Fréttablaðið - 07.09.2022, Qupperneq 30
Ellefu Evrópuþjóðir
komast beint á HM.
655
Íslenska liðið hafði
haldið hreinu í 655
mínútur í röð í undan-
keppninni þegar
Holland skoraði sigur-
markið.
aron@frettabladid.is
Fótbolti Í gær varð endanlega ljóst
hvaða lið úr Evrópuhluta undan-
keppni heimsmeistaramótsins
komast beint áfram í lokakeppnina
sem fram fer í Ástralíu og á Nýja-
Sjálandi á næsta ári. Auk Hollands
verða Svíþjóð, Spánn, England, Dan-
mörk, Noregur, Ítalía, Þýskaland og
Frakkland í pottinum sem fulltrúar
Evrópu þegar dregið verður í riðla
fyrir lokakeppnina.
Drátturinn mun fara fram í
Aotea-höllinni í Auckland í Ástr-
alíu þann 22. október. Alls verða 32
lið í pottinum og verður þeim skipt
niður í átta riðla sem munu einnig
ákvarða það hvar liðin munu spila
meðan á riðlakeppninni stendur.
Þá er ljóst hvaða landslið frá Evr-
ópu munu berjast um laust sæti í
lokakeppni HM í gegnum umspil.
Auk Íslands eru það Írland, Skot-
land, Austurríki, Bosnía Hersegó-
vína, Belgía, Sviss, Portúgal og
Wales sem verða í pottinum þegar
dregið verður í umspilið á föstu-
daginn. n
Öll liðin úr fyrsta
styrkleikaflokki
komast áfram
Sara hafði í nægu að snúast við að
verjast sóknarlotum Hollendinga.
kristinnpall@frettabladid.is
HM 2023 Þrátt fyrir vonbrigði gær-
kvöldsins fara Stelpurnar okkar
beint í annað stig umspilsins og fá
þær að vita næsta föstudag hver
andstæðingurinn í umspilinu
verður. Leikurinn fer fram þann
11. október næstkomandi og dugar
Íslandi sigur þar til að komast beint
í lokakeppni HM. n
Dregið á föstudag
Grátlegt sigurmark skildi
liðin að þegar Ísland tapaði
naumlega fyrir Hollandi í gær.
Stelpurnar okkar fara því í
umspil fyrir lokakeppni HM
sem hefst í næsta mánuði.
kristinnpall@frettabladid.is
HM 2023 Grátlegt sigurmark á 93.
mínútu leiksins gerði útslagið í
leik Hollands og Íslands í gær-
kvöld. Stelpurnar okkar fara því í
umspilið fyrir HM og Hollendingar
fá farseðilinn til Ástralíu. Íslenska
liðið barðist og varðist hetjulega
þegar líða tók á leikinn en fékk á sig
afskaplega óheppilegt sigurmark.
Það var ljóst fyrir leik að jafn tefli
myndi duga íslenska liðinu á ógnar-
sterkum heimavelli Hollendinga
sem höfðu ekki tapað keppnisleik
á heimavelli í níu ár. Stelpurnar
okkar voru með fullt hús stiga og
ekki búnar að fá á sig mark frá fyrri
leik liðanna síðasta haust fyrir leik
dagsins.
Jafnræði var með liðunum fyrstu
tíu mínútur leiksins en þegar líða
tók á leikinn ýttu Hollendingar
íslenska liðinu neðar á völlinn og
sóttu án afláts.
Sandra Sigurðardóttir átti stór-
leik í marki Íslands og átti nokkrar
frábærar markvörslur og þá áttu
Hollendingar þrjár tilraunir í
markrammann í fyrri hálfleik. Þor-
steinn Halldórsson brást við með
skiptingu í hálfleik til að reyna að
þétta raðirnar og veita meiri aðstoð
í varnarvinnunni og áttu Hollend-
ingar erfiðara uppdráttar við að
skapa sér færi í seinni hálfleik.
Með hverri mínútu sem leið urðu
Hollendingar örvæntingarfyllri
og Íslendingar öruggari í sínum
aðgerðum. Þrátt fyrir að Ísland hafi
lítið haldið í bolta og ekki byggt upp
margar góðar sóknir fengu Íslend-
ingar dauðafæri til að gera út um
leikinn um miðbik seinni hálfleiks
þegar fyrirgjöf Gunnhildar Yrsu
Jónsdóttur rataði á Sveindísi Jane
Jónsdóttur en Sveindís hitti ekki
boltann.
Svo virtist sem Íslendingar væru
á leiðinni á HM í fyrsta sinn þegar
Hollendingar höfðu heppnina með
sér og skoruðu afar ódýrt mark.
Fyrirgjöf Esmee Brugts rataði í netið
á 93. mínútu upp úr þurru þegar
ekkert virtist benda til þess að Hol-
lendingar myndu ná að brjóta niður
íslenska varnarmúrinn. n
Umspilið bíður Íslands eftir sárt tap
Guðný Árnadóttir niðurlút eftir að hafa séð fyrirgjöf Hollendinga rata í netið á lokamínútum leiksins í Utrecht. Fréttablaðið/Getty
Sandra Sigurðardóttir var besti leikmaður vallarins í gær. Fréttablaðið/Getty
14 Íþróttir 7. september 2022 MIÐVIKUDAGURÍþRóttIR Fréttablaðið 7. september 2022 MIÐVIKUDAGUR
helgifannar@frettabladid.is
Fótbolti Heimsmeistaramótið
árið 2023 fer fram í Ástralíu og á
Nýja-Sjálandi. Það hefst 20. júlí og
lýkur sléttum mánuði síðar. Þetta
er í fyrsta sinn sem löndin halda
HM og jafnframt í fyrsta sinn sem
tvö lönd halda keppnina saman.
Um níunda HM í sögu kvenna-
knattspyrnunnar er að ræða. Í
þetta sinn munu f leiri lönd en
nokkru sinni fyrr taka þátt, alls 32.
Það er átta löndum f leira en tóku
þátt á HM í Frakklandi árið 2019.
Fjöldi landa hafði upphaf lega
áhuga á því að halda HM 2023.
Nokkur þeirra heltust þó úr lest-
inni áður en kosið var. Að lokum
stóð valið á milli Ástralíu og Nýja-
Sjálands annars vegar og Kólumb-
íu hins vegar, þar sem fyrrnefndu
löndin höfðu betur.
Leikið verður á tíu leikvöngum
í níu borgum. Fimm þeirra eru í
Ástralíu og fjórar á Nýja-Sjálandi.
Sjálfur úrslitaleikurinn fer fram í
Sydney í Ástralíu þann 20. ágúst.
Leikið verður á Accor-leikvang-
inum, sem tekur yfir 80 þúsund
manns í sæti.
Mótið fer fram um hásumar í
okkar hluta heimsins, en það sama
er ekki hægt að segja um löndin
sem halda það, þar sem verður
hávetur meðan á HM stendur.
Bandaríska landsliðið er það
sigursælasta í sögu keppninnar,
hefur fjórum sinnum orðið heims-
meistari. Það er jafnframt ríkjandi
meistari eftir að hafa unnið síðustu
tvö lokamót, árin 2015 og 2019.
Knattspyrna í k vennaf lokki
hefur stækkað hratt um allan
heim undanfarin ár. Það sýndi sig
jafnvel skýrast er áhorfendamet
á Evrópumóti var sett á Wembley
í Lundúnum í sumar, þegar enska
landsliðið vann það þýska í úrslita-
leik. Rúmlega 87 þúsund manns
mættu á leikinn. Þá voru hin ýmsu
áhorfsmet í sjónvarpi einnig sett á
mótinu.
Það er óhætt að fullyrða að knatt-
spyrna í kvennaflokki á aðeins eftir
að stækka með HM 2023 í Ástralíu
og á Nýja-Sjálandi. n
Bjóða til veislu hinum megin á hnettinum næsta sumar
Bandaríkin vörðu Heimsmeistaratitilinn árið 2019. Fréttablaðið/Getty