Mosfellingur - 23.06.2022, Blaðsíða 24
- Mosfellingurinn Hlín Magnúsdóttir Njarðvík24
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Hlín Magnúsdóttir Njarðvík hefur
starfað mjög lengi með börnum,
í dag stýrir hún stoðþjónustu þar
sem hún leggur mikla áherslu á fjölbreytt
og áhugahvetjandi námsefni ásamt því að
flétta daglegt líf inn í nám barnanna að
mestu leyti.
Hlín heldur einnig úti námssamfélag-
inu Fjölbreyttar kennsluaðferðir fyrir
fjöruga krakka en þar deilir hún bæði
hugmyndum og námsefni sem hún hann-
ar sjálf til annarra kennara og foreldra.
Hlín Magnúsdóttir Njarðvík er fædd í
Reykjavík 17. apríl 1986. Foreldrar hennar
eru Stefanía Anna Árnadóttir leikskóla-
starfsmaður og Magnús Steinn Loftsson
leikari.
Hlín á fjögur systkini, Ingibjörgu f. 1980,
Árna Dag f. 1989, Ástu f. 1994 og Katrínu
f. 1994.
Kósý kvöldin standa upp úr
„Ég ólst upp í Vesturbænum í Reykja-
vík og það var alveg dásamlegt að alast
þar upp. Stutt í skólann, stutt í vinina og
hverfissjoppan stóð alltaf fyrir sínu, það
var alltaf líf og fjör. Mínar dýrmætustu
æskuminningar eru augnablikin þar sem
ég var að leika við systkini mín á hverfis-
rólónum, leigja vídeóspólu með pabba og
borða sveittan hamborgara frá Hróa Hetti
með mömmu.
Systkinahópurinn er stór svo það var
alltaf líf og fjör á heimilinu, foreldrar okkar
lögðu alltaf mikið upp úr kósýkvöldum og
hjá okkur var alltaf mikil tilhlökkun. Þetta
er til dæmis eitt af því sem ég hef tekið með
mér í uppeldi barnanna minna,“ segir Hlín
og brosir.
Gaman að gleyma sér í gleðinni
„Ég gekk í Melaskóla og Hagaskóla og hef
alltaf haft gaman af því að vera í skóla. Það
er nefnilega alltaf gaman að læra eitthvað
nýtt og það er kannski ástæðan fyrir því að
ég endaði í skóla á fullorðinsárum, skólar
eru skemmtilegir staðir.
Á skólaárunum var maður alltaf að
bralla eitthvað sniðugt með
vinunum, hvort sem það var
að stofna hljómsveit og rappa
á Gauki á Stöng fyrir framan öll
átrúnaðargoðin á þeim tíma eða
að fara saman á tónleika. Vinahópurinn
hefur haldið sambandi í gegnum öll þessi
blessuðu ár og það er alltaf jafn gaman að
gleyma sér í gleðinni með þeim.
Ég fór síðan í Menntaskólann við Hamra-
hlíð á félagsfræðibraut þar sem ég féll fyrir
sálfræðinni, þar tók ég eins marga sálfræði-
áfanga og ég gat og naut þess í botn.“
Dýrmæt augnablik í hinu daglega lífi
Hlín er gift Gunnari Lár Gunnarssyni
framkvæmdastjóra og eiganda viðburða-
fyrirtækisins Manhattan Events. Þau eiga
þrjú börn, Hlyn Lár f. 2010, Anítu Björk f.
2014 og Jökul Lár f. 2019.
„Við fjölskyldan erum mjög samrýmd
og ótrúlega heimakær, við erum með
kósýkvöld í hverri viku, horfum saman
á bíómyndir og förum í heita
pottinn. Við höfum líka gaman
af að ferðast og sjá nýja staði
saman.
Annars eru það dýrmætu augnablikin
í hinu daglega lífi sem gefa okkur mest,
spjallið eftir skóladaginn, hláturinn við
matarborðið, kvöldröltið og svo spjallið
sem á sér stað akkúrat þegar þau eru að
fara að sofa.“
Áherslurnar eru mismunandi
Síðustu ár hefur Hlín starfað í skólum,
fyrst sem kennari á Stuðlum í eitt ár og svo
sérkennari í Norðlingaskóla í fimm ár. Núna
starfar hún sem deildarstjóri stoðþjónustu í
leik- og grunnskólanum Helgafellsskóla og
er að klára sitt annað ár í því starfi.
Hún er með meistaragráðu í uppeldis-og
menntunarfræðum ásamt BA-gráðu í sál-
fræði og diplomagráðu í kennslufræðum,
málþroska og læsi.
„Starfið mitt felst aðallega
í því að þróa og styðja við alla
stoðþjónustu í skólanum í
samvinnu við starfsfólkið.
Þetta er stuðningskerfi við
almenna kennslu en áhersl-
urnar eru mismunandi og
fara eftir þörfum einstakl-
ingsins. Ég er svo heppin að
vera með virkilega flott fólk
í mínu stoðteymi, sérkenn-
ara, iðjuþjálfa, námsráðgjafa
og þroskaþjálfa, allir með
það að leiðarljósi að leyfa
styrkleikum og áhugasviði
barnanna að njóta sín.
Dagarnir í vinnunni er
misjafnir en allir snúast þeir
um nemendur og hvernig hægt er að aðlaga
skólastarfið að þeirra þörfum.“
Verkefnamiðað nám
Hlín sinnir fjölbreyttum verkefnum dag-
lega, finnur námsefni við hæfi með aðstoð
sérkennara, sinnir foreldrasamskiptum,
leitar til annarra fagaðila t.d sálfræðings
eða talmeinafræðings til að fá ráðgjöf,
skimar fyrir lestrarvanda og heldur utan
um aðrar skimanir, fundarhöld ásamt því
að spjalla við börnin sjálf.
„Í Helgafellsskóla vinnum við mikið með
verkefnamiðað nám, við reynum að flétta
daglegt líf inn í nám barnanna að sem
mestu leyti. Fókusinn minn er alltaf hvaða
verkfæri þurfa börnin að hafa til þess að
geta tekist á við áskoranir og hvernig við
getum gert námið forvitnilegt og áhugavert,
til þess að vita það þá er langbest að spjalla
við börnin. Við stjórnendur leggjum líka
mikið upp úr því að þau geti alltaf komið
til okkar ef þeim liggur eitthvað á hjarta.“
Vinnum að sama markmiði
„Stoðþjónustan er samvinna milli skóla,
foreldra og nemenda m.a. á þann hátt
að skólinn þekkir bekkjarnámskrána og
hæfniviðmiðin ásamt því að þekkja fjöl-
breytt úrræði, foreldrar geta stutt við námið
heima og nemandinn nýtir sína styrkleika
og áhugasvið til að læra nýja þekkingu.
Ég hef alltaf haft það sem markmið bæði
sem foreldri og starfsmaður í skóla að hafa
samskiptin milli heimilis og skóla sem
best, að þau einkennist af trausti, virðingu
og samvinnu. Að barnið finni að það eigi
bandamenn á báðum stöðum og verið sé
að vinna að sama markmiðinu, að barninu
líði vel og það fái tækifæri til að blómstra
í lífinu.“
Fjölbreyttar kennsluaðferðir
„Ég er líka með „smá“ aukavinnu, en ég
held úti litlu námssamfélagi sem ég kalla
Fjölbreyttar kennsluaðferðir fyrir fjöruga
krakka. Ég deili námsefni, hugmyndum
og ráðgjöf á samfélagsmiðlum og hef
haldið fyrirlestra, allt í nafni Fjölbreyttrar
kennslu.
Það er alveg dásamlegt að vinna þessa
vinnu svona á kantinum, það gefur mér
mikið að búa til námsefni á kvöldin þegar
börnin mín eru sofnuð.
Mitt helsta áhugamál er nám og kennsla,
ég ver miklum tíma í að kynna mér hvort
tveggja, hvort sem það er að lesa greinar,
skoða námsefni eða kynna mér hvað aðrir
skólar eru að gera, bæði hér heima og er-
lendis. Ég sæki mikið ráðstefnur og nám-
skeið og svo hef ég ansi gaman af því að
mennta mig sjálf,“ segir Hlín og brosir.
Ég held ótrauð áfram
„Ég tel mig vera í einstakri stöðu þar sem
ég fæ tækifæri til að ná bæði til foreldra og
fagfólks með fróðleik og námsefni bæði í
gegnum starf mitt og í gegnum Fjölbreyttar
kennsluaðferðir fyrir fjöruga krakka.
Ég held ótrauð áfram að leggja mitt af
mörkum svo að brúin milli heimilis og
skóla sé stutt, stöðug og sterk.“
Ég held ótrauð áfram að
leggja mitt af mörkum svo
að brúin milli heimilis og skóla
sé stutt, stöðug og sterk.
Fjölskyldan: Aníta Björk, Hlynur Lár, Hlín, Jökull Lár og Gunnar Lár.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Skólar eru skemmtilegir staðir
HIN HLIÐIN
Hvað hefur haft mest áhrif á líf þitt?
Að eignast börn.
Uppháhaldsvefsíða? Fjolbreyttkennsla.is
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
hefur gert? Ferðast um Evrópu þegar ég
var tæplega tvítug.
Skrítnasta upplifunin? Þegar ég var
næstum rænd af apa á Gíbraltar.
Hvað keyptir þú síðast fyrir heimilið?
Spil í Barnaloppunni.
Besti drykkurinn? Ískaldur Nocco.
Hvað heillar þig í fari fólks?
Einlægni og húmor.
Hvaða lag hefðir þú viljað hafa samið?
I would walk 500 miles.
Hlín Magnúsdóttir Njarðvík deildarstjóri stoðþjónustu í Helgafellsskóla segir samskipti heimilis og skóla einkennast af samvinnu
dugnaðarforkur
Hlynur lár, Jökull lár og aníta BJörk
3 ára skJáta