Fréttablaðið - 02.09.2022, Page 1
1 9 8 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 2
Samstarf ólíkra
listamanna
Lögðu sveitaböllin
óvart undir sig
Menning ➤ 18 Lífið ➤ 20
Ekki hefur gengið að full-
manna frístundaheimili og
sértækar félagsmiðstöðvar
í Reykjavík og í dag vantar
áttatíu starfsmenn til þess
að hægt sé að bjóða öllum
börnum pláss. Á tólfta
hundrað börn eru á biðlista.
ninarichter@frettabladid.is
SAMFÉLAG Hjördís Rut Sigurjóns-
dóttir, upplýsingafulltrúi á skóla- og
frístundasviði Reykjavíkurborgar,
segir að búið sé að manna sjötíu og
fimm prósent starfa á frístunda-
heimilum og sértækum félagsmið-
stöðvum borgarinnar.
„Á biðlista eru núna 1.155 börn og
búið er að samþykkja 3.368 börn inn
í dvöl í frístundaheimili og sértækar
félagsmiðstöðvar,“ segir hún.
Hjördís segir atvinnuástand í
samfélaginu ráða því hvenær málin
leysist.
„Í Covid-ástandinu gekk nokkuð
vel að manna frístundaheimilin og
sértæku félagsmiðstöðvarnar, í októ-
ber 2018 hafði til dæmis náðst að
manna 89 prósent starfa en í október
2019 95 prósent starfa,“ segir Hjördís.
Unnið sé hörðum höndum að því að
manna allar stöður. „Um er að ræða
hlutastörf og stærsti hluti starfsfólks
er námsmenn sem eru ekki tilbúnir
að festa sig á ákveðna daga í vinnu
fyrr en stundatöflur liggja fyrir í
háskólunum.“
Ljóst er að fjöldi foreldra þarf að
brúa bilið og ráðstafa dagvistun á
meðan beðið er eftir plássi.
„Yngstu börnin sem eru að byrja
í grunnskóla eru í forgangi og það
hefur tekist að taka þau öll inn á
frístundaheimili í borginni. Það er
síðan í einhverjum tilfellum verið
að bjóða eldri börnunum hluta-
vistun sem þýðir að þau mæta ein-
hverja ákveðna vikudaga og börnin
eru jafnvel í öðru skipulögðu starfi
aðra daga,“ segir Hjördís.
„Foreldrar barna sem eru ekki
komin inn á frístundaheimili eru
síðan í einhverjum tilfellum í sam-
starfi sín á milli og leyfa börnunum
að leika saman og skiptast á að
annast þau.“ n
Tæplega tólf hundruð börn á biðlista
Á biðlista eru núna
1.155 börn og búið er
að samþykkja 3.368
börn inn í dvöl í frí-
stundaheimili og
sértækar félagsmið-
stöðvar.
Hjördís Rut Sigurjónsdóttir,
upplýsingafulltrúi á Skóla- og frí-
stundasviði Reykjavíkurborgar
lyaver.is
Lægra
vöruverð
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is
Allt fyrir barnið
Bílstólar og sessur, brúsar,
sparkbílar og margt fleira Barnabílstóll Junior*
15-36 kg, svartur, Isofix festingar
Verð 23.900 kr.
Barnakerru- & bílstólaþrenna*
Burðarrúm/vagnstykki,skiptitaska o.fl.
Verð 98.990 kr.
Barnabílstóll Junior*
0-36 kg, grár, King - Isofix festingar
Verð 39.990 kr.
Sparkbíll Audi Junior
quattro, rauður
Verð 22.990 kr.
*Allir bílstólar og sessur uppfylla ESB staðal ECE R44/04 um öryggi.
Mikið fjör og gleði var í gær er hressir sjöttu bekkingar í Menntaskólanum í Reykjavík tóku á móti nýnemum og tolleruðu busana vel og vandlega eins og hefðin býður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
STJÓRNSÝSLA Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir, formaður stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar Alþingis, staðfestir
að á dagskrá fundar nefndarinnar
næsta mánudag sé kominn liður um
ráðningar embættismanna og 36.
grein starfsmannalaganna. Sýnist
ólgan í kringum skipun þjóðminja-
varðar kveikja þeirrar umræðu.
Félag fornleifafræðinga hefur sent
umboðsmanni Alþingis kvörtun
vegna ákvörðunar Lilju Alfreðs-
dóttur menningarmálaráðherra um
skipun í embætti þjóðminjavarðar.
Samráðherrar Lilju eru meðal þeirra
sem hafa bent á að heimild sé í
lögum til að færa til embættismenn
samkvæmt 36. greininni. SJÁ SÍÐU 6
Þingnefnd skoðar
skipun í embætti