Fréttablaðið - 04.10.2022, Side 36
Ég sem ekki lög nema
þau séu persónuleg.
Sjálfvirkur
opnunarbúnaður og
snertilausir rofar frá
Þýsk gæðavara.
Snertilausir rofar
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
Hvað er að frétta af Idol?
Þóra Björg
Clausen
dagskrárstjóri
Stöðvar 2
„Þetta er búið að
ganga alveg rosa-
lega vel,“ segir
Þóra Clausen,
dagskrárstjóri Stöðvar 2. Dómarar
eru þau Birgitta Haukdal, Daníel
Ágúst, Bríet og Herra Hnetusmjör.
„Við fengum gríðarlega mikið af
innsendingum þar sem fólk sendi
okkur sína prufu. Svo fórum við
hringferð um landið og fengum
fólk í prufu, svo það gekk rosalega
vel að finna hæfileikana.
Í síðustu viku vorum við með
fyrstu upptökur með dómurum.
Þar fékk fólkið sem komst í gegn-
um fyrstu síuna að hitta dómarana
og þar með hófust formlega tökur.
Því stigi er núna lokið og kepp-
endur mæta næst í prufu í Salinn í
Kópavogi nú í nóvember. Svo fara
þættirnir í sýningu 25. nóvember.
Við munum sýna fjóra þætti fyrir
jól og höldum áfram. Við vonum
auðvitað bara að fjölskyldan sam-
einist yfir þessum þáttum!“ segir
Þóra. Hún segir aðspurð nokkur
hundruð manns hafa tekið þátt í
prufunum. „Svo voru það svona
um hundrað manns sem komust í
gegnum fyrstu síuna og voru boð-
aðir í gegnum dómaraprufu. Svo
þegar niðurskurðinum í Salnum er
lokið fer hópurinn áfram sem mun
keppa í beinni útsendingu.“
Þóra segir ekki leyndarmál
hvar úrslitin verða tekin upp og
sýnd í beinni, þó það verði ekki
Vetrargarðurinn í Smáralind eins
og síðustu ár. „Það er stúdíóið í
Gufunesi. Við tókum upp Allir geta
dansað þar og Eurovision hefur
verið tekið upp þar, þannig það er
hægt að gera flott show þar.“ n
Hundruð vilja vera næsta Idol-stjarna Íslands
n Lykilspurningin
Natan Dagur Benediktsson
hefur gefið út nýja smáskífu,
með laginu Holding on. Um
er að ræða hans annað frum-
samda lag síðan hann sló í
gegn í Noregi í fyrra.
odduraevar@frettabladid.is
„Ég sem ekki lög nema þau séu per-
sónuleg,“ segir Natan Dagur um
nýja lagið sitt, Holding on. Um er að
ræða annað lagið sem Natan gefur
út og er frumsamið af honum en í
mars síðastliðnum gaf hann út lagið
Stuck in Time.
Natan Dagur er búsettur í Noregi
og vakti mikla athygli í fyrra þegar
hann tók þátt í norsku raunveru-
leikaþáttunum The Voice. Hann
segist hafa fengið gríðarlega góð
viðbrögð við nýjasta laginu sínu og
fer ekki í grafgötur um að þar opni
hann sig upp á gátt.
„Það er í raun það sem mig hefur
alltaf langað að gera. Að skrifa um
mikilvægar tilfinningar og hugsanir
sem ég hef haft,“ útskýrir Natan.
Hann segir nýja lagið tengjast því
gamla órjúfanlegum böndum.
„Í fyrra laginu syng ég um tilfinn-
ingu sem ég hef fundið mjög lengi
og sem hefur haft mjög mikil áhrif
á mig sem persónu og líf mitt. Að
líða eins og maður sé alltaf í sama
spori og að maður komist ekki neitt.
Að fara að sofa og vakna og gera
nákvæmlega það sama og upplifa
að maður hafi í raun engan tilgang,“
segir Natan Dagur einlægur.
„Holding on er í raun, ef svo má
segja, svarið við þeirri tilfinningu.
Þó mér hafi liðið eins og ég væri allt-
af á vitlausum stað þá hélt ég samt
fast í trúna, jafnvel þó að á tímabili
hafi mig ekki einu sinni langað að
reyna. Ég minnti mig á hvað ég hafði
verið stutt í sársaukanum miðað við
mína lífstíð og þess vegna þurfti ég
bara að halda fast í vonina og trúna
um að hlutirnir yrðu betri á end-
anum.“
Draumur
Faðir Natans hefur áður rifjað upp
í blaðinu hvernig Natani var strítt
fyrir sönginn og hvernig hann lagði
sönginn á hilluna í langan tíma
eftir þá upplifun. Nú vinnur hann
við sönginn og spurður um hvernig
tilfinning það sé, stendur ekki á
svörum.
„Þetta er bara draumur. Ég er með
fullt af skemmtilegum verkefnum í
pípunum og svo stefnir maður á
að gefa út plötu á næsta ári,“ segir
Natan Dagur sem segir sýn sína á
tónlistarheiminn hafa breyst eftir
að hafa slegið í gegn.
„Þetta er dálítið eins og að vera
hrifinn af galdrabrögðum og fá svo
að vita hvernig þau eru gerð,“ segir
hann hlæjandi. „Þetta er svona með
flest,“ segir Natan sem segist þó alls
ekki við það að fá nóg af tónlistinni.
„Nei, það er ég ekki. Þetta snýst
um hvernig þú sinnir þessu. Ég
skrifa bara lög þegar ég faktískt
finn fyrir einhverju, af því að ef þú
ert bara inni í stúdíói til að vera inni
í stúdíói þá missirðu náttúrulega
bara gleðina.“ n
Natan missti aldrei trúna
á að hlutirnir yrðu betri
Natan starfar
nú við að gera
það sem hann
elskar: að syngja
og semja tónlist.
MYND/AÐSEND
16 Lífið 4. október 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 4. október 2022 ÞRIÐJUDAGUR