Fréttablaðið - 16.09.2022, Side 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 16. september 2022
Sveppir gegna gífurlega forvitni-
legum hlutverkum í náttúrunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
jme@frettabladid.is
Dagurinn í dag, föstudagurinn
16. september, er réttilega helgaður
íslenskri náttúru. Þessi ákvörðun
var tekin sama dag árið 2010, á 70
ára afmæli Ómars Ragnarssonar,
eins þekktasta náttúruunnanda
landsins. Í tilefni dagsins býður
Grasagarðurinn upp á hádegis-
göngu í Grasagarði Reykjavíkur.
Að þessu sinni fá sveppir,
stórir sem smáir, þrútnir sem mjóir,
þurrir sem slímugir, að skína í sviðs-
ljósinu, enda er haustið ókrýndur
konungur sveppaldina og ófáir
sem leggja leið sína í nærliggjandi
náttúrusvæði til þess að tína þessi
gómsætu jarðaldin til átu.
Fjölbreytt funga Íslands
Í göngunni verður meðal annars
fjallað um lifnaðarhætti og fjöl-
breytileika sveppa. Einnig verður
gestum kennt hvernig þekkja megi
matsveppi í náttúrunni. Þá verður
kíkt á niðurbrotssveppi og gestir
fræðast einnig um hið heillandi
kerfi sveppróta í jarðveginum og
þann fjölbreytta tilgang sem það
gegnir í náttúrunni.
Jóhannes Bjarki Urbancic Tómas-
son líffræðingur leiðir gönguna
sem hefst stundvíslega klukkan 12
á hádegi við aðalinngang Grasa-
garðsins og tekur um hálftíma. Hér
er klárlega um að ræða fullkomna
dægrastyttingu, sem hentar einnig
fyrir vinnandi fólk sem hefur tök á
því að skjótast aðeins í hádeginu.
Þátttaka er ókeypis og öll eru vel-
komin. n
Sveppaskoðun
í hádeginu
Hlín er að vinna að fjölda spennandi verkefna með ólíku listafólki og er meðal annars að fara að gefa út ljóðadisk, þar sem hún leikles frumsamin ljóð við tón-
list eftir tónlistarmanninn Vasilis Chountas, eða Morton. MYNDIR/AÐSENDAR
Náðist að bjarga tónaljóðunum
úr skógareldum í svartamyrkri
Söngkonan og rithöfundurinn Hlín Leifsdóttir býr í Grikklandi þar sem hún hefur haft nóg
fyrir stafni. Hún er meðal annars að gefa út ljóðadisk með tónlist og leikur í söngleik. Ljóð-
unum hennar var naumlega bjargað frá skógareldum sem eru tíðir þar í landi. 2