Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.10.2022, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 04.10.2022, Qupperneq 1
Þetta er áminning fyrir okkur sem samfélag. Guðbjörg Páls- dóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga 2 2 0 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 4 . O K T Ó B E R 2 0 2 2 Tungumálið og vídeólistin Natan missti aldrei trúna Menning ➤ 14 Lífið ➤ 16 Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/skodasalur Allt að 544 km drægni (WLTP) Fæst einnig fjórhjóladrifinn! Enyaq iV Alrafmagnaður Áb. Sigurður Gunnlaugsson löggiltur fasteignasali 520 9595 Við styrkjum Bleiku slaufuna Álag í starfi og launakjör eru meginástæða þess að mikill meirihluti starfandi hjúkr- unarfræðinga hefur íhugað að hætta störfum á síðustu tveimur árum. ser@frettabladid.is KJARAMÁL Tveir af hverjum þremur starfandi hjúkrunarfræðingum hér á landi hafa íhugað af alvöru að hætta störfum á síðustu tveimur árum, samkvæmt nýrri og viða- mikilli könnun Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, en svör bár- ust frá hátt í tvö þúsund félags- mönnum. „Það sem vekur athygli í þessari könnun er að yfir sextíu prósent segjast almennt ánægð í starfi, en samt hafa svo margir hugleitt að láta gott heita,“ segir Guðbjörg Páls- dóttir, formaður félagsins. „Fólki er hlýtt til fagsins, en aðstæður eru að buga það,“ bætir hún við. Alls voru 2.080 félagsmenn spurðir í könnuninni og þar af bárust svör frá 1.904, en 176, eða 8,5 prósent, svöruðu ekki. Af þeim sem svöruðu kváðust 1.272, eða 66,8 prósent, hafa íhugað af alvöru að hætta í starfi á síðustu tveimur árum, en 632 sögðust ekki hafa gert það, eða 33,2 prósent. Meginástæða þess að hjúkrunar- fræðingar íhuga að hætta störfum er álag í starfi, en 42 prósent af Sjötíu prósent hjúkrunarfræðinga hafa íhugað að hætta störfum þeim hópi nefndu það. Ívið færri, eða 33,7 prósent, sögðu að til- drögin mætti rekja til launakjara, 11,1 prósent bar við bágum stjórn- unarháttum. Þá vekur athygli að 75 manns, eða 5,9 prósent, sögðu að ógn við öryggi þeirra á vinnustað hefði vakið upp fyrrgreindar hugmyndir um að láta af störfum. „Könnunin af hjúpar aðstæður fagfólksins,“ segir Guðbjörg. „Yfir fimmtíu prósent svarenda segja að þau hafi sjaldan, stundum eða aldr- ei talið sig geta tryggt lágmarks- öryggi sjúklinga í upphafi vaktar. Þetta er áminning fyrir okkur sem samfélag,“ segir Guðbjörg Páls- dóttir. n LÖGREGLUMÁL Maður á fimmtugs- aldri lést eftir árás með eggvopni á Ólafsfirði í fyrrinótt. Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók fjóra vegna málsins og fór fram á gæslu- varðhald yfir þremur þeirra. Bæjarbúar á Ólafsfirði segja hinn látna hafa verið gestkomandi í hús- inu og hafa tengst hinum handteknu. „Við erum harmi slegin öll sem eitt,“ segir Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri Fjallabyggðar. SJÁ SÍÐU 4 Manndráp á Ólafsfirði Við erum harmi slegin öll sem eitt. Sigríður Ingvarsdóttir, bæjarstjóri Fjallabyggðar Kyrrðarstund fór fram í Ólafsfjarðarkirkju í gærkvöldi vegna manndrápsins í fyrrinótt. Samfélagið á Ólafsfirði, sem telur aðeins á áttunda hundrað íbúa, er slegið vegna málsins. MYND/HELGI JÓNSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.