Ægir - 01.06.2022, Page 25
25
Alexander Polson er þekktur út-
gerðarmaður frá Hjaltlandseyjum.
Þar gerði hann út og var á glæsi-
legum skipum undir nafninu
Reasearch og stundaði veiðar á
makríl, síld og kolmunna. Hann
fluttist til Grindavíkur fyrir um
tveimur áratugum. Hann seldi hlut
sinn í útgerðinni á Hjaltlandseyjum
fyrir nokkru og í sumar keypti
hann sér nýjan Cleopatra bát frá
Trefjum. Hann stefnir á að vera
með bátinn a strandveiðum á
næsta ári. En hvað dró Alexander
til Grindavíkur? Jú, það var Bláa
lónið. Þar fann hann lækningu við
psoriasis sem hafði plagað hann
frá unga aldri.
Sjóveikur nánast hvern
einasta dag
Alexander er frá eynni Whalsay sem
er hluti af Hjaltlandseyjaklasanum.
Hann hefur verið sjómaður alla ævi og
byrjaði kornungur að sækja sjóinn á
smá skektu. „Ég byrjaði árið 1965 á
snurvoðarbát sem var aðeins 24 tonn
og við vorum sjö í áhöfninni. Ég var
kokkur um borð í tvö og hálft ár og
sjóveikur nánast hvern einasta dag.
Ég fór síðan á flutningaskip eftir þetta
í níu mánuði. Þegar ég kom heim aftur
kom skipstjórinn á snurvoðarbátnum
til mín og vantaði mann. Einn úr
áhöfninni var veikur og hann vildi fá
mig til að vera allt sumarið. Ég var þá
reyndar að búa mig undir að fara til
Southampton um borð í flutningaskip.
Ég átti erfitt með að ákveða mig en
faðir minn vildi að ég færi frekar á
fiskveiðar en á flutningaskip. Hann
vildi hafa mig heimavið svo ég sló til
og fór á bátinn,“ segir Alexander.
Í ljós kom að hann var laus við sjó-
veikina og sennilega var það vegna
þess að hann var á dekki en ekki í
kokkaríinu. Það hafði verið honum
mjög erfitt að þurfa að steikja beikon
og egg á hverjum morgni. Það er ekki
gott að standa sjóveikur í því.
Líkaði ekki við reknetin
„Þetta reyndist góður tími og um
haustið fór ég á lítinn bát á reknet á
síld. Mér líkaði ekki sá fiskiskapur og
vildi heldur vera á snurvoðinni. Eftir
það var ég í afleysingum á nokkrum
bátum þar til ég keypti árið 1970 ásamt
fimm öðrum lítinn bát frá Fraserburg.
Síðan var frændi minn að láta smíða
nýjan bát fyrir sig og hann vildi fá mig
sem meðeiganda. Ég sló til og var með
honum í nokkur ár en við fengum nýj-
an bát árið 1975 sem var 75 feta lang-
ur. Á honum veiddum við lýsing í troll
og fórum á tvílembing með öðrum bát
fram til 1980. Þá ákváðum við að selja
báða bátana og létum byggja nýjan
stálbát í Flekkefjord Noregi sem var
130 fet á lengd og bar um 340 tonn í
tönkum.“
Báturinn fékk nafnið Research en
afi Alexanders hafði átt bát með því
nafni. Þeir áttu hann í fimm ár og
voru á tvílembingi á makríl. Til þess
keyptu þeir notaðan bát frá Fraser-
burg sem bar rúm 600 tonn og voru
með hann til 1997. „Eftir það seldum
við báða bátana og létum smíða nýjan
í Noregi. Við vorum með hann í nokk-
ur ár og 2003 létum við enn byggja
nýjan bát í Flekkefjord í Noregi, bát
sem var miklu stærri. Við vorum með
hann til 2017 á makríl og kolmunna. Þá
létum við smíða nýjan bát í Tommy-
fjord í Noregi og hann er enn í gangi,
en ég seldi minn hlut í útgerðinni.“
Lögðu áherslu á gæðin
Alexander segir að þeir hafi alltaf lagt
mikla áherslu á gæði og þess vegna
endurnýjað bátana til að vera með það
besta á hverjum tíma.
„Þetta voru skip með mikla kæligetu
í tönkunum og við notuðum frystingu
til að hraða kælingunni. Þannig héld-
um við gæðum fisksins í hámarki en
aflanum lönduðum við lengst af fersk-
um í Noregi. Makríllinn og síldin voru
unnin þar fyrir kaupendur í Japan og
þeir fylgdust náið með gæðunum. Þeir
voru það ánægðir að þeir keyptu allt
sem við veiddum frá 2008 og við feng-
um mjög gott verð fyrir aflann þannig
að allir voru ánægðir. Gangurinn hjá
okkur Hjaltlendingum er venjulega sá
að sjómenn eru eigendur bátanna sem
þeir eru á. Nú, þegar kvótakerfi er
komið á er mjög erfitt fyrir unga menn
að komast inn í kerfið.
Mér fannst kominn tími að fara á
eftirlaun en þeir eru enn að gera það
gott. Ég er reyndar búinn að kaupa
mér handfærabát en náði ekki að kom-
ast á strandveiðarnar í sumar. Bæði
var mikið að gera hjá mér í öðru og
auk þess var veðrið óhagstætt í sumar.
Vonandi kemst ég á sjó á næsta ári.“
Geldur varhug við ESB
En hvað finnst Alexander um ósættið
sem ríkir í skiptingu makrílkvótans
milli strandríkjanna? Alexander svarar
því til að honum þyki rétt að allir fái
sinn sanngjarna skerf en geldur var-
hug við Evrópusambandinu í þeim efn-
um. Þegar komið var á kvótasetningu
innan Evrópusambandsins hafi allt
raskast. Þegar Hollendingarnir hafi
komið á miðin við Hjaltland hafi Hjalt-
Bláa lónið leiddi útgerð-
armanninn til Grinda-
víkur rætt við Alexander Polson fyrrum sjómann
og útgerðarmann frá Hjaltlandseyjum
Ægisviðtalið