Skessuhorn - 21.09.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 20226
Föstudaginn 9. september síð
astliðinn komu saman til fundar
í Hjálmakletti í Borgarnesi full
trúar frá Slökkviliði Borgarbyggðar,
byggingafulltrúa, Lögreglustjórinn
á Vesturlandi, Vinnueftirlit, Heil
brigðiseftirlit Vesturlands og Vinnu
staðaeftirlit Stéttarfélags Vestur
lands. Um var að ræða umsagnar
og eftirlitsaðila í sveitarfélaginu, en
til fundarins var boðað af Slökkvi
liði Borgarbyggðar. Fyrirmyndin
að þessu samstarfi hagsmunaaðila er
fengin frá Suðurlandi en þar hefur
sams konar samstarf gefist vel.
Í tilkynningu frá Bjarna Kr Þor
steinssyni slökkviliðsstjóra kemur
fram að fundarmenn voru sam
mála um að fara af fullum krafti í
samstarf sín á milli og eru bundnar
miklar vonir við að allt eftirlit og
umsagnir þeirra verði skilvirkari
og með þeim hætti að ofangreindir
aðilar geti betur fylgst með öllum
framgangi og afgreiðslu mála. Von
ast er til að það fjölgi í hópnum
jafnt og þétt, þ.e. að dýralæknar og
Matvælastofnun (MAST) bætist við
en það eru aðilar sem sinna velferð
og aðbúnaði húsdýra.
Markmið fundarins var að koma
á laggirnar gagnvirku samráði
ofangreindra aðila og stofnana
vegna eftirlits með byggingum og
mannvirkjum þ.m.t. brunavörnum,
aðbúnaði verkafólks, heilbrigðis
stéttar og hollustuháttum og síðast
en ekki síst almennum réttindum
verkafólks, segir í tilkynningu frá
slökkviliðinu. vaks
Vígð til prests
BORG: Prestsvígsla fór fram
í Dómkirkjunni í Reykjavík
síðastliðinn sunnudag. Þar
voru þrír prestar vígðir til
embættis. Þeirra á meðal er
Heiðrún Helga Bjarnadóttir
Back sem vígðist til Borgar
prestakalls. Hin prestsefnin
eru þær Hafdís Davíðsdóttir
sem vígðist til Laufáspresta
kalls og Helga Bragadóttir
sem vígðist til Glerárpresta
kalls. Næstkomandi sunnu
dag verður Kveðju og inn
setningarmessa í Borgarnes
kirkju. Þar kveður séra Þor
björn Hlynur Árnason söfnuð
sinn og séra Heiðrún Helga
Bjarnadóttir verður sett í
starfið. Séra Þorbjörn Hlynur
og séra Anna Eiríksdóttir
þjóna fyrir altari, Steinunn
Árnadóttir leikur á orgel og
kór Borgarneskirkju leiðir
sálmasöng. Að lokinni athöfn
verður kirkjugestum boðið til
kaffisamsætis á Hótel Borgar
nesi. -mm
Leiktæki fyrir
börn í hjólastól
AKRANES: Á leikskólanum
Akraseli er nú unnið að því að
setja niður leiktæki fyrir börn
sem nota hjólastóla. Verk
takar byrja jarðvegsvinnu eftir
hádegi í dag og verður töluvert
rask af og til næstu vikurnar
við innkeyrsluhluta leikskól
ans á meðan vinna stendur
yfir. Eingöngu verður hægt að
ganga inn á lóð leikskólans við
hann ofanverðan, þ.e. Hamra
megin. Stjórnendur leik
skólans biðjast velvirðingar
á raskinu en fagna því að fá
loksins þessi leiktæki. -gbþ
Nýr hnappur
HVALFJ.SV: Nýr hnappur
er kominn á heima
síðu Hvalfjarðarsveitar;
ábendingarhnappur, þar sem
íbúum, landeigendum, frí
stundahúsaeigendum og
öðrum hagsmunaaðilum
gefst kostur á að senda inn
ábendingu til sveitarstjórnar
eða sveitarfélagsins. Ábending
getur varðað hvað sem er;
þjónustu, úrbætur, hrós eða
annað sem viðkomandi vill
koma á framfæri. Sveitar
stjórn hvetur íbúa til að skoða
og eftir atvikum nýta þennan
nýja möguleika. -vaks
Dróni fannst í
þakrennu
AKRANES: Á þriðjudags
morgun í liðinni viku var
komið með dróna á lög
reglustöðina sem hafði fund
ist í þakrennu á þaki húss við
Kirkjubraut. Dróninn er í
geymslu lögreglunnar á Akra
nesi og er þeim sem hafa týnt
dróna á síðustu vikum og
mánuðum bent á að kíkja við
hjá lögreglu sem staðsett er á
Þjóðbraut 13. -vaks
Framlög
vegna verslana
í dreifbýli
LANDIÐ: Innviðaráðu
neytið hefur auglýst eftir
umsóknum um fram
lög sem veitt eru á grund
velli stefnumótandi byggða
áætlunar þar sem versl
anir í fámennum byggðar
lögum geta sótt um. Mark
miðið er að styðja við rekstur
dagvöruverslana í minni
byggðarlögum fjarri stórum
byggðakjörnum til að
viðhalda mikilvægri grunn
þjónustu. Annars vegar er
hægt að sækja um rekstrar
styrk og hins vegar styrk til
búnaðarkaupa. Allt að 30
milljónum kr. verður veitt
vegna áranna 2022 og 2023.
Umsækjendur skulu taka mið
af úthlutunarreglum inn
viðaráðherra og auglýsingu
um styrkina, sjá vef ráðu
neytisins. Umsóknarfrestur
er til miðnættis sunnudags
ins 16. október nk. Þriggja
manna valnefnd metur allar
umsóknir og gerir tillögu til
innviðaráðherra að úthlutun
styrkja. Áætlað er að niður
stöður ráðherra liggi fyrir í
nóvember. -mm
Þjónustuver við
Digranesgötu 2
B O R G A R B Y G G Ð :
Þjónustu ver og afgreiðsla
Borgarbyggðar hefur nú
verið færð frá Bjarnarbraut
8 og opnað á Digranesgötu
2 í Borgarnesi. Opnunar
tími þjónustuversins helst
óbreyttur, þar er móttaka
opin alla virka daga milli kl.
10:0015:00 og hægt er að fá
afgreiðslu símleiðis alla virka
daga milli kl. 9:3015. Fjöl
skyldusvið Borgarbyggðar
verður þó áfram staðsett á
Bjarnarbraut 8 og fara allir
viðtalstímar fram þar. -gbþ
Aukið samráð milli umsagnar-
og eftirlitsaðila í Borgarbyggð
MT: Frá Borgarnesi. Ljósm. mm.
Sameinað sveitarfélag Helgafells
sveitar og Stykkishólmsbæjar
óskaði í byrjun júlí eftir því við
Örnefnanefnd að hún tæki til
umsagnar tillögur að nafni á hið
sameinaða sveitarfélag. Auglýst
var eftir tillögum að nafni og rann
út frestur til að skila inn tillögum
1. júní. Alls bárust 72 tillögur að
nafni. Sveitarstjórn fór yfir til
lögurnar og ákvað að óska eftir
umsögn örnefnanefndar.
Af þeim nöfnum sem
örnefnanefnd fékk til umsagnar
telur hún nöfnin Þórsnesþing,
Stykkishólmsbær og Sveitarfé
lagið Stykkishólmur falla best að
nafngiftahefð í landinu. Nefndin
er einnig meðmælt því að kenna
nýsameinað sveitarfélag við
Helgafell en telur ekki fara vel á því
að nota eftirliðinn sveit. Nefndin
leggst hins vegar gegn nöfnunum
Stykkishólmsbær og Helgafells
sveit, Stykkishólmur og Helgafells
sveit, Breiðafjarðarbær og Breiða
fjarðarbyggð. mm/ Ljósm. sá
Örnefnanefnd mælir með þremur nöfnum