Fréttablaðið - 04.10.2022, Page 38
Þannig að ég fór á fullt
að leita mér að flugi
svo ég gæti verið kom-
inn til hans 48 tímum
seinna.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Colors er fjórða plata Syca
more Tree og sú sem þau
Ágústa Eva og Gunni Hilmars
hafa eytt í mestum tíma. Hún
var fullkláruð í Los Angeles
með aðstoð Rick Nowels sem
hefur á síðustu áratugum
verið þungavigtarkonum
á borð við Madonnu og
Stevie Nicks innan handar, að
ógleymdri Lönu Del Rey.
toti@frettabladid.is
Ágústa Eva og Gunni Hilmars í Syca
more Tree hafa valið sinni fjórðu
plötu nafnið Colors en hún hefur
verið í vinnslu um árabil og Gunni
hikar ekki við að tala um hana sem
þeirra stærstu hingað til.
„Þetta er allavega það verk sem
við höfum eytt mestum tíma í og
erum búin að vera að vinna það
lengi í henni að við gáfum út tvær
aðrar á meðan. Og það er bara stað
reynd,“ segir Gunni og hlær.
„Ég er alveg rosalega stoltur af
þessari,“ segir Gunni sem hefur síð
ustu daga verið að hlusta á Colors,
eins og þau Ágústa Eva vilja senda
hana frá sér, sem heild.
„Þess vegna viljum við droppa
henni allri samtímis og höfum ekki
verið að gefa út neinar smáskífur
fyrst því okkur finnst hún vera eitt
heildstætt verk. Sem er líka spenn
andi,“ segir Gunni sannfærandi.
Vilja koma á óvart
„Mig minnir að við höfum byrjað að
semja lögin á plötuna 2019,“ heldur
Gunni áfram og bendir á að þau
reyni að halda sig við eina heildar
hugmynd á hverri plötu og leggi
mikið upp úr því að endurtaka sig
ekki. „Við viljum helst koma þeim
sem hlusta á okkur á óvart í hvert
skipti sem við gerum eitthvað nýtt.“
Gunni segir þau til dæmis hafa
verið að vinna með ákveðinn hljóð
heim á fyrstu plötunni. Næsta plata
hafi verið kántrískotin og sú þriðja
órafmögnuð. „Og síðan kemur
þessi sem er mjög melankólísk,
mjög falleg, svolítið dramatísk með
strengjum.“
Þá sé búið að liggja yfir útsetn
ingunum, „enda vildum við hafa
hljóminn frekar stóran án þess
að ofhlaða og skilja bara eftir það
sem skiptir mestu máli. Þannig að
það verður mjög gaman að heyra
viðbrögð frá fólki því sumt virkar
frekar bert utan frá þótt hljóð
heimurinn sé engu að síður stór og
mikið af smáatriðum.“
Gunni bætir síðan mátulega dul
arfullur við að í lok plötunnar gefi
þau ákveðna vísbendingu um hvaða
stefna verði tekin á næstu plötu.
Síðustu hljómarnir í síðasta laginu
gefa þeim sem nenna að hlusta hug
mynd um hvert við ætlum að fara
næst.“
Litríkur happafengur
Örlögin í bland við tilviljanir og
ef til vill smá heppni höguðu því
þannig að Gunni og Ágústa fengu
ofurpródúserinn Rick Nowels til
þess að ganga frá plötunni en hann
hefur á síðustu þremur áratugum
eða svo unnið með ekki ómerkara
spáfólki en Madonnu, James Blake,
Dua Lipa, Adele, Stevie Nicks, Sia og
sjálfri Lönu Del Rey.
„Hann er bara búinn að koma að
öllum tónlistarsenum síðustu ára
tuga. Ég er búinn að fylgjast með
honum lengi og hann hefur pródú
serað nokkrar af mínum uppáhalds
plötum,“ segir Gunni.
„Hann náttúrlega pródúseraði til
dæmis allar nema eina af þeim plöt
um sem Lana Del Rey hefur gefið
út og sá hljóðheimur er kannski
næstur okkur myndi ég segja. Ef þú
ert kannski búinn að hlusta mikið
á hana og hlustar á þessa plötu þá
heyrist alveg hvaða lit hann kemur
með inn í. Við gáfum honum alger
lega frjálsar hendur og vorum ekk
ert að rífast við hann.“
Laug sig í kaffi í LA
Gunni komst eftir krókaleiðum og
klíkuskap í tölvupóstsamband við
Rick eftir að hann skrifaði athuga
semd við eitt laga Sycamore Tree á
netinu. „Ég sendi honum tölvupóst
og hann kannaðist við kommentið
þannig að ég sagðist akkúrat vera í
Los Angeles eftir tvo daga, sem var
náttúrlega haugalygi, og hvort hann
væri til í kaffibolla með mér.“
Rick tók dræmt í þetta og sagðist
ekki hafa tíma í jafnlítil verkefni og
þetta en sagði Gunna þó að koma
í kaffi. „Þannig að ég fór á fullt að
leita mér að flugi svo ég gæti verið
kominn til hans 48 tímum seinna.“
Það tókst, þeir drukku kaffið
og spjölluðu fram eftir degi og úr
varð að Rick bauð Gunna að senda
nokkur demó og hann myndi síðan
sjá til. „Og ef hann myndi gera þetta
þá yrði það bara fyrir ánægjuna.“
Þau Ágústa unnu þá aðeins
meira í því sem var komið hjá þeim
og sendu tíu grunna, sem voru
meginuppistaða plötunnar, til Los
Angeles og Rick sló til. „Hann var
mjög hrifinn og nálgaðist þetta
bara með hjartanu og maður heyrir
það alveg,“ segir Gunni og bætir við
að ferlið hafi verið hægt en mjög
skemmtilegt.
Allt undir í Fríkirkjunni
„Við unnum í öðru á meðan og erum
búin að klára efnið á næstu plötu
og förum beint í hana strax eftir
útgáfutónleikana.“ Þeir tónleikar
verða í Fríkirkjunni föstudags
kvöldið 7. október en hlustunar
partí verður daginn áður á Petersen
svítunni.
Gunni segir að allt verði undir
á tónleikunum og öllu tjaldað til
þegar platan verður f lutt í heild
ásamt strengjasveit og kór. „Við
spilum plötuna nákvæmlega eins og
hún kemur fyrir og síðan gott partí
af einhverju „best of“ þannig að fólk
fær mikið fyrir aurinn þarna.“
Miðar eru seldir á Tix.is og þeir
sem kaupa í forsölu fá einnig aðgang
að hlustunarpartíinu á fimmtu
deginum 6. þar sem platan verður
spiluð í fyrsta sinn eftir að Gunni
og Ágústa Eva hafa talað aðeins um
hana og gerð hennar. n
Gunni laug sig í litakassa
Lönu Del Rey
Gunni Hilmars og Ágústa Eva í Sycamore Tree settu allan sinn metnað og drjúgan tíma í nýju plötuna þar sem þau
gáfu stjörnuframleiðandanum Rick Nowels frjálsar hendur með litapallettu sína. MYND/AÐSEND
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
*Verð og vöru upp lýsingar í auglýs ingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Taxfree tilboðið gildir af öllum sófum, sófaborðum, mottum, púðum og teppum
nema sérpöntunum og jafngildir 19,35% afslætti. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður
virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
Tilboð gildir ekki af sérpöntunum.
TAXFREE
SÓFAVEISLA
TAXFREE AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM SÓFUM, SÓFABORÐUM,
PÚÐUM, TEPPUM OG MOTTUM
CHARLIETOWN
3ja sæta sófi í dökkgráu sléttflaueli.
219x88x78 cm. 137.097 kr. 169.990 kr.
FRIDAY
Tungusófi í gráu Bari áklæði. Hægri eða vinstri tunga.
256x175x91 cm. 177.422 kr. 219.990 kr.
SALTO
Hornsófi. Hægra eða vinstra horn.
275x216x85 cm. 298.397 kr. 369.990 kr.
PINTO
U-sófi í Kentucky koníakslituðu bonded leðuráklæði.
Hægri eða vinstri tungu. 349x206x85 cm.
338.722 kr. 419.990 kr.
KORNUM
Tungusófi, hægri eða vinstri tunga.
Drapplitað áklæði. 303 x 157 x 64 cm.
282.267 kr. 349.990 kr.
AMBLE
Sófaborð. Svört melamín
marmaraplata. Ø77x44 cm.
24.187 kr. 29.990 kr.
DUNCAN
Sófaborð. Ø80x45 cm.
32.252 kr. 39.990 kr.
18 Lífið 4. október 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ