Fréttablaðið - 07.09.2022, Blaðsíða 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
n Bakþankar
Nú hafa Danir formlega tvisvar
legið í því og með rúmlega 50 ára
millibili. Annars vegar var hand-
ritunum loksins skilað í upphafi
áttunda áratugarins og nú, þegar
meira en hundrað ár eru liðin frá
fullveldi landsins gengust þessir
fyrrum nýlenduherrar við alvar-
legri sögufölsun. Af því bárust jú
fréttir að að danski lakkrísfram-
leiðandinn Johan Bulow hefði
gerst svo kræfur að eigna sér hina
al-íslensku hefð að setja súkkulaði
og lakkrís saman. Johan þessi fram-
leiðir lakkrísvörur, margar bara
nokkuð góðar, en lét í veðri vaka
á samfélagsmiðlinum Twitter að
hann hefði fengið einhvers konar
súkkulaðilakkrísvitrun.
Hvílík sögufölsun. Súkkulaði-
húðaður lakkrís er jafn íslenskur
og sviðakjammar og hákarl. Bara
betri. Það voru nefnilega íslenskir
neytendur sem fundu þetta upp,
fólk keypti sér Síríuslengju og
lakkrísrúllu og naut með „inni-
haldinu“ úr kókflösku í sjoppu-
horni. Þetta hét eitt sett þar til að
á markaðinn kom „Eitt sett“, sem
reyndar var smá svindl því það er
of lítill lakkrís í þeirri samsetningu.
Síðan hefur orðið gríðarlega mikil-
væg vöruþróun – Djúpur, Draumur
og nú síðast piparlakkrís.
„Vér mótmælum allir!“ glumdi
um samfélagsmiðla og svo römm
voru mótmælin að Johan sá sína
sæng upp reidda og gekkst við
ósómanum.
Þetta opnar á tækifæri til að
endurheimta stöðu Íslendinga
gagnvart Dönum, sem alltaf líta
nett niður á okkur. Og við eigum
ýmissa harma að hefna. Maðkaða
mjölið verður aldrei fyrirgefið,
hvað þá úldna skreiðin. Vissulega
þarf einhverja góða PR-stofu til að
endurskoða úrslitin 14-2, en ég er
viss um að það hefst.
#returnerealt
(ég þurfti Google Translate,
ákveðinn sigur í sjálfu sér). n
Fullnaðarsigur
@66north
66north.is
Sérstök útgáfa af Dyngju í takmörkuðu
upplagi fer í sölu 15. september. Engin úlpa eins.
Engir tveir jöklar eru eins.
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN
Daniil
Trifonov
EINLEIKSTÓNLEIKAR
10.09 20:00