Fréttablaðið - 07.09.2022, Page 1
Biðlistar á Landspítalanum
lengdust mjög í Covid og
hægt gengur að vinda ofan af
þeim. Kennari sem bíður eftir
hnéaðgerð undrast að ríkið
neiti að skipta við Klíníkina.
gar@frettabladid.is
Heilbrigðismál Bið Ragnars Hilm-
arssonar grunnskólakennara eftir
liðskiptum á hné lengist stöðugt.
Ragnar hitti lækni í febrúar 2021.
„Hann sagði mér að biðin eftir
aðgerð gæti orðið ár en að hún ætti
að verða styttri,“ rekur Ragnar. Eftir
ár hafi verið sagt að aðgerðin gæti
fyrst orðið í sumar eða haust.
„Nú var sagt að þetta yrði ekki
fyrr en einhvern tímann á næsta
ári.“ Skýringar séu sagðar skortur á
starfsfólki á Landspítalanum.
Ragnar freistar þess einnig að
komast að á sjúkrahúsunum á Akra-
nesi og á Akureyri. „Það þýðir að ég
þarf bæði að fara í viðtal við lækni
á Akureyri og lækni á Akranesi og
það þarf að taka myndir á báðum
stöðum – það er engin samvinna
þarna á milli,“ segir Ragnar.
Nýlega kveðst Ragnar hafa frétt
að fólk sem hafi ekki fengið slíka
aðgerð innan þriggja mánaða eigi
rétt á að fara til útlanda í aðgerð á
kostnað Sjúkratrygginga Íslands. Sé
kostnaður við það margfalt meiri en
þær 1,2 milljónir króna sem sama
aðgerð kosti hjá Klíníkinni í Reykja-
vík. Ríkið vilji hins vegar ekki greiða
fyrir slíkar aðgerðir þar.
„Ég hef rætt við Willum heil-
brigðisráðherra. Hann segist vera
að vinna í þessu á fullu. Það er afar
skrítið að við séum með Klíník og
hæft fólk sem gæti stytt biðlistana
en þeir séu ekki tilbúnir að borga
fyrir það en til í að borga fyrir þetta
á einkasjúkrahúsum erlendis.“
Að sögn Andra Ólafssonar, upp-
lýsingafulltrúa á Landspítalanum,
lengdust biðlistar í nánast öllum
aðgerðaf lok k um g r íðarlega í
Covid. Ekki hafi tekist nægilega vel
að stytta listana. „Þegar verið er að
vinna biðlistana niður ræður bráð-
leiki för. Þá hefur lífsógnandi ástand
meiri forgang en annað.“ n
Þegar verið er að vinna
biðlistana niður ræður
bráðleiki för.
Andri Ólafsson,
upplýsinga
fulltrúi á
Landspítalanum
2 0 1 . t ö l u b l a ð 2 2 . á r g a n g u r f rettab lad id . i s m i ð V i K u D a g u r 7 . s e p t e m b e r 2 0 2 2
Hin umdeilda
Galadríel
Lífið ➤ 20
Nýtt rúgbrauð
í Bílablaðinu
fylgir Fréttablaðinu í dag
Bílablaðið
MYND/NJÁLL GUNNLAUGSSON
7. SEPTEMBER 2022
Ferrari 488 GTB reynslu-
akstur er ekki í boði á
hverjum degi en í dag
getum við lesið um hvern-
ig er að keyra þennan bíl á
kappakstursbraut. 8
Seres 3 EV er nýjasta við-
bótin við flóru kínverskra
rafbíla sem flæða nú yfir
evrópska bílamarkaðinn
og þar með talið Ísland. 10
Með Skoda Vision 7S
kynnir merkið í senn nýtt
útlit og nýjan rafdrifinn sjö
manna fjölnotabíl. 2
Áreiðanlegir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir
flestar gerðir dráttarvéla. Veldu þaulreynda
vöru frá gæðaframleiðanda.Ráðgjafar Olís veita allar nánari upplýsingar
í síma 515 1100 eða pontun@olis.is.
Betra start með Exide rafgeymum
VW ID.BUZZ – bíll fyrir framtíðina
Kynning á hinum framúrstefnulega VW ID.BUZZ er
nýhafin í Kaupmannahöfn og fyrstu umfjallanir um
bílinn munu birtast í dag. Hann sækir þó hugmyndir
sínar að einhverju leyti til fortíðar og eftir tvö ár
verða komnar fleiri útgáfur af þessum bíl á markað. 6
2-3 DAGA
AFHENDING
Daniil
Trifonov
EINLEIKSTÓNLEIKAR
10.09 20:00
Biðlistar sem Covid-faraldurinn
skapaði styttast hægt á Landspítala norðurlanD Lektor í lögreglu-
fræði segir áhyggjuefni að sjá skila-
boð frá nýnasistum í auknum mæli
hér á landi. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hafa límmiðar birst
í Þingeyjarsveit og á Húsavík en
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri
á Norðurlandi eystra, kannast ekki
við skilaboðin.
Á einum af límmiðunum er vísað
í heimasíðu Norrænu mótstöðu-
hreyfingarinnar, sem á uppruna
í Svíþjóð en hefur dreift úr sér á
Norðurlöndunum.
„Þetta eru nýnasistar, það er
engin spurning, þannig fjalla fræðin
um þetta. Við erum að tala um for-
ræðishyggju sem stendur vörð um
hvíta kynstofninn, að hann byggi
á menningarlegum arfi, sem stenst
ekki skoðun,“ segir Eyrún Eyþórs-
dóttir, lektor í lögreglufræði við
Háskólann á Akureyri. sjá síðu 4
Nýnasistar á
Norðurlandi
Íslenska kvennalandsliðið var tveimur mínútum frá því að komast á HM í fyrsta sinn en grátlegt sigurmark Hollendinga réð úrslitum. Það var fátt sem benti til þess að Hollendingar myndu brjóta
ísinn undir lokin þegar sigurmarkið kom. Stelpurnar okkar fara því í umspil og þurfa að vinna einn leik í október til að tryggja sér farseðil til Eyjaálfu á næsta ári. sjá síðu 10 Fréttablaðið/Getty