Fréttablaðið - 16.09.2022, Síða 1
Það má horfa jákvæð-
um augum á að ekki er
um að ræða beina
hagræðingarkröfu.
Runólfur Páls-
son, forstjóri
Landspítala
2 0 8 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 2
Snýr Aron aftur
í landsliðið
Spenntar að sjá
sig í Abbababb!
Íþróttir ➤ 12 Lífið ➤ 22
Fæst einnig fjórhjóladrifinn
Fjórhjóladrifinn, mjög vel útbúinn með 2.5 tonna dráttargetu
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/skodasalur
Škoda Enyaq
Coupé RS iV.
Sportlegur og alrafmagnaður
Frumsýning á morgun!
Leggja þarf áherslu á skyn
samlega verkaskiptingu milli
einkareksturs og ríkisreksturs
í heilbrigðisþjónustu, segir
forstjóri Landspítalans.
sigurjon@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL „Ég held að það
felist ýmis tækifæri í samstarfi á
milli opinberra aðila og einkaaðila,“
segir Runólfur Pálsson, forstjóri
Landspítalans. Hann segir að leggja
þurfi áherslu á skynsamlega verka
skiptingu á milli heilsugæslunnar,
einkarekinnar sérfræðiþjónustu og
Landspítala og annarra sjúkrahúsa.
„Aðalatriðið er að við erum með
þessar lykilþjónustueiningar í heil
brigðisþjónustunni sem sameigin
lega verða að ráða við þau verkefni
sem við stöndum frammi fyrir.
Því skiptir mjög miklu máli að við
nýtum öll þau úrræði sem við búum
yfir eins vel og mögulegt er,“ segir
Runólfur.
Forstjórinn telur ekki að neyðar
kall Landspítala hafi verið hunsað í
nýju fjárlagafrumvarpi. „Rekstrar
vandi spítalans tengist að verulegu
leyti ákveðnum viðfangsefnum sem
snerta skilgreiningu á hlutverki
hans,“ segir hann.
Að sögn Runólfs hefur verið
mikil umræða um styrkingu frum
þjónustunnar, eins og heilsugæslu
stöðva. „Þegar horft er til ýmissa
verkefna Landspítala sem tíðrætt
hefur verið um að eigi heima á lægra
þjónustustigi, þá gerum við ráð fyrir
því að öflugri frumþjónusta muni
koma að góðum notum,“ segir hann.
„Það sem mér finnst vera lykil
atriði þegar verið er að auka fjár
veitingar til stofnana er að það hafi
verið skilgreint á hvaða hátt þær
fjárveitingar verði nýttar, að það
liggi fyrir skilgreind áætlun um
þjónustu sem eigi að bætast við og
síðan sé því fylgt eftir að tilætlaður
árangur hafi náðst.“
Runólfur segist ekki hafa átt von
á að í fjárlagafrumvarpinu yrðu
viðbrögð við stöðunni sem uppi
er á spítalanum. Mönnunarvandi,
biðlistar eftir skurðaðgerðum og
skortur á úrræðum fyrir aldraða
séu stærstu vandamál alls heil
brigðiskerfisins. „Það var búið að
boða ákveðnar aðhaldsaðgerðir í
ríkisbúskapnum en það má horfa
jákvæðum augum á að ekki er um
að ræða beina hagræðingarkröfu.“ ■
Forstjóri Landspítalans sér tækifæri í
verkaskiptingu ríkisins og einkaaðila
Grafarvogskirkja vígir nýtt kirkjuorgel á sunnudaginn og er þar um að ræða afrakstur fjársöfnunar sem hófst fyrir rúmum tuttugu árum. Attila Farago og félagar hans frá ungverska orgelframleið-
andanum AerisOrgona eru að leggja lokahönd á orgelið, sem er engin smásmíði því í því eru um 3.000 pípur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VIÐSKIPTI Þingmaður Pírata segir
ástæðu til að óttast að erlend njósna
starfsemi gæti orðið fylgifiskur sölu
Símans á Mílu til fransks félags.
„Að sjálfsögðu geta svona viðskipti
aukið hættu á njósnum. Möguleik
inn er alltaf til staðar og þá þarf að
vera hægt að girða fyrir svoleiðis,“
segir Björn Leví Gunnarsson, þing
maður Pírata.
Samkeppniseftirlitið kveður söl
una jákvætt skref fyrir samkeppni.
„Viðskiptin með Mílu munu verða
til góðs og verða neytendum til hags
bóta,“ segir Þorgerður Katrín Gunn
arsdóttir, formaður Viðreisnar.
SJÁ SÍÐU 4
Salan á Mílu auki
hættu á njósnum
Björn Leví
Gunnarsson