Fréttablaðið - 16.09.2022, Qupperneq 4
ÍÞRÓTTAVIKAN MEÐ
BENNA BÓ
FÖSTUDAGA KL. 21.00
Þingmaður Pírata segir fulla
ástæðu til að óttast að erlend
njósnastarfsemi gæti orðið
fylgifiskur sölu Símans á Mílu
til fransks félags. Þegar um
ræði viðkvæma samskipta-
innviði þurfi að huga betur að
öryggi en nú sé gert. Síminn
fagnar sölunni.
bth@frettabladid.is
VIÐSKIPTI „Að sjálfsögðu geta svona
viðskipti aukið hættu á njósnum.
Möguleikinn er alltaf til staðar og
þá þarf að vera hægt að girða fyrir
svoleiðis, það á líka við um innlenda
aðila,“ segir Björn Leví Gunnarsson,
þingmaður Pírata.
Samkeppniseftirlitið hefur heim-
ilað sölu Símans á Mílu til franska
sjóðstýringarfyrirtækisins Ardian.
„Þegar um erlenda aðila er að
ræða erum við líka að ræða ítök
erlendra stjórnvalda sem koma
mögulega að rekstri og hagsmun-
um,“ segir Björn Leví.
Orri Hauksson, forstjóri Símans,
er ánægður með að söluferlinu sé
loks lokið. Margir fleiri hafa fagnað
þeirri niðurstöðu að Samkeppnis-
eftirlitið hafi fallist á kaup franska
félagsins á Mílu eftir viðræður sem
stóðu yfir mánuðum saman.
Samkeppniseftirlitið segir í til-
kynningu að breytt eignarhald á
Mílu og rof á eignatengslum við
Símann sé jákvætt skref fyrir sam-
keppni á fjarskiptamörkuðum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, er í hópi þeirra
sem telja viðskiptin til hagsbóta
fyrir neytendur. Hún minnir einn-
ig á að hún hafi gert athugasemdir
á sínum tíma um mikilvægi þjóðar-
öryggis.
„Mér fannst ríkisstjórnin ekki
hafa staðið vaktina í þeim efnum en
ég geri ráð fyrir að Samkeppniseftir-
litið hafi farið yfir alla þætti þessa
fákeppnismarkaðar. En viðskiptin
með Mílu munu verða til góðs og
verða neytendum til hagsbóta,“
segir Þorgerður Katrín.
Björn Leví bendir á nýlegt tilvik
þegar Bandaríkin fengu leyfi hjá
öðru ríki til að stinga inn netþjóni
til að njósna um Rússa. Full ástæða
sé til að vera vakandi, enda margt
enn á huldu um netnjósnir.
„Ef það er í lagi með reglur og
eftirlit er ekkert að óttast. En það er
of lítið vitað um stafrænar njósnir
sem jafnvel eru dregnar áfram af
þjóðríkjum. Við vitum allt of lítið
um stærð þessa hernaðar.“
Hér á landi er sá vandi að sögn
þingmannsins að íslenskar eftirlits-
stofnanir standa sig ekki sem skyldi.
„Almennt séð er eftirlitsiðnaður-
inn þannig á Íslandi að það eru sett-
ar reglur, en ekkert farið eftir þeim.
Ef eitthvað kemst upp er ekkert gert
nema kannski setja þá meiri reglur.
Ég sé þetta meira og minna í öllum
eftirlitsstofnunum hér á landi, það
er mikill skortur á ábyrgð.“
Eftir því sem næst verður komist
er það á könnu Fjarskiptastofnunar
og netlögregludeildar lögreglu að
sinna eftirlitinu. n
Segir söluna á Mílu skapa njósnahættu
Síminn lýsir
ánægju með
að söluferli
Mílu sé loks
lokið. Skiptar
skoðanir eru þó
um hvort salan
snertir mikilvæg
innviða- og
öryggismál fyrir
íslensku þjóð-
ina, á sama tíma
og viðskiptin
gætu orðið
neytendum til
hagsbóta.
MYND/AÐSEND
Þorgerður
Katrín Gunnars-
dóttir, formaður
Viðreisnar
bth@frettabladid.is
ALÞINGI Þingmenn Flokks fólksins
hafa lagt fram tillögu um að launa-
tekjur undir 400.000 krónum verði
skattfríar.
Vilja þeir persónuafslátt sem falli
niður við ákveðin efri mörk.
Breytingar verði á skiptingu
útsvars og tekjuskatts. Fullur
örorku-, endurhæfingar- og ellilíf-
eyrir tryggi lífeyrisþegum 400.000
krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði,
skatt- og skerðingarlaust. n
Skattleysismörk
hækki í fjögur
hundruð þúsund
gar@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL „Þetta varðar ekki
bara okkur í Mosfellsbæ heldur
okkur öll og spurningin er sú í
hvernig landi við viljum búa,“
segir Halla Karen Kristjánsdóttir,
formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar,
vegna tafa á því að hætt verði að
urða sorp á Álfsnesi.
Yfirmenn hjá Sorpu gengu á
fund bæjarráðs Mosfellsbæjar í
gær og fóru yfir stöðu mála vegna
urðunarstaðarins á Álfsnesi. Starf-
semin hefur lengi verið íbúum
Mosfellsbæjar þyrnir í augum
vegna slæmrar lyktarmengunar
sem stafar af lífrænum úrgangi
sem þar er enn urðaður þrátt fyrir
samkomulag eigenda Sorpu um að
finna annan stað.
„Bæjarráð Mosfellsbæjar lýsir
miklum vonbrigðum með að ekki
hafi tekist að f inna viðunandi
framtíðarlausn varðandi urðunar-
stað fyrir höfuðborgarsvæðið, sér-
staklega í ljósi þess að bæjarfélagið
hefur nú þegar í tvígang fallist á
áframhaldandi urðun í góðri trú
um að unnið væri að lokun,“ bókaði
bæjarráðið.
Bent var á að í viðauka við eig-
endasamkomulag Sorpu frá 6. júlí
2020 um lokun urðunarstaðarins
sé kveðið á um að áætlun um
aðgerðir sem tengjast lokuninni
skuli liggja fyrir í árslok 2022. Halla
Karen segir þetta ekki í sjónmáli og
vafasamt að náist að loka á Álfsnesi
2023 eins og ákveðið hafi verið og
útlit fyrir að fresta þurfi málinu í
þriðja sinn.
„Samkvæmt lögum skal engin
urðun á lífrænum úrgangi yfir-
leitt eiga sér stað frá 2025. Vonandi
náum við saman um að finna lausn
sem fyrst,“ segir formaður bæjar-
ráðs Mosfellsbæjar. n
Vonbrigði í Mosfellsbæ með seinagang vegna urðunar á Álfsnesi
Halla Karen
Kristjáns-
dóttir, formaður
bæjarráðs Mos-
fellsbæjar
MYND/AÐSEND
ragnarjon@frettabladid.is
ALÞINGI Halldóra Mogensen, þing-
maður Pírata, segir augljóst að lög-
festing beitingu nauðungar sé mál
sem barist verði gegn af stjórnar-
andstöðunni á nýju þingi.
„Heilbrigðisráðherra var í raun
rekinn til baka með málið á sein-
asta þingi þar sem honum láðist að
hafa samband við notendur,“ segir
Halldóra sem tekur þó fram að
stjórnarandstaðan hafi ekki enn séð
uppfærðan málarekstur ráðherrans.
„Það verður áhugavert að sjá
hvernig það lítur út og hvort búið sé
að taka tillit til sjónarmiða notenda
í málinu.“ n
Beiting nauðungar
verði ekki lögfest
Inga
Sæland
gar@frettabladid.is
ÞJ Ó Ð K I R K J A N Va r a for maðu r
Prestafélags Íslands, séra Eva Björk
Valdimars dóttir, segir ákvörðun
biskups um að víkja séra Gunn-
ari Sigurjónssyni úr starfi sem
sóknarpresti í Digraneskirkju
vera nauðsynlega. Þetta kom fram
á Fréttavaktinni á Hringbraut í gær-
kvöldi.
Nefnd á vegum kirkjunnar telur
séra Gunnar hafa gert sig sekan
um kynferðislega áreitni gagnvart
konum sem síðan kvörtuðu undan
framkomu hans. Félag prestvígðra
kvenna hélt fund um málið í Lang-
holtskirkju í gærkvöld. Var honum
ekki lokið áður en Fréttablaðið fór
í prentun.
Orð sem formaður Prestafélags-
ins, séra Arnaldur Bárðarson, lét
falla á Útvarpi Sögu fyrir viku um
að séra Gunnar væri einnig þolandi
í áðurnefndu máli, vöktu óánægju
innan prestastéttarinnar eins og
komið hefur fram. Hefur Arnaldur
beðist afsökunar vegna þessa og
sagt miður að hann hafi sært fólk.
„Hann hélt að málið væri öðru-
vísi en hefur komið í ljós núna, eftir
að við sáum til kynningu biskups,“
segir séra Eva Björk sem aðspurð
kveður það ekki sitt að dæma hvort
af sökunar beiðni Arnaldar væri
nóg. „Ef ég er að fara að gefa út yfir-
lýsingu um það er ég að taka valdið
af konunum sem af sökunar beiðnin
beinist að,“ sagði hún á Fréttavakt-
inni í gærkvöldi. n
Nauðsynlegt að víkja séra Gunnari
Séra Eva Björk
Valdimarsdóttir,
varaformaður
Prestafélags
Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Að sjálfsögðu geta
svona viðskipti aukið
hættu á njósnum.
Möguleikinn er alltaf
til staðar.
Björn Leví
Gunnarsson,
þingmaður
Pírata
4 Fréttir 16. september 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ