Fréttablaðið - 07.09.2022, Blaðsíða 23
Vélin er sýnileg undir afturrúðunni og áherslan er á forþjöppurnar tvær næst
farþegarýminu og áberandi rauð ventlalokin.
Farangursrýmið er 230 lítrar og komið fyrir undir húddi bílsins.
Þökk sé kapp-
akstursbraut-
inni í Kapellu-
hrauni er nú
orðið raunhæft
að eiga svona
bíl á Íslandi. Það
er einfalt og
ódýrt að skrá sig
í akstursklúbba
og stunda þar
hringakstur
allt sumarið,
hvort sem ekið
er á bílum eða
mótorhjólum.
Ertu að tengja?
Hleðsla rafbíla
Fáið löggiltan rafverktaka til að yfirfara og
aðlaga raflögnina áður en rafbíll er hlaðinn
í fyrsta sinn.
Hver tengipunktur má einungis hlaða einn rafbíl í einu
Hver tengipunktur skal varinn með yfirstraumvarnar-
búnaði sem einungis ver þennan tiltekna tengipunkt
Hver tengipunktur skal varinn með bilunarstraumsrofa
(lekastraumsrofa) sem einungis ver þennan tiltekna
tengipunkt
Bilunarstraumsrofinn ætti að vera af gerð B – þó má
nota gerð A sé jafnframt notuð viðbótarvörn
HMS mælir með að ekki séu notaðir hefðbundnir
heimilistenglar til hleðslu rafbíla
HMS mælir með að til heimahleðslu rafbíla séu notaðar
þar til gerðar hleðslustöðvar eða iðnaðartenglar
Stranglega er bannað að nota framlengingarsnúru,
fjöltengi eða önnur „millistykki“ við hleðslu rafbíla
Hleðslustrengir mega ekki liggja þar sem þeir geta
orðið fyrir hnjaski, t.d. yfir vegi, gangstéttar eða stíga
Ekki nota hleðslusnúru eða annan búnað sem hefur
skemmst
•
•
•
•
•
•
•
•
•
er að opna fyrir spjöld sem gefa
bílnum aukahávaða. Loks er hann
með vökva stilltri sportfjöðrun,
koltrefja-afturvæng og 20 tommu
sportfelgur frá Novitec líka.
En eru einhverjir gallar við
svona frábæran akstursbíl? Hann
er kannski ekki hagkvæmasti
bíllinn til að eiga því hann virðist
hrapa nokkuð í verði þegar hann
er kominn fram yfir fimm ára
verksmiðjuábyrgðina. Það er
heldur ekki fyrir hvern sem er
að koma sér fyrir í bílnum enda
sest maður nánast niður í götuna.
Útsýni aftur er sama og ekki neitt
og sem betur fer er hann búinn
árekstraskynjurum því maður þarf
hreinlega að giska hvort einhver
sé fyrir aftan bílinn og eitt er víst:
maður heyrir örugglega ekki mikið
í viðkomandi. Farangursrými
bílsins er í nefinu og tekur 230
lítra. Þótt það sé ekki mikið miðað
við flesta bíla er það nóg til að
taka tvær meðalstórar ferðatöskur
fyrir hvorn farþega bílsins. Þangað
þarf þó flestallt að fara því ekki er
mikið pláss til að leggja hluti frá
sér í káetunni, og meira að segja
heimsókn á skyndibitastað getur
verið vandkvæðum bundin. Alla
vega er bílalúgan út úr kortinu því
að hún er bara allt of hátt uppi. n
BÍLABLAÐIÐ 9MIÐVIKUDAGUR 7. september 2022