Fréttablaðið - 04.10.2022, Síða 34
Ég hugsa
að þegar á
reynir sé
tungu-
málið á
vissan hátt
það sem
skilgreinir
okkur
mennina.
Það er
rótin og
kjarninn í
því sem
við erum.
Gary Hill er einn þekktasti
vídeólistamaður Banda-
ríkjanna. Listasafn Árnesinga
sýnir nú verk hans í samtali
við verk Steinu og Woody
Vasulka á sýningunni Summa
& Sundrung.
Á sýningunni Summa & Sundrung
tef lir Listasafn Árnesinga saman
verkum eftir þrjár goðsagnir úr
heimi vídeólistarinnar, þeim Gary
Hill, Steinu og Woody Vasulka.
Hjónin Steina og Woody Vasulka
eru Íslendingum vel kunn en verk
þeirra hafa oft verið sýnd hérlendis
en þetta er í fyrsta sinn sem verk
Gary Hill eru sýnd á Íslandi.
Gary Hill er fæddur árið 1951
og ólst upp í Kaliforníu hvar hann
stundaði hjólabretti og brimbretti
af kappi á yngri árum. Gary byrjaði
að gera vídeólist á 8. áratugnum og
kynntist Steinu og Woody Vasulka í
lok þess áratugar.
„Við vorum bara meðvituð um
verk hvert annars. Þau kenndu við
Center for Media Studies í háskól-
anum í Buffalo og þegar þau ákváðu
að taka kennsluleyfi og fara til Santa
Fe báðu þau mig um að leysa þau af.
Þetta var í kringum 1979–80,“ segir
hann.
Finnurðu til skyldleika á milli
þinna verka og verka Steinu og
Woody Vasulka?
„Já, algjörlega, sérstaklega þarna í
gamla daga af því þá var vídeólistin
á vissan hátt svo ný. Þessi vinskapur
veitti klárlega innblástur og hvatti
mann til að prófa nýja hluti. Þau
unnu oft með mjög hæfileikaríkum
tæknimönnum og ég endaði á því
að vinna með gaur sem heitir Dave
Jones sem var líka frábær tækni-
maður. Það var mikil áhersla þá að
búa til nýja hluti. Það minnir mig
svolítið á það í dag þegar við erum
með Arduino-smátölvur, algrím og
alls konar tækni sem flokkast undir
nýmiðlun.“
Samband hljóðs og myndar
Á Summa & Sundrung er hinu
gagnkvæma rannsóknarsambandi
hljóðs og myndar gert hátt undir
höfði. Nýjasta vídeóinnsetning
Steinu, Parallel Trajectories frá
2022, er sett upp og sjaldséð verk
eftir Woody Vasulka á borð við
Peril in Orbit og 360 degree space
records eru einnig til sýnis. Gary
Hill skapaði nýtt verk sérstaklega
Bandaríski vídeólistamaðurinn Gary Hill vinnur gjarnan með samspil tungumáls og myndar í verkum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Gary Hill
skapaði nýtt
verk sérstaklega
fyrir sýninguna
sem ber heitið
None of the
Above, þar sem
hann flytur ljóð-
rænan texta.
MYND/AÐSEND
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
Vídeóið
er vírus
fyrir sýninguna sem ber heitið None
of the Above, þar sem listamaður-
inn kemur fram í eigin persónu og
flytur ljóðrænan texta.
„Verkið á uppruna sinn í töluðum
texta sem er nokkuð abstrakt og
er sjálfsmeðvituð hugleiðing um
tungumálið. Þetta er ekki hrein
endurtekning en vísar í eindir og
núll. Það eru ýmis viðfangsefni sem
er greitt úr og er svo ruglað saman
aftur. Síðan er þetta allt klippt
saman en þó ekki á hefðbundinn
hátt. Ég notaði gamalt forrit sem
vinur minn Dave Jones bjó til fyrir
um 25 árum með DOS-tölvustýri-
kerfinu,“ segir Gary.
Rafræn málvísindi
Gary Hill er þekktur fyrir að blanda
saman tungumálinu og vídeólist.
Hann bjó til hugtakið „rafræn mál-
vísindi“ sem vísar í það hvernig
hljóð „skrifar“ vídeómyndina og
undirstrikar þetta með því að nota
gjarnan ljóðræna texta í vídeó-
verkum sínum.
„Ég hugsa vanalega ekki um þá
sem ljóð þó ég geti skilið af hverju
fólk myndi gera það. Þeir eru meira
í átt að setningarbyggingu, vitandi
það að ég muni klippa þá í sundur á
ákveðinn hátt. Tungumálið verður
eiginlega til af sjálfu sér þegar ég
skrifa. Það er innhverft og með
mörgum orðaleikjum,“ segir hann.
Spurður um hver sé tengingin á
milli tungumáls og vídeómyndar í
verkum hans segir Gary:
„Engin sérstök, það er bara mitt
val,“ segir hann og hlær. „Það fyrsta
sem kemur í hugann þegar þú spyrð
að þessu er sjónvarp en augljóslega
er það ekki það sem ég geri. Ég hugsa
að ég noti tungumálið af því það er
talað og út af tengslum þess við lík-
amann og loftið. Samfundur líkam-
leikans við hina hverfulu mynd. Ég
nota það gjarnan til að af byggja
myndina, svo hún sé ekki óvirk, það
mætti segja að tungumálið ráðist á
myndina.“
Tungumálið kjarni mannsins
Hvað varðar samband tungumáls
og vídeólistar vísar Gary í lag gjörn-
ingalistakonunnar Laurie Ander-
son, Language is a Virus frá 1986.
„Laurie Anderson vitnaði þar í
William Burroughs sem sagði að
tungumálið væri vírus en ég held
að ég myndi segja að myndin væri
hinn raunverulegi vírus. Ég hugsa
að þegar á reynir sé tungumálið
á vissan hátt það sem skilgreinir
okkur mennina. Það er rótin og
kjarninn í því sem við erum.“
Þú hefur verið virkur í þessari
senu í meira en hálfa öld, hvað
finnst þér hafa breyst á þeim tíma?
„Í gegnum árin hefur tæknin
orðið sífellt minna mikilvæg. Hún
er vissulega enn áhugaverð, jafn-
vel fyrir fólk sem er ekki að pæla í
því hvernig hlutir eru samansettir.
En ég hef orðið meira og meira
áhugasamur um hugmyndirnar
sjálfar. Það rými sem er núna mest
opið fyrir krefjandi hluti er held ég
gagnvirkni, tölvur og allt það. En
engu að síður er ég meira í heim-
spekilegum vangaveltum, að spyrja
spurninga um tilveruna og hvað
eina.“ n
tsh@frettabladid.is
Ljóðskáldið Ágúst(a) sendir frá sér
sína fyrstu ljóðabók um miðjan
október sem ber titilinn Hrjóstugt
hálfsumarland. Bókin kemur út á
vegum Regínu bókaútgáfu sem er
að sögn Ágúst(u) hugarfóstur þjóð-
þekkts velgjörðamanns sem valdi
hana úr stórum hópi ungskálda en
kýs að halda nafnleynd.
„Ég hef verið í samskiptum við
Steinunni Sigurðardóttur í mörg ár
og í gegnum tenginguna við hana þá
var ég svo heppin að komast í kynni
við manneskju sem ég get ekki nefnt
á nafn en hefur alltaf viljað hjálpa
ungum rithöfundum og byrjaði
með grasrótarstarfsemi á síðustu
æviárum,“ segir Ágúst(a).
Hún vill þó ekki gefa neitt nánar
upp um hver hinn nafnlausi vel-
gjörðamaður er. „Þetta hefur alltaf
verið síðasti draumur þessa aðila að
hjálpa ungum skáldum að fóta sig
og ég var valin. Ég get sagt að þetta
er efnamikill einstaklingur og það
er þess vegna sem þessi leynd ríkir.“
Ágúst(a) skrifaði Hrjóstugt hálf-
sumarland aðeins nítján ára á
meðan hún dvaldi á Landspítal-
anum vegna sjúkdóms í raf kerfi
hjartans.
„Ég fæddist með auka leiðnibraut
í hjartanu sem var mjög erfitt að
glíma við í æsku. Svo fór ég í aðgerð
og hjartað mitt var bókstaf lega
brennt á Landspítalanum,“ segir
hún. Ágúst(a) bætir því við að hún
hafi verið hætt komin á tímabili,
var farin að búa sig undir það að
fá gangráð og þurfa mögulega að
notast við hjólastól út ævina.
„Ég var farin að missa út rosalega
mörg slög, sérstaklega í svefni, og
hefði eiginlega átt að deyja einhvern
tímann þegar ég svaf en gerði það
sem betur fer ekki.“
Þú skrifaðir bókina 19 ára en hún
kemur út þegar þú ert 25 ára, af
hverju leið svona langur tími á milli?
„Það var svo margt í gangi þarna
í mínu lífi, að komast yfir þetta
hjartaástand og vinna mig út úr því.
Ég vildi gefa þessu aðeins meiri tíma
og svo bætti ég við nokkrum nýrri
ljóðum.“
Ágúst(a) stefnir á að halda útgáfu-
hóf 15. október og verður dag-
skrá þess tilkynnt síðar. Samhliða
útgáfunni ætlar hún svo að byrja
með nýtt hlaðvarp í samstarfi við
Regínu bókaútgáfu sem kallast Þrjár
bækur, þar sem hún ræðir við rithöf-
unda um bókmenntir. n
Gefur út bók í samstarfi við dularfullan velgjörðamann
Skáldið Ágúst(a)
29. sep - 8. okt
Barnadagar
Fjarðarkaupa
r
ð
Frábær
verð
14 Menning 4. október 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 4. október 2022 ÞRIÐJUDAGUR