Fréttablaðið - 16.09.2022, Síða 38
Það var samt mjög
spennandi og ógeðs-
lega skemmtilegt að
koma á tökustaði og
vinna með öllu þessu
fólki.
Ísabella
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Jón Ívar Vilhelmsson, markaðsfulltrúi
Sími: 550 5654 / jonivar@frettabladid.is
Fyrirtækjagjafir
Miðvikudaginn 12. október kemur út sérblaðið
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Veglegt sérblað um jólagjafir til starfsmanna
og viðskiptavina fyrirtækja.
Leikkonurnar ungu Ísa-
bella Jónatansdóttir og Vala
Snædal Sigurðardóttir leika
í dans- og söngvamyndinni
Abbabbabb! sem er frumsýnd
í dag. Þær eru sammála um að
það hafi verið alveg ógeðs-
lega gaman að koma á sett og
geta ekki beðið eftir að sýna
vinum sínum myndina.
benediktboas@frettabladid.is
Kvikmyndin Abbababb! verður
frumsýnd í dag en Nanna Kristín
Magnúsdóttir leikstýrir myndinni
sem byggir á samnefndri plötu Dr.
Gunna. Þær Ísabella Jónatansdóttir,
sem er 12 ára, og Vala Snædal Sig-
urðardóttir, sem er 15 ára, fara með
tvö veigamestu hlutverkin í mynd-
inni. Ísabella leikur Hönnu og Vala
leikur Systu sjóræningja.
Abbababb! er fyrsta bíómynd
Ísabellu sem hefur áður leikið í
auglýsingu og stefnir á að verða leik-
kona. Hún segir að eftir að hún fór í
prufurnar hafi tekið við löng bið til
að fá að vita hvort hún hefði fengið
hlutverk í myndinni.
„Ég beið í nokkrar vikur eftir
svari. Ég var alveg smá leið á tímabili
því mig langaði mikið að prófa að
leika í bíómynd. Svo klippti ég hárið
á mér og rétt á eftir hringdi Nanna
í mömmu og sagði að ég hefði verið
valin til að leika aðalhlutverkið.“
Flutti til ömmu
Þær mæðgur voru búnar að ákveða
að flytja til Argentínu í nokkra mán-
uði en hlutverkið setti strik í þann
reikning og Ísabella varð eftir hjá
ömmu sinni á Íslandi. „Það var gott
að búa hjá ömmu meðan mamma
var í Argentínu,“ segir hún og viður-
kennir að hún hafi verið smá feimin
fyrst en Nanna hafi náð því besta út
úr hópnum.
„Fyrst þegar ég byrjaði var ég
smá feimin að taka upp en það var
samt mjög spennandi og ógeðslega
skemmtilegt koma á tökustaði og
vinna með öllu þessu fólki. Nanna
er alveg æðislegur leikstjóri og það
var gaman að gera allar senurnar
því við krakkarnir hlógum svo
mikið saman.“
Ísabella stefnir að því leynt og
Spenntar að sýna
vinkonunum
sjálfar sig í bíó
Ísabella Jónatansdóttir, aðalleikkona Abbababb! fær hér ráð frá Nönnu Krist-
ínu sem var að leikstýra sinni fyrstu bíómynd í fullri lengd. MYNDIR/AÐSENDAR
Það er stundum
bið á setti og þá
er gott að láta
tímann líða með
því að rífa í spil.
Hér er Ísabella
með fjögur spil
á hendi.
Vala Sigurðardóttir, Messíana Baldvinsdóttir og Elín Birna Yngvadóttir.
Um Abbababb!
Þegar Hanna og vinir hennar
í hljómsveitinni Rauðu
Hauskúpunni uppgötva að
óprúttnir náungar ætla að
sprengja upp skólann á loka-
ballinu, þurfa þau að beita
öllum sínum ráðum til að ná
sökudólgnum.
Dr. Gunni gerði barnaplöt-
una Abbababb! fyrir 25 árum
við miklar vinsældir. Áratug
síðar sló samnefndur söng-
leikur í gegn og og nú lifnar
sagan aftur við í bíómynd
sem Nanna Kristín byggir
lauslega á söngleiknum.
ljóst að verða leikkona í fram-
tíðinni og ekki minnkaði áhuginn
við að leika í kvikmynd. Hún er
líka spennt að fara með vin konu-
hópnum á myndina. „Við ætlum
að fara næstum allar stelpurnar í
bekknum mínum á frumsýninguna
sem verður mjög skemmtilegt.“
Skólafélagarnir spenntir
Vala tekur undir þetta en hún er í
10. bekk í Hagaskóla. „Þau eru mjög
spennt að sjá. Þau eru búin að spyrja
mikið um þetta undanfarna daga og
vikur,“ segir Vala sem ætlar í góðra
vina hópi í bíó.
„Við erum að fara saman vina-
hópurinn. Það verður smá stress-
andi að sjá sig á hvíta tjaldinu því
ég leik karakter sem er allt öðruvísi
en ég er,“ segir hún um pönkarann
Systu sjóræningja. „Við erum alger-
ar andstæður í öllu en ég er mjög
spennt að sjá og heyra hvað vinum
mínum finnst um þetta,“ segir hún.
Vala er að æfa dans hjá Birnu
Björns og frétti þar af prufunum.
Henni fannst lítið mál að dansa en
aðeins erfiðara að syngja og leika.
„Þetta var allt mjög skemmtilegt og
mjög lærdómsríkt. Það var gaman
að vinna með krökkum á mínum
aldri sem höfðu, eins og ég, ekkert
gert þetta áður.
Fólkið sem hafði gert þetta áður
og var öruggt í þessu umhverfi gerði
mig öruggari. Þetta var eitthvað nýtt
fyrir mig, bæði erfitt og stressandi
en samt svo skemmtilegt,“ segir
Vala. n
22 Lífið 16. september 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ