Fréttablaðið - 04.10.2022, Page 28
Eldhúsverkin eru skemmtilegri
þegar skipulagið er gott.
thordisg@frettabladid.is
Reglubundin tiltekt og þrif í eld-
húsinu auka ánægju og vellíðan
íbúanna. Af og til þarf að taka til
í eldhússkápunum og henda því
sem er fallið á tíma, þvo það sem
safnað hefur fitu og ryki, og losa
sig við tæki og tól sem eru aldrei
notuð, því það er óþarfa eyðsla á
skápaplássi. Komum þeim frekar
á betri stað þar sem þau nýtast
einhverjum.
Geymum einungis áhöld og
tæki á borðinu sem notuð eru
daglega. Geymum borðbúnað
og áhöld nálægt þar sem það er
notað. Skurðarbretti, hnífa og
f lysjara nálægt ruslafötunni. Glös
nálægt ísskápnum og svo fram-
vegis. Hlutir sem notaðir eru einu
sinni á ári, svo sem í jólabakstur,
ættu að vera geymdir í geymslu.
Munum að merkja innihald.
Setjum plastfilmu á efri skápa
sem ná ekki upp í loft. Þá þarf
ekki að skrúbba fituna af heldur
einfaldlega skipta um plastfilmu
öðru hvoru.
Notum innanverðar skápa-
hurðir til að hengja upp áhöld
með festingum eða krókum.
Sumir skápar nýtast illa því það er
of langt á milli hillna en hægt er
að kaupa hilluefni og setja auka-
hillur í skápa. n
HEIMILD: LEIDBEININGASTOD.IS
Fínt í eldhúsinu
sandragudrun@frettabladid.is
Fljótleg aðferð til að skera út fal-
lega jafna kartöflubáta er að nota
eplaskera. Byrjið á að skera aðeins
af enda kartöflunnar til að hún
standi betur á borðinu. Svo er bara
að þrýsta eplaskeranum í gegnum
kartöfluna.
Ef deigið hefast illa þegar þú
ert að baka, er sniðugt að skella
því inn í ofn, en ekki kveikja á
ofninum. Til að fá hita í ofninn er
gott að setja pott með sjóðandi
vatni á neðstu grindina og deigið á
næstu grind fyrir ofan. Deigið ætti
að hefast hraðar.
Til að forða ísnum frá að bráðna
ef leiðin heim úr búðinni er löng,
má vefja ísdollunni inn í bólu-
plast og ísinn helst frosinn í marga
klukkutíma. En ekki henda bólu-
plastinu, endurnýtið það aftur og
aftur. n
Eldhúsráð
Fallegt eldhús er mikil heimilisprýði. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
elin@frettabladid.is
Áður en ráðist er í að skipta út eld-
húsinu þarf að taka margar ákvarð-
anir. Fólk þarf að gefa sér tíma til að
skoða mismunandi birgja og fá inn-
blástur, jafnvel þótt fjárhagsáætl-
unin leyfi ekki mjög dýra innrétt-
ingu. Oft skipta smáatriðin mestu
máli og þess vegna er gott að hafa
innanhússhönnuð með sér í skipu-
laginu. Einnig er gott að setja þarfir
sínar á blað, hvað er það sem ég vil
hafa í kringum mig í eldhúsinu?
Eldhúsið þarf að hugsa til fram-
tíðar. Innréttingin þarf að duga
næstu áratugina. Gott vinnupláss
er mikilvægt og sömuleiðis að hafa
ekki langt á milli eldavélar og vasks-
ins. Það þarf að vera góður skápur
fyrir potta og pönnur, sömuleiðis
fyrir endurvinnslutunnur. Þegar
litur er valinn getur verið flókið að
velja. Einnig hvernig útlit höfðar til
manns, á að vera sveitarómantík í
loftinu eða mínímalskur stíll?
Ekki ætti þó að hlaupa eftir
tískustraumum. Taktu með þér
sýnishorn heim og skoðaðu hvernig
liturinn hentar birtunni á heimil-
inu. Grár litur getur til dæmis verið
öðruvísi í stórri verslun en í litlu
eldhúsi. Hann gæti allt eins litið út
sem blár þegar komið er heim.
Góð lýsing í eldhúsinu er
nauðsynleg. Á meðan unnið er í
eldhúsinu þarf sterkt vinnuljós en
þegar hægist um er gott að hafa kósí
lýsingu með dimmer. n
Þegar skipt er um eldhúsinnréttingu
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Virka daga 10–17
Laugardaga 11-15
20% afsláttur af öllum
innréttingum út október.
H j a r t a h e i m i l i s i n s
Við hönnum innréttingar að þínum þörfum.
8 kynningarblað 4. október 2022 ÞRIÐJUDAGURELDÚS