sagt bráðskemmtileg. wwwholabok.is holar@holabok.isÁhugamenn um íslenska fyndni láta þessar bækur ekki framhjá sér fara! Skagfirskar skemmtisögur í samantekt Björns Jóhanns Björnssonar hafa svo sannarlega slegið í gegn á undanförnum árum og ekki vantar fjörið í þriðju bókina í þessum met- sölubókaflokki. Dansa boðar drynur sær, dembir froðutárum. Dátt í voðum vindur hlær, veltist gnoð á bárum. Sýna hetjur dug og dáð, drengir heilla góðir. Afrek tíðum hafa háð hafs um úfnar slóðir. Ágjöf hræðast ei né grand, ægishetjur djarfar. Aflaföng færa á land fræknir landsins arfar. Brunar skeið um bólgin sjá, bylgjur freyða stríðar. Ávalt seiða sjómenn þá sjávarleiðir víðar. Höfundurinn, Ingólfur Ómar Ármannsson, er Skagfirðingur og hefur stundað sjóinn frá blautu barnsbeini. Skipstjórnarmenn Æviskrár og sögulegt efni um íslenska skipstjórnarmenn Myndatexti VE-47

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.