Fréttablaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 26
 Eftir næsta tímabil stefni ég á að spila með góðu háskólaliði og takast á við nýjar áskoranir. Almar Orri Atlason Einn efnilegasti íþrótta- maður landsins, Almar Orri Atlason, mun leika með einum sterkasta mennta- skóla Bandaríkjanna í vetur. Almar vakti mikla athygli á EM í sumar með U18 ára liðinu og þykir eitt mesta efni sem komið hefur fram í körfuboltanum hér á landi í langan tíma. starri@frettabladid.is Fyrr í vikunni var greint frá því að einn efnilegasti íþróttamaður landsins, Almar Orri Atlason körfu- boltamaður úr KR, væri á leið til Bandaríkjanna þar sem hann mun leika með Sunrise Christian Aca- demy menntaskólanum í vetur. Almar vakti mikla athygli með U18 liði Íslands á Evrópumótinu sem haldið var í Rúmeníu í ágúst og var valinn í fimm manna úrvals- lið mótsins auk þess sem fjöldi erlendra greinenda jós lofsyrðum yfir hann. Einn þeirra var Jonat- han Givony, greinandi ESPN fyr ir nýliðaval NBA-deild ar inn ar vest an hafs, sem sagði frammistöðu hans á mótinu vera eina þá bestu sem hann hefði séð í sumar. Sunrise Christian Academy er í Kansas-fylki og metinn sá besti í Bandaríkjunum undanfarin tvö ár en skólinn vann NIBC-deildina á síðasta ári. „Ég hlakka gríðarlega til að leika með skólanum í vetur,“ segir Almar. „Sunrise er virkilega gott lið sem endaði efst í NIBC- deildinni á seinasta tímabili sem er deild sem tíu bestu liðin í High school-boltanum stofnuðu. Þetta verður virkilega skemmtilegt verk- efni og það verður gaman að berjast við þá bestu í heiminum í mínum aldursflokki á hverjum degi og þróa leik minn enn frekar.“ Vakti mikla athygli á EM Góður árangur U18 liðsins í ágúst kom Almari ekki á óvart en liðið hafnaði í fjórða sæti. „Fyrir mótið höfðum við sem lið mikla trú á okkur þar sem við vorum að koma af góðu Norðurlandamóti og leið vel með hópinn. Markmið okkar var að komast allavega upp úr riðlinum og inn í átta liða úrslitin. Liðið breytti þó fljótt markmiði sínu í að stefna á eitt af þremur efstu sætunum sem voru verðlaunasæti. Það náðist því miður ekki þar sem við enduðum í fjórða sæti eftir tap gegn Finnlandi í lokaleiknum.“ Persónulegur árangur hans kom honum ekki heldur á óvart. Hann segist einfaldlega hafa passað að spila sinn leik og gera allt til þess að hjálpa liðinu til að vinna. „En auðvitað var líka markmiðið að standa sig vel persónulega og að ná að vekja smá athygli.“ Mikið hefur verið skrifað og rætt um ummæli Jonathan Givony í íslenskum fjölmiðlum en hvað finnst Almari um þau? „Það er auðvitað mjög gaman að fá athygli frá manni eins og Jonathan fyrir eitthvað sem maður gerir vel og hefur unnið lengi að. Ég passaði mig þó alltaf á að láta þetta ekki hafa áhrif á leik minn meðan á mótinu stóð og halda áfram að gera það sem var best fyrir liðið.“ Lærdómsrík dvöl á Ítalíu Almar var einungis fjögurra ára gamall þegar hann hóf að æfa körfubolta með KR en þá voru bæði systkini hans að æfa körfu- bolta með félaginu. „Ég hef alltaf leikið með KR á Íslandi en ég lék svo tímabilið 2019–2020 með Stella Azurra í Róm á Ítalíu.“ Hann segir dvölina á Ítalíu hafa verið mjög skemmtilega þrátt fyrir leiðinlegan Covid-endi. „Stella er frábært lið og þar kynntist maður því í fyrsta skipti að æfa eins og þeir bestu gera. Róm er náttúrulega stórkostleg borg og ótrúleg forréttindi að fá að prófa að búa þar. Körfuboltalega kynntist maður þessum hraða leik, þar sem pressað er allan völlinn allan tímann og mikið lagt upp úr því að vinna boltann snemma og refsa andstæðingnum hratt. Við spiluðum líka á mótum úti um alla Evrópu við mörg af bestu liðum álfunnar, svo sem Real Madrid, Barcelona, Valencia, Bayern München og Zalgris.“ Rétta hugarfarið skiptir máli Það var um 12-13 ára aldurinn sem Almar áttaði sig á því að hann vildi setja körfuboltann í fyrsta sæti og reyna að ná eins langt og hann gæti. „Það var ekkert eitt sem olli þessu breytta hugarfari. Það að spila, æfa og leika mér í körfubolta er einfaldlega það skemmtilegasta sem ég geri og maður stefnir ein- hvern veginn alltaf bara á að taka næsta skref. Og það sem maður gerir til þess að ná þangað er til- tölulega einfalt, bara æfa meira.“ Fyrirmyndir Almars á körfu- boltavellinum eru nokkrar og Draumurinn er að spila í NBA „Þetta verður virkilega skemmtilegt verkefni og það verður gaman að berjast við þá bestu í heiminum í mínum aldursflokki á hverjum degi og þróa leik minn enn frekar,“ segir Almar Orri Atlason. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Almar Orri, fyrir miðju í bláum bol, var valinn í fimm manna úrvalslið á EM í ágúst. MYND/FIBA nefnir hann fyrst landsliðsmann- inn Martin Hermannsson sem einnig ólst upp hjá KR á sínum tíma. „Ég fylgist mikið með Martin Hermannssyni og lít mikið upp til hans. Þar skiptir mestu máli hugar- farið sem hann hefur sem ég held að sé stór ástæða fyrir því að hann hefur náð svo langt. En auðvitað fylgist maður með stjörnunum í NBA-deildinni og þar þykir mér gaman að fylgjast með leikmönn- um eins og Lebron James, Nikola Jokic og Luka Doncic.“ Allt snýst um körfubolta Það kemst fátt að í lífi Almars annað en körfuboltinn. „Ég geri mjög lítið annað en að spila eða horfa á körfubolta. Yfir sumartím- ann finnst mér þó gaman að veiða og spila golf með vinum og fjöl- skyldunni. Körfuboltinn er hins vegar farinn að taka ansi mikinn tíma á sumrin líka og hef ég bara náð að fara tvo eða þrjá golfhringi í sumar og ekkert í veiði.“ Almar f laug til Bandaríkjanna í vikunni og er að koma sér fyrir og undirbúa spennandi ár. En hvaða markmið hefur hann sett sér fyrir veturinn og næstu ár? „Skammtímamarkmiðið er að komast í gott hlutverk hjá Sunrise- liðinu og reyna að vinna banda- ríska menntaskólatitilinn. Eftir næsta tímabil stefni ég á að spila með góðu háskólaliði og takast á við nýjar áskoranir þar sem ég mun æfa og leika gegn enn betri leikmönnum en ég mun spila á móti nú í vetur. Draumurinn er svo að spila í NBA-deildinni og hefur mig alltaf langað til þess. Loka- markmiðið er að uppfylla þann draum.“ n 6 kynningarblað A L LT 2. september 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.