Fréttablaðið - 02.09.2022, Page 26
Eftir næsta
tímabil
stefni ég á
að spila
með góðu
háskólaliði
og takast á
við nýjar
áskoranir.
Almar Orri
Atlason
Einn efnilegasti íþrótta-
maður landsins, Almar Orri
Atlason, mun leika með
einum sterkasta mennta-
skóla Bandaríkjanna í vetur.
Almar vakti mikla athygli
á EM í sumar með U18 ára
liðinu og þykir eitt mesta
efni sem komið hefur fram í
körfuboltanum hér á landi í
langan tíma.
starri@frettabladid.is
Fyrr í vikunni var greint frá því
að einn efnilegasti íþróttamaður
landsins, Almar Orri Atlason körfu-
boltamaður úr KR, væri á leið til
Bandaríkjanna þar sem hann mun
leika með Sunrise Christian Aca-
demy menntaskólanum í vetur.
Almar vakti mikla athygli með
U18 liði Íslands á Evrópumótinu
sem haldið var í Rúmeníu í ágúst og
var valinn í fimm manna úrvals-
lið mótsins auk þess sem fjöldi
erlendra greinenda jós lofsyrðum
yfir hann. Einn þeirra var Jonat-
han Givony, greinandi ESPN fyr ir
nýliðaval NBA-deild ar inn ar vest an
hafs, sem sagði frammistöðu hans
á mótinu vera eina þá bestu sem
hann hefði séð í sumar.
Sunrise Christian Academy er í
Kansas-fylki og metinn sá besti í
Bandaríkjunum undanfarin tvö
ár en skólinn vann NIBC-deildina
á síðasta ári. „Ég hlakka gríðarlega
til að leika með skólanum í vetur,“
segir Almar. „Sunrise er virkilega
gott lið sem endaði efst í NIBC-
deildinni á seinasta tímabili sem
er deild sem tíu bestu liðin í High
school-boltanum stofnuðu. Þetta
verður virkilega skemmtilegt verk-
efni og það verður gaman að berjast
við þá bestu í heiminum í mínum
aldursflokki á hverjum degi og þróa
leik minn enn frekar.“
Vakti mikla athygli á EM
Góður árangur U18 liðsins í ágúst
kom Almari ekki á óvart en liðið
hafnaði í fjórða sæti. „Fyrir mótið
höfðum við sem lið mikla trú á
okkur þar sem við vorum að koma
af góðu Norðurlandamóti og leið
vel með hópinn. Markmið okkar
var að komast allavega upp úr
riðlinum og inn í átta liða úrslitin.
Liðið breytti þó fljótt markmiði
sínu í að stefna á eitt af þremur efstu
sætunum sem voru verðlaunasæti.
Það náðist því miður ekki þar sem
við enduðum í fjórða sæti eftir tap
gegn Finnlandi í lokaleiknum.“
Persónulegur árangur hans kom
honum ekki heldur á óvart. Hann
segist einfaldlega hafa passað að
spila sinn leik og gera allt til þess
að hjálpa liðinu til að vinna. „En
auðvitað var líka markmiðið að
standa sig vel persónulega og að ná
að vekja smá athygli.“
Mikið hefur verið skrifað og
rætt um ummæli Jonathan Givony
í íslenskum fjölmiðlum en hvað
finnst Almari um þau?
„Það er auðvitað mjög gaman
að fá athygli frá manni eins og
Jonathan fyrir eitthvað sem maður
gerir vel og hefur unnið lengi að. Ég
passaði mig þó alltaf á að láta þetta
ekki hafa áhrif á leik minn meðan
á mótinu stóð og halda áfram að
gera það sem var best fyrir liðið.“
Lærdómsrík dvöl á Ítalíu
Almar var einungis fjögurra ára
gamall þegar hann hóf að æfa
körfubolta með KR en þá voru
bæði systkini hans að æfa körfu-
bolta með félaginu. „Ég hef alltaf
leikið með KR á Íslandi en ég lék
svo tímabilið 2019–2020 með Stella
Azurra í Róm á Ítalíu.“ Hann segir
dvölina á Ítalíu hafa verið mjög
skemmtilega þrátt fyrir leiðinlegan
Covid-endi.
„Stella er frábært lið og þar
kynntist maður því í fyrsta skipti
að æfa eins og þeir bestu gera.
Róm er náttúrulega stórkostleg
borg og ótrúleg forréttindi að fá að
prófa að búa þar. Körfuboltalega
kynntist maður þessum hraða leik,
þar sem pressað er allan völlinn
allan tímann og mikið lagt upp úr
því að vinna boltann snemma og
refsa andstæðingnum hratt. Við
spiluðum líka á mótum úti um alla
Evrópu við mörg af bestu liðum
álfunnar, svo sem Real Madrid,
Barcelona, Valencia, Bayern
München og Zalgris.“
Rétta hugarfarið skiptir máli
Það var um 12-13 ára aldurinn sem
Almar áttaði sig á því að hann vildi
setja körfuboltann í fyrsta sæti
og reyna að ná eins langt og hann
gæti. „Það var ekkert eitt sem olli
þessu breytta hugarfari. Það að
spila, æfa og leika mér í körfubolta
er einfaldlega það skemmtilegasta
sem ég geri og maður stefnir ein-
hvern veginn alltaf bara á að taka
næsta skref. Og það sem maður
gerir til þess að ná þangað er til-
tölulega einfalt, bara æfa meira.“
Fyrirmyndir Almars á körfu-
boltavellinum eru nokkrar og
Draumurinn
er að spila í NBA
„Þetta verður virkilega skemmtilegt verkefni og það verður gaman að berjast við þá bestu í heiminum í mínum
aldursflokki á hverjum degi og þróa leik minn enn frekar,“ segir Almar Orri Atlason. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Almar Orri, fyrir
miðju í bláum
bol, var valinn
í fimm manna
úrvalslið á EM í
ágúst.
MYND/FIBA
nefnir hann fyrst landsliðsmann-
inn Martin Hermannsson sem
einnig ólst upp hjá KR á sínum
tíma. „Ég fylgist mikið með Martin
Hermannssyni og lít mikið upp til
hans. Þar skiptir mestu máli hugar-
farið sem hann hefur sem ég held
að sé stór ástæða fyrir því að hann
hefur náð svo langt. En auðvitað
fylgist maður með stjörnunum í
NBA-deildinni og þar þykir mér
gaman að fylgjast með leikmönn-
um eins og Lebron James, Nikola
Jokic og Luka Doncic.“
Allt snýst um körfubolta
Það kemst fátt að í lífi Almars
annað en körfuboltinn. „Ég geri
mjög lítið annað en að spila eða
horfa á körfubolta. Yfir sumartím-
ann finnst mér þó gaman að veiða
og spila golf með vinum og fjöl-
skyldunni. Körfuboltinn er hins
vegar farinn að taka ansi mikinn
tíma á sumrin líka og hef ég bara
náð að fara tvo eða þrjá golfhringi í
sumar og ekkert í veiði.“
Almar f laug til Bandaríkjanna í
vikunni og er að koma sér fyrir og
undirbúa spennandi ár. En hvaða
markmið hefur hann sett sér fyrir
veturinn og næstu ár?
„Skammtímamarkmiðið er að
komast í gott hlutverk hjá Sunrise-
liðinu og reyna að vinna banda-
ríska menntaskólatitilinn. Eftir
næsta tímabil stefni ég á að spila
með góðu háskólaliði og takast
á við nýjar áskoranir þar sem ég
mun æfa og leika gegn enn betri
leikmönnum en ég mun spila á
móti nú í vetur. Draumurinn er svo
að spila í NBA-deildinni og hefur
mig alltaf langað til þess. Loka-
markmiðið er að uppfylla þann
draum.“ n
6 kynningarblað A L LT 2. september 2022 FÖSTUDAGUR