Fréttablaðið - 02.09.2022, Side 20

Fréttablaðið - 02.09.2022, Side 20
Frumsýnd 8. september 2022 Aðalhlutverk: Tomasz Zietek, Sandra Kor- zeniak og Jacek Braciak Handrit: Kaja Krawczyk-Wnuk Leikstjóri: Jan P. Matuszynski Kvik- myndin er tekin í einni samfelldri töku. Eru hinir seku alltaf lausir allra mála en hinir saklausu þurfa að gjalda fyrir syndirnar? Boiling Point gerist eina kvöld- stund á veitingastað þar sem allt er undir og teymið er undir gríðar- legu álagi en kvikmyndin er tekin í einni samfelldri töku, kvikmynd sem hlotið hefur gríðarlega góða dóma með Stephen Graham í aðal- hlutverki. Andy Jones (Stephen Graham) er yfirkokkur á veitingastaðnum Jones & Sons en hann er niður- lægður yfir fréttum af því að stiga- gjöf staðarins fór niður í þrjár stjörnur úr fimm sökum umdeildr- ar umsagnar heilbrigðiseftirlitsins. Starfslið staðarins er óundirbúið fyrir eitt stærsta kvöld ársins þar sem ekki aðeins er setið í hverju sæti heldur er einnig væntanlegur stjörnukokkur, matargagnrýn- andi, hópur pirrandi áhrifavalda og væntanlegt bónorð í salnum. Allt er niður á við eftir það þar sem ágreiningur kemur upp á milli eld- hússins og starfsfólks í sal, tungu- málaörðugleikar, fordómar og persónulegir erfiðleikar starfsfólks birtast eftir því sem á líður. Sem fyrr segir var myndin tekin í einni samfelldri töku svo hlutir voru faldir um allt rýmið og teknir út á réttum tíma. Vegna Covid var myndin tekin upp á einungis tveimur dögum, fjögur rennsli og var það þriðja notað sem lokaútkoman. Myndin hlaut fjórar tilnefningar til BAFTA-verðlaunanna, meðal annars sem besta kvikmyndin, og vann fern verðlaun á British Inde- pendent Awards. Stephen Graham sem leikur aðalhlutverkið er meðal annars þekktur fyrir Peaky Blinders, Snatch, The Irishman, This is Eng- land og Line of Duty. n Bíó Paradís Hörkuspennandi kvöldstund Irina sem áður hét Laura (Rosa linde Mynster) ferðast aftur í heimabæ sinn þar sem hún ólst upp til þess eins að mæta í brúðkaup bróður síns. En hann er einmitt í þann mund að fara að bindast konunni sem lagði hana í einelti í barnæsku. Irina flutti til Kaupmannahafnar nokkrum árum áður til að vinna að draumi sínum um að verða útgefinn rithöfundur. Sá draumur rætist þegar hún skrifar bók um ömurlega æsku sína þar sem ein stærsta orsökin er eineltishrellirinn og nú framtíðareiginkona bróður hennar, Catrine. Þegar Irina snýr aftur úr sínum nýja listræna og bóhemíska heimi kemur það henni ekki eingöngu á óvart að Catrine sé nú að verða partur af fjölskyldu hennar heldur einnig að hún hafi í raun tekið yfir hennar hlutverk í fjölskyldunni, og hvað ef Irina vill það hlutverk aftur? Stórkostlegt fjölskyldudrama á léttari nótunum þar sem stutt er á milli hláturs og gráts. Fjallar á kómískan máta um það að sama hversu mikið við reynum getum við ekki forðast rætur okkar. Persona Non Grata er fyrsta mynd leikstýrunnar en engan byrj- endabrag er á henni að finna. Hún sló í gegn á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg og hlaut fjölda inn- lendra verðlauna í Danmörku. Verið er að vísa í ríku dogma kvikmyndahefðina – eina vinsæl- ustu kvikmyndahefð Danmerkur. Persona Non Grata er gamanmynd sem kemur á óvart og áhorfandinn getur ekki varist því að hreinlega gráta úr hlátri. Atburðarásin er ófyrirsjáanleg og þessi fjölskylda er baneitruð með sprenghlægileg vandamál sem sífellt spretta fram. Sveitabrúðkaupið í myndinni gefur lífinu sannarlega lit – ömur- legt brúðkaup sem ekki er hægt annað en að hlæja að. Aðalpersóna myndarinnar er skemmtileg týpa – manneskja sem fór burt og tók upp nýtt nafn og nýtt líf kemur aftur og fellur strax í sitt gamla hlutverk í þessari sósuðu fjölskyldu. Segja má að þetta sé 101 á móti landsbyggðinni og lengi býr að fyrstu gerð. Persona Non Grata er mynd sem fólk má ekki missa af. n Bíó Paradís Óborganleg dramatísk gamanmynd Frumsýnd 15. september 2022 Aðalhlutverk: Rosalinde Mynster, Bodil Jørgensen og Anne Sofie Wanstrup Handrit: Sara Isabella Jønsson Vedde og Lisa Jespersen Leikstjóri: Lisa Jespersen Tungumál: Danska með íslenskum texta Fróðleikur: n Bodil-verðlaunin 2022 fyrir bestu mynd og bestu leikkonu. n Robert-verðlaunin 2022 fyrir bestu mynd, leikstjórn og handrit. n Vann Oslo Grand Prix á Oslo Pix. n Besta norræna myndin á Nordic International Film Festival. Frumsýnd 29. september 2022 Aðalhlutverk: Stephen Graham, Vinette Robinson og Alice Feetham Handrit: Philip Barantini og James Cummings Leikstjóri: Philip Barantini Átakanleg kvikmynd þar sem fórnarlambið, menntskælingur- inn Grzegorz Przemyk, er barinn til dauða af hernum í landinu. Grzegorz (Mateusz Górski) og Jurek (Tomasz Ziętek) eru að fagna skólalokum þegar þeir eru stöðvaðir af lögreglunni og beðnir um skilríki. Þeir telja sig þekkja rétt sinn og neita að afhenda skilríkin en eru þá færðir niður á lögreglustöð þar sem að Grzegorz mun mæta örlögum sínum á hræðilegan máta. Hér hefst leið ríkisstjórnarinnar að því að breiða yfir það sem fór fram með því annars vegar að afvegaleiða Jurek og gaslýsa þann- ig eina vitni að atburðarásinni sem og að koma sökinni yfir á bráðaliðana sem færðu Grzegorz á sjúkrahúsið þar sem að hann lést af völdum barsmíðanna. Myndin var tilnefnd til Gullna ljónsins á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum og var framlag Póllands til Óskarsverðlaunanna 2022. Bíó Paradís er félagsmiðstöð fyrir pólskumælandi fólk á Íslandi – í Bíó Paradís eru sýndar nýjar pólskar kvikmyndir. Leave No Traces er ein af myndum ársins í Póllandi og ein áhrifamesta pólska mynd ársins. Titilinn má þýða á tvo vegu: Annars vegar að skilja ekki eftir nein sönnunargögn og hins vegar að skilja ekki eftir nein ummerki. Hér er fjallað um dauðsfall af völdum yfirvalda sem hægt er að máta við samtímann. Eru hinir seku alltaf lausir allra mála en hinir saklausu þurfa að gjalda fyrir syndirnar? Verður réttlætið aldrei ofan á? n Bíó Paradís Er ekkert réttlæti? STEPHEN GRAHAM “A BRILLIANTLY EFFECTIVE DRAMA FILMED IN ONE TENSION-DRENCHED SHOT” THE TIMES HHHH FLICKERING MYTH HHHH READER’S DIGEST HHHH THE TELEGRAPH HHHH TIME OUT HHHH TOTAL FILM HHHH MOVIE MARKER HHHHH A FILM BY PHILIP BARANTINI a film by L isa Jespersen Persona Non Grata ROSALINDE MYNSTER BODIL JØRGENSEN JENS JØRN SPOTTAG ANNE SOFIE WANSTRUP THOMAS HWAN JESPER GROTH ADAM ILD ROHWEDER Hyæne Film præsenterer HYÆNE FILM & NEW DANISH SCREEN PRÆSENTERER HVOR KRAGERNE VENDER MED ROSALINDE MYNSTER BODIL JØRGENSEN JENS JØRN SPOTTAG JESPER GROTH ANNE SOFIE WANSTRUP ADAM ILD ROHWEDER & THOMAS HWAN EN FILM AF LISA JESPERSEN MANUSKRIPT SARA ISABELLA JØNSSON & LISA JESPERSEN PRODUCER DANIEL MÜHLENDORPH FOTOGRAF MANUEL ALBERTO CLARO PRODUCTION DESIGNER SILJE AUNE DAMMEN KOSTUME DESIGNER JUAN BASTIAS LINE PRODUCER ROBIN HOUNISEN KLIPPER MADS MICHAEL OLSEN SOUND DESIGNER STEFAN GARFIELD RASCH HOLM KOMPONIST MIKE SHERIDAN PRODUCERET MED STØTTE FRA NEW DANISH SCREEN VED KUNSTNERISK LEDER METTE DAMGAARD SØRENSEN 4 kynningarblað 2. september 2022 FÖSTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.