Fréttablaðið - 07.09.2022, Qupperneq 8
Aðalhagfræðingur Íslands-
banka segir að hagvaxtar-
tölur á öðrum ársfjórðungi
hafi verið í takt við væntingar.
Framkvæmdastjóri Analytica
segir að vöxturinn hafi verið
geysimikill en hann mældist
6,1 prósent á öðrum árs-
fjórðungi.
magdalena@frettabladid.is
Hagvöxtur á öðrum ársfjórðungi
mældist 6,1 prósent, samkvæmt
tölum Hagstofunnar sem birtar
voru í síðustu viku. Vöxturinn var
að stærstum hluta drifinn af einka-
neysluvexti og mikilli fjölgun ferða-
manna milli ára.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Íslandsbanka, segir að
fyrri hluti þessa árs hafi einkennst
af miklum eftirspurnarvexti.
„Tölurnar voru svona í ágætum
takti við það sem við höfðum
teiknað upp í vor þegar við gáfum út
síðustu þjóðhagsspá. Mikill korta-
veltuvöxtur og sérstaklega erlenda
kortaveltan hjá heimilunum gaf
tóninn fyrir mikla einkaneyslu í töl-
unum,“ segir Jón Bjarki og bætir við
að hann búist við því að draga muni
úr einkaneyslu- og fjárfestingavext-
inum á seinni helmingi þessa árs.
„Við erum um þessar mundir
að vinna nýja þjóðhagsspá og við
gerum ráð fyrir að vöxtur verði tals-
vert hægari á næstu tveimur árum
vegna þess að innlenda eftirspurnin
muni vaxa talsvert hægar auk þess
sem þessi mikli vaxtarkippur sem
hefur verið í ferðaþjónustunni mun
líklega fjara meira út og ná jafn-
vægi.“
Yngvi Harðarson, framkvæmda-
stjóri Analytica, segir að vöxturinn
á öðrum fjórðungi hafi verið geysi-
mikill og að hann efist um að fólk
átti sig á því raunverulega hversu
mikill vöxtur þetta sé.
„Þegar maður færir þetta á árs-
mælikvarða þá er vöxturinn á
fjórðungnum talsvert langt yfir því
sem maður getur búist við til fram-
tíðar,“ segir Yngvi og bendir á að
einkaneyslan og fjárfesting hafi að
mestu knúið hagvöxtinn áfram.
„Samkvæmt tölum Hagstofunnar
erum við að sjá 3,9 prósenta vöxt frá
fyrri fjórðungi og ef maður færir það
yfir á ársmælikvarða þá erum við að
tala um tveggja stafa tölu eða 16,5
prósenta hagvöxt á ársmælikvarða
sem er langt yfir því sem má búast
við til framtíðar.“
Í Peningamálum Seðlabankans
sem komu út á dögunum kemur
fram að bankinn spái 5,9 prósenta
hagvexti í ár en það er 1,3 pró-
sentum meiri vöxtur en spáð var í
maí. Þá spáir bankinn að hagvöxtur
á næstu tveimur árum verði um 2
prósent á ári.
Jón Bjarki segir að sú spá Seðla-
bankans sé í ágætum takti við þær
horfur sem Greining Íslandsbanka
sér fyrir sér.
„Miðað við þann hraða takt sem
við sáum á fyrri helmingi ársins og
þessar vísbendingar um að það sé
farið að hægjast á þá er niðurstaða
Seðlabankans líkleg niðurstaða.“
Yngvi segir að spá Seðlabankans
um 5,9 prósenta hagvöxt á árinu sé
ekki ósennileg.
„Þeir eru komnir inn á svæði sem
er ekkert ólíklegt en sjálfur á ég von
á að hagvöxturinn verði í kringum
6,5 prósent en minni á næsta ári.
Ég á einnig von á því að hagvöxtur
verði minni á seinni helmingi árs-
ins.“
Yngvi segist búast við því að
vöxtur verði nokkuð góður miðað
við nágrannalöndin á komandi
misserum.
„Ferðaþjónustan hefur verið að
taka vel við sér þannig að það er von
á að það verði áfram ágætur vöxtur
þar þótt hann verði kannski ekki
jafnmikill og verið hefur síðast-
liðna mánuði. Svo býst ég við ágætis
loðnuveiði á þessu fiskveiðiári. Hins
vegar eru ýmsir óvissuþættir eins og
stríðið í Úkraínu og staða efnahags-
lífsins í heiminum.“
Jón Bjarki segir að staðan sé sú að
Íslendingar hafi að minnsta kosti
borð fyrir báru ef dregur úr eftir-
spurn í viðskiptalöndunum. Þá sé
það mjög jákvætt að við séum ekki
að sjá sama lífskjarahöggið vegna
orkukostnaðar líkt og víða í Evrópu.
„Eins og er þá er mikill þróttur
og horfur jákvæðar fyrir útflutn-
ingsgeirann þannig að líkurnar eru
miklu minni á samdrætti hjá okkur
en í löndunum í kringum okkur,“
segir Jón Bjarki og bætir við að það sé
áhyggjuefni hversu erfiður veturinn
geti orðið í Evrópu.
„Það eru líka merki um mögulegan
samdrátt vestan hafs og við megum
ekki gleyma því að við erum ekki
einangruð í samfélagi þjóðanna.
Það gæti verið að ef bakslagið verður
alvarlegt í okkar helstu viðskipta-
löndum að það dragi á endanum úr
þrótti í hagkerfinu hér.“ n
Mikill kortaveltu-
vöxtur og sérstaklega
erlenda kortaveltan hjá
heimilunum gaf tón-
inn fyrir mikla einka-
neyslu í tölunum.
Jón Bjarki
Bentsson, aðal-
hagfræðingur
Íslandsbanka
Ég á von á því að
hagvöxtur verði minni
á seinni helmingi
ársins.
Yngvi Harðar-
son, fram-
kvæmdastjóri
Analytica
ggunnars@frettabladid.is
Gestur Pétursson, sem hefur verið
ráðinn forstjóri PCC BakkiSilicon
kísilversins á Bakka við Húsavík,
verður fjórði forstjóri fyrirtækisins
á jafnmörgum árum. Hann tekur
við starfinu af Rúnari Sigurpálssyni,
sem mun einbeita sér að þróunar-
málum hjá fyrirtækinu.
Gestur sest í stól sem, allt frá
gangsetningu verksmiðjunnar,
hefur reynst nokkuð heitur. Erfið-
leikar, uppsagnir og fjárhagslegar
hremmingar hafa litað sögu kísil-
versins frá því ofnar verksmiðjunn-
ar voru fyrst gangsettir fyrir fjórum
árum síðan.
Þótt saga kísilversins sé ekki
löng þá átti uppbygging orkufreks
iðnaðar á Bakka sér talsverðan
aðdraganda.
Viljayfirlýsing um áformin var
fyrst undirrituð árið 2011 og ráðist
í framkvæmdir á svæðinu fjórum
árum síðar. Verksmiðja PCC á Bakka
við Húsavík var svo loks gangsett
árið 2018.
Fyrstu mánuðirnir eftir gang-
setningu voru forsvarsmönnum
fyrirtækisins erfiðir. Hráefni fraus í
tækjum í vetrarhörkunni og brösug-
lega gekk að halda ofnum verk-
smiðjunnar gangandi. Bilanir gerðu
vart við sig í hreinsibúnaði í upphafi
árs 2019 sem leiddi til þess að reyk
og ólykt lagði frá skorsteinum verk-
smiðjunnar, íbúum á Húsavík til
armæðu.
Vegna þessara byrjunarerfiðleika
í rekstrinum neyddust fjárfestar til
að leggja verksmiðjunni til nærri
því sex milljarða króna viðbótar-
framlag einungis einu ári eftir að
framleiðsla hófst. Þar með var ljóst
að upphafleg tugmilljarða fjárfest-
ing íslenskra fjárfesta og lífeyris-
sjóða var að engu orðin.
Enn syrti svo í álinn tveimur
árum eftir að kveikt var á ofnum
verk smiðjunnar í fyrsta sinn, eða
árið 2020.
Þá greindi talsmaður fyr ir-
tækisins frá því að búið væri að
segja upp 80 starfs mönnum og að
slökkt yrði á báðum ofnum verk-
smiðj unnar tímabundið. Heims-
faraldri og verði á kísilmálmi var
kennt um og sagðist Rúnar Sigur-
pálsson, þáverandi forstjóri, ekkert
geta sagt til um hvenær framleiðsla
verksmiðjunnar gæti hafist að nýju.
Í apríl á síðasta ári var svo greint
frá því að ofnar kísilversins hefðu
verið ræstir á ný og allt starfsfólk
endurráðið.
Síðan þá hefur hagur PCC á Bakka
vænkast enda hefur kísilverð hækk-
að umtalsvert og stöðugleiki náðst í
framleiðslu verksmiðjunnar.
Þýska félagið PCC SE á 86,5 pró-
senta hlut í kísilverinu á Bakka á
móti 13,5 prósenta hlut Bakka-
stakks, fjárfestingarfélags Íslands-
banka og íslenskra lífeyrissjóða.
Bakkastakkur hefur afskrifað
stærstan hluta af fjárfestingu sinni í
verkefninu. Eigið fé PCC á Bakka var
neikvætt um þrjá milljarða króna
í lok árs 2020 í kjölfar ríf lega sjö
milljarða króna taps á árinu.
Á síðasta ári skilaði fyrirtækið
hins vegar jákvæðri rekstrarniður-
stöðu í fyrsta skipti frá gangsetn-
ingu verksmiðjunnar.
Gestur Pétursson, nýr forstjóri
PCC á Bakka, segist vera spenntur
að vinna að þeim tæki færum sem
hafi myndast vegna góðrar vinnu
forvera hans og hagfelldari aðstæð-
um á mörkuðum.
Frá farandi for stjóri, Rúnar Sigur-
páls son, segir árin á Bakka hafa
verið við burðarík.
„Eftir marg vís lega upp hafs erfið-
leika er rekstur verk smiðjunnar
orðinn stöðugur. Fjárhagslegri
endur skipu lagningu er lokið og fé-
lagið vel í stakk búið til að takast á
við fram tíðar á skoranir.“ n
Skakkaföll og endurreisn
kísilversins á Bakka
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir klipptu á borða
við Bakka árið 2015 ásamt Kristjáni Þór Magnússon, þáveranadi sveitarstjóra
Norðurþings, og Waldemar Preussner, eiganda PCC. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Gestur
Pétursson, nýr
forstjóri PCC
BakkiSilicon
FÆRÐU ÁSTVINUM
ÞÍNUM ÓSKASKRÍN
– UPPLIFUN Í ÖSKJU
577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
Gera ráð fyrir minni vexti
á seinni helmingi ársins
Hagvöxturinn á öðrum ársfjórðungi var að stærstum hluta drifinn af einka-
neysluvexti og mikilli fjölgun ferðamanna milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
8 Fréttir 7. september 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN 7. september 2022 MIÐVIKUDAGUR