Fréttablaðið - 04.10.2022, Page 16
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Nýlega lauk María Péturs-
dóttir miklum breytingum
á eldhúsi sínu. Svarti
liturinn fær heldur betur að
njóta sín og rýmið er núna
meira í stíl við hæðina.
María Pétursdóttir frá Vest-
mannaeyjum lifir og hrærist í
heimilispælingum og hönnun að
eigin sögn. Nýlega fór hún, ásamt
eiginmanni sínum, í miklar fram-
kvæmdir í eldhúsinu en hjónin
keyptu húsið árið 2007.
„Við eigum stórt hús á þremur
hæðum sem er um 420 fermetrar
plús ris. Þegar við keyptum húsið
var allt eins og það leggur sig rifið
út enda hafði lítið verið gert frá
því það var byggt um 1943. Sem
dæmi var eldhúsið lokað rými
með einni hurð. Á þeim tíma
settum við upp hvíta háglans eld-
húsinnréttingu frá Kvik.
Þetta var vönduð og góð innrétt-
ing sem hefur staðið í eldhúsinu
í fimmtán á og er enn í 100%
standi. Mig langaði samt að skipta
yfir í dekkri innréttingu í stíl við
afganginn af hæðinni.“
Eldri innrétting nýtt
Hún segist vera nýtin og því hafi
ekki komið til greina að henda út
eldri innréttingunni. „Enda var
hún í fullkomnu lagi og skúffur
og skápar alveg eins og þeir eiga
að vera. Ég vildi láta filma hana
með svartri viðarfilmu og lét fag-
fólk um verkið því þetta var ekki
hugsað sem bráðabirgðalausn.“
Hjónin tengdu gegnheila hnotu-
borðplötu við eyjuna sem var fyrir
í eldhúsinu sem áður gegndi hlut-
verki borðstofuborðs. „Hún var
pússuð upp og olíuborin og leit þá
út eins og ný. Auk þess létum við
sérsmíða fót undir hana.“
Mjög sátt við útkomuna
María setti veggfóður á eldhús-
vegginn og setti vörn yfir svo auð-
velt væri að þrífa hann. „Einnig
skipti ég út efri skápnum því ég
vildi hafa hann hærri og svartan
að innan. Háfurinn fékk að fjúka
og við keyptum tvo nýja ofna,
ný ljós og ný sæti á stólana en
notuðum fæturna áfram enda úr
hnotu sem er gegnumgangandi í
húsinu á gólfum. Svo skiptum við
út minni raftækjum fyrir svört
tæki.“
Framkvæmdirnar tóku um
hálft ár enda unnar í smáum
skrefum yfir tímabilið. „Loka-
skrefið var að filma eldhúsinn-
réttinguna og þá var allt klárt. Ég
er sjúklega sátt við þessa útkomu
og enn sáttari við að getað nýtt
það sem fyrir var sem þýddi bæði
minna rask á heimilinu og mun
minni útgjöld.“ n
Svart og svalt eldhús í Vestmannaeyjum
Minni raftækjum var skipt út fyrir svört tæki.
Svarti liturinn er allsráðandi í nýja eldhúsinu. Efri skápum var skipt út því
hjónin vildu hærri skáp. Háfurinn fékk einnig að fjúka. MYNDIR/AÐSENDAR
Nýjar sessur
voru settar á
stólana en fæt-
urnir, sem eru úr
hnotu, fengu að
halda sér.
Fjárfest var í tveimur nýjum svörtum ofnum sem falla
skemmtilega inn í svörtu innréttinguna.
Holið og eldhúsið tengjast saman á fallegan hátt.
Svona leit eld-
húsið út þegar
María og eigin-
maður hennar
keyptu húsið
árið 2007.
Borðplata úr hnotu var tengd við eyjuna í eldhúsinu.
Ég er sjúklega sátt
við þessa útkomu
og enn sáttari við að geta
nýtt það sem fyrir var
sem þýddi bæði minna
rask á heimilinu og mun
minni útgjöld.
Margrét Pétursdóttir
4 kynningarblað 4. október 2022 ÞRIÐJUDAGURELDHÚS