Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2013, Síða 47
Sjómannablaðið Víkingur – 47
með harðfylgi og stukku þaðan fyrir
borð, hann fyrst og náði í kaðal, sem lá
úr björgunarbáti við skipshliðina og það-
an upp í bátinn, en Tilly skreið út á
bómu og gat látið sig detta ofan í björg-
unarbátinn. Hannes og nokkrir karlmenn
tóku ár og spýtnabrak og reyndu að
koma bátnum frá skipinu og tókst það
rétt áður en því hvolfdi. Hrundi þá mik-
ið brak í sjóinn og fólk í hundraða tali
og um leið heyrðist ógurlegur hávaði
þegar gufukatlarnir sprungu. Þeim tókst
að mjaka sér í áttina að Storstad, er var
þar rétt hjá, en Hannes nefnir einnig, að
þeir hafi þurft að fara framhjá grúa fólks,
sem var á sundi, en ekki var vegur að
taka upp í þegar yfirfullan bátinn.
Skipverjar á Storstad hlynntu að fólk-
inu eftir föngum, allir voru kaldir,
blautir og hraktir. Þau voru brátt flutt
yfir í annað skip, sem flutti þau til lands.
Þar fengu þau inni á hóteli og skipafélag-
ið greiddi allan fatakostnað, því allir
voru fáklæddir og sumir hálfnaktir. Um
kvöldið fóru Hannes og Tilly með lest til
Quebeck og gátu þá látið ættingja sína
vita af sér, en fram eftir öllum degi voru
þau hjón á skrá yfir þá, sem taldir voru
af.
Storstad
Kolaflutningaskipið Storstad var smíðað í Newcastle upon Tyne á Englandi árið
1910. Það var 6.028 brt. að stærð og 134 m. á lengd. Skipið var byggt fyrir
norska útgerð, en eftir áreksturinn við Empress of Ireland komst það í eigu CPR,
sem síðar sama ár seldi það norsku útgerðarfélagi og undir norskum fána sigldi
það, er þýskur kafbátur sökkti því hinn 8. mars 1917, en þá var það statt við
Fastnet Rock, um 8 mílur undan suðurströnd Írlands. Þrír sjómenn fórust.
Nýverið var hér í Víkingnum sagt frá örlögum „Bresku
drottningarinnar“, en nú verður sagt svolítið frá gáma-
skipunum.
Allt bendir til þess að fleiri gámaskip fari í brotajárn á þessu
ári en nokkru sinni fyrr. Að sögn Braemar Seascope, sem er einn
stærsti skipamiðlari heims, voru fleiri skip höggvin í brotajárn á
fyrri hluta þessa árs en nokkru sinni fyrr, alls um 236.000 teu,
þ.e. 20 feta gámaeiningar. Það er 50% aukning frá fyrra ári.
Mest var höggvið árið 2009, 380.000 teu.
Ástæður þessa eru margvíslegar, s.s. erfiður rekstur, aukin
tækni og þar af leiðandi óöruggara rekstrarumhvefi og við-
kvæmara en oft áður, að sögn Braemar Seascope. Fyrir vikið eru
sífellt yngri skip seld í brotajárn; árið 2012 var meðalaldurinn
24 ár, en það sem af er þessu ári er hann 21,8 ár. Það eru eink-
um og sér í lagi minni skip er hljóta þessi örlög, flest eru þau af
stærðinni 1-2.000 teu. Hins vegar eru allmörg gámaskip í bygg-
ingu, flest af stærðinni 8.500 - 9.500 teu.
Bernharð Haraldsson/Aðalheimild, Søfart, 26. júlí 2013
Æ fleiri gámskip í brotajárn
Emma Mærsk, skip AP Möller-Mærsk samsteypunnar í Danmörku, ber 11.000
teu, byggt árið 2006 og var þá stærsta gámskip í heimi, 397 m. á lengd.
S iðjuvegi 66 • 200 Kópavogi
Sími 580 5800 • www.landvelar.is
Fjárfesting til
framtíðar
Forritanleg rafsuðuvél
í öll verk (350-500 Amper)
Kemppi
FastMig