Fréttablaðið - 04.10.2022, Qupperneq 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
starri@frettabladid.is
Auður Björt Skúladóttur hefur
vakið mikla athygli í prjónaheim-
inum hér á landi enda aðeins 31
árs gömul og þykir fara ótroðnar
slóðir í hönnun sinni.
Í ágúst gaf hún út aðra prjóna-
bókina sína sem ber heitið Sjöl
og teppi – eins báðum megin,
en bókin inniheldur á þriðja tug
prjónauppskrifta að sjölum og
barnateppum. „Allt í bókinni er
eins báðum megin og því engin
ranga, heldur fallegt báðum megin.
Sjölin og teppin innihalda meðal
annars tvöfalda kaðla, garðaprjón
og gatamunstur sem ég hef verið
að þróa saman síðustu ár. Sjölin
og teppin eru frá einföldum upp-
skriftum upp í f lóknari svo allir
ættu að geta fundið sér eitthvað
við hæfi en ég sæki innblástur í
sjölin og teppin meðal annars til
Hjaltlandseyja.“
Hún segir bókina vera mjög
fallega og uppskriftirnar vera
þægilega settar upp. „Í henni eru
bæði texti og munsturmyndir til
að hjálpa prjónaranum að skilja
uppskriftina. Oft er talað um að
lesa uppskriftina alveg yfir áður
en byrjað er að prjóna en það á
ekki við um mínar uppskriftir. Þú
byrjar á byrjun og prjónar hvert
skref fyrir sig þar til þú ert kominn
að lok uppskriftar og þá er prjón-
lesið tilbúið.“
Öll myndbönd á einum stað
Samhliða útgáfu bókarinnar
opnaði Auður vefinn audurbjort. is
þar sem hún birtir myndir og
skýringar- og kennslumyndbönd
sem snerta prjónauppskriftir
bókarinnar. „Mér hefur alltaf þótt
pínu erfitt að skrifa í orðum hreyf-
ingar og lýsingar hvert prjónninn
á að fara. Því hef ég alltaf útbúið
myndbönd með uppskriftunum
til að sýna hvað ég er að meina
svo enginn misskilningur eigi sér
stað.“
Með útgáfu bókarinnar langaði
hana að hafa myndböndin öll á
einum stað þar sem prjónarinn
gæti leitað að réttu myndbandi
á auðveldan hátt. „Á vefnum eru
myndbönd af öllum tækniatriðum
sem koma við sögu í bókinni
ásamt mismunandi prjónaað-
ferðum. Einnig má finna myndir
af öllum sjölunum og teppum
í bókinni inni á vefnum ásamt
helstu upplýsingum um stærð,
garn og um prjónlesið sjálft.“
Móðirin var fyrirmynd
Auður Björt, sem hefur lokið
meistaraprófi í textíl og hönnun
frá Menntavísindasviði HÍ, segist
hafa prjónað frá því hún man
eftir sér. „Móðir mín prjónar mjög
mikið og því má segja að ég hafi
fetað í fótspor hennar. Á grunn-
skólaárum mínum prjónaði ég
mikið en var þá laumuprjónari
og var ekkert að flagga því. Ég
gerði fyrsta kaðlaverkefnið mitt í
grunnskóla og ákvað að gera heila
kaðlapeysu með fullt af
köðlum. Enn í dag
skil ég ekki hvernig
ég, sem táningur,
gat prjónað þessa
peysu. Í menntaskóla
hægðist aðeins á
prjónaskapnum þótt
ég hafi alltaf haft ein-
hver verkefni í gangi. Á
sama tíma kynntist ég
manninum mínum en
hann gaf mér fyrsta
prjónasettið í 20 ára
afmælisgjöf. Fram
að því hafði ég notað
prjónana hennar
mömmu.“
Áhugi og þekking
hennar jókst jafnt
og þétt gegnum árin,
fyrst í starfi sínu í prjónahorninu
í Fjarðarkaupum og seinna í
versluninni Handprjón. „Ég lærði
heilmikið í starfinu hjá Rokku og
þurfti að sanna mig fyrir eldri kyn-
slóðinni. Þar jók ég meðal annars
þekkingu mína á tækniatriðum og
fór að reyna meira á sjálfan mig.
Ég uppgötvaði fljótlega að ég sá
prjónið öðruvísi en aðrir og hef í
raun þrívíddarsjón yfir prjónið.
Ég er lesblind og greindist seint.
Þrátt fyrir það gekk mér vel í
skóla og stærðfræði mitt sterkasta
fag. Styrkleikar lesblindu er oft
sterk sjónræn færni og skapandi
hugsun sem ég finn að hjálpar
mér í prjónalífinu. Stærðfræðin
kemur svo sterk inn þar sem mikið
í hönnun prjóns byggir á stærð-
fræði.“
Seinna meir hóf hún störf hjá
Handprjóni þar sem þekking sín
á prjónaskap jókst enn meira auk
þess sem hún segist hafa kynnst
prjónaheiminum nánar.
Margt heillandi við prjónana
Auður segir svo margt heilla við
prjónana. „Þetta er svo
mikil núvitund og í raun
galdrar, að snúa bandi
utan um prjón aftur og
aftur og útkoman er
eitthvert prjónales. Mér
finnst ég ná góðri hvíld,
bæði líkamlegri og and-
legri með því að prjóna
og samtímis fæ ég útrás
fyrir listsköpun mína.“
Hún segist einnig ná
að núllstilla sig og ekki
skemmi að útkoman verði
að einhverju sem bæði
hún geti notið góðs af og
fólkið í kring um hana.
„Það er eitthvað svo
heillandi og spennandi
við það að byrja á nýju
verkefni með gullfallegt
garn og hefjast handa á þessari
vegferð að skapa eitthvað fallegt.“
Hönnunarferillinn hófst í Rokku
Það var einmitt í Rokku í Fjarðar-
kaupum sem hönnunarferill Auðar
hófst. „Fyrsta prjónlesið sem ég
hannaði var lítil lopapeysa. Það var
ekki mikið að frétta fyrst en um
2014 tók ég að mér handavinnu-
þáttinn fyrir Húsfreyjuna og sá um
þrjú blöð. Þar hannaði ég uppskrift-
ir og horfði á þetta sem smá tilraun.
Það gekk ótrúlega vel en á sama
tíma var ég að klára textílkennara-
námið og skrifa fyrstu bókina mína
sem heitir Lopapeysu prjón.“
Hugmyndin að bókinni Sjöl og
teppi – eins báðu megin, kviknaði
þegar Auður var starfandi í Hand-
prjóni. „Þá var ég ólétt og var að
prjóna teppi á ófæddan son minn.
Mig langaði að gera teppi í þremur
litum en vandamálið var að gera
teppi sem yrði eins báðum megin
svo maðurinn minn myndi nú ekki
snúa því vitlaust. Út varð fyrsta
teppauppskriftin mín sem er kaðla-
bútateppið sem er í fjórum útgáfum
í bókinni.“
Einblínir á bókina
Einkennismerki hönnunar Auðar
er að prjóna eins báðum megin.
„Segja má að ég fari mínar leiðir og
skapi eitthvað nýtt þegar ég hanna.
Ég hanna mikið út frá aðferðum
og formum en mörg af sjölunum
hafa orðið til í höfðinu þegar ég
hugsa um form og útfærslur. Ég
vinn mikið með tvö falda kaðla,
garða prjón og gata prjón inni í
garða prjóni en allar þessar aðferðir
eru þeim eiginleikum gæddar að
vera eins báðum megin. Því tek ég
flókna hluti og útfæri þá á ein-
faldan hátt.“
Hún segist alltaf eitthvað nýtt
vera að fæðast í höfðinu. „Í hvert
skipti sem ég kynni bókina mína
fæ ég hugmynd að næsta sjali eða
teppi. En þessa dagana ætla ég
þó að einbeita mér sem mest að
bókinni og kynna hana vel fyrir
landsmönnum.“ n
Sjalið Sumarboðið úr smiðju Auðar Bjartar er einstaklega litfagurt og fallegt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sjölin Röst og Arfleifð. MYND/CHRISTINE EINARSSON
Sjalið Stilla
er fallegt og
gengur allt árið
um kring.
MYND/CHRISTINE
EINARSSON
Kaðlabútateppi og dúlluteppi. MYND/CHRISTINE E.
Yngra barn
Auðar er hér
vafið í teppið
Haustró.
2 kynningarblað A L LT 4. október 2022 ÞRIÐJUDAGUR