Skessuhorn - 21.09.2022, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2022 31
Völsungur og ÍA mættust á sunnu
dag í úrslitakeppni efri hluta 2.
deildar kvenna í knattspyrnu og fór
viðureignin fram á Húsavík. Fyrir
leik átti Völsungur enn von um
að komast upp í Lengjudeildina
með sigri í leiknum en Skaga
konur voru meira að spila upp á
stoltið. Aðstoðarþjálfarinn Aldís
Ylfa Heimisdóttir var við stjórn
völinn hjá ÍA í leiknum þar sem
Magnea Guðlaugsdóttir var fjarri
góðu gamni vegna leikbanns. Lítið
markvert gerðist í fyrri hálfleik og
staðan markalaus þegar dómari
leiksins flautaði til hálfleiks.
Það var síðan Unnur Ýr Haralds
dóttir sem kom ÍA yfir á 73. mín
útu með sínu tíunda marki í sumar
og fjórum mínútum fyrir leiks
lok skoraði Samira Suleman annað
mark Skagakvenna. Góður sigur ÍA
norðan heiða og þar með slökktu
þær allar vonir Völsungs um að
komast upp. Nú er ljóst að Fram og
Grótta hafa tryggt sér sæti í Lengju
deildinni á næsta tímabili á kostnað
Hauka og Fjölnis sem eru fallin úr
Lengjudeildinni.
Ein umferð er eftir af úrslitakeppn
inni og fer hún fram næsta laugardag.
Þar mætir ÍA liði KH á Akranesvelli
og hefjast leikar klukkan 15.
vaks
Systurnar Margrét Lára og Elísa
Viðarsdætur hafa getið sér gott orð
spor á sviði fótbolta á Íslandi en þær
hafa m.a. báðar spilað með íslenska
kvennalandsliðinu. Ásamt Einari
Erni sjúkraþjálfara lögðu þær leið
sína til Borgarness í liðinni viku og
héldu þar opinn fyrirlestur í grunn
skólanum sem bar yfirskriftina 360°
íþróttamaður. Fyrir lesturinn var
á vegum fyrirtækis sem þær systur
stofnuðu nýverið, Heil heilsum
iðstöð. Bera þær þar út boðskap
um hvernig hægt sé að takast á
við áskoranir, efla andlegan styrk,
meiðslaforvarnir, endurhæfingu
og næringu. Margrét Lára er sál
fræðingur og íþróttafræðingur að
mennt en Elísa er menntaður nær
ingarfræðingur og gaf á síðasta ári
út bókina Næringin skapar meist
arann. Komu þær m.a. inn á mikil
vægi svefngæða, ofneyslu Íslendinga
á koffíndrykkjum og mikilvægi vel
samsettra máltíða. Sögðu þær jafn
vægi í næringu og hreyfingu til
lengri tíma almennt reynast fólki
betur en öfgar. Fyrirlesturinn var
vel sóttur af öllum aldurshópum.
sþ
ÍA og Leiknir Reykjavík mættust
í miklum fallbaráttuslag á laugar
daginn í lokaumferð Bestu deildar
karla í knattspyrnu og fór leik
urinn fram í bongóblíðu á Akra
nesvelli. Fátt var um fína drætti í
fyrri hálfleiknum, Leiknismenn
voru meira með boltann en ógnuðu
lítið. Það dró svo til tíðinda undir
lok fyrri hálfleiks þegar Gísli Lax
dal Unnarsson fékk boltann fyrir
utan teig Leiknismanna og tók þar
tvö tékk áður en hann sendi bolt
ann inn í teiginn. Þar barst hann til
Hauks Andra Haraldssonar sem átti
laust skot að marki og fór boltinn
af varnarmanni Leiknis beint fyrir
fætur Eyþórs Arons Wöhler sem
kom boltanum framhjá markmanni
Leiknis og í netið. Sjötta mark
Eyþórs Arons í deildinni í sumar og
staðan í hálfleik 10 fyrir ÍA.
Í byrjun síðari hálfleiks færðu
Skagamenn sig aftar á völlinn þó
nóg væri eftir af leiknum og þeir
fengu það fljótlega í bakið. Leiknis
menn fengu þá aukaspyrnu á vinstri
kanti, tóku hana stutt og fyrirgjöf
Kristófers Konráðssonar rúllaði
framhjá tveimur varnarmönnum ÍA
og síðan af Tobias Staagard í eigið
mark, staðan 11. Leiknismenn
voru mun sprækari eftir jöfnunar
markið og áttu skot í slá Skaga
manna skömmu síðar en síðan
róaðist leikurinn og var í miklu
jafnvægi. En undir lok leiksins fór
hann aftur á flug og Steinar Þor
steinsson fékk dauðafæri fyrir ÍA
fjórum mínútum fyrir leikslok en
skaut yfir. Tveimur mínútum síðar
fengu gestirnir hornspyrnu þar sem
boltinn fór yfir varnarmenn ÍA, í
Viktor Jónsson og þaðan í netið,
afar svekkjandi fyrir heimamenn.
Steinar fékk síðan annað tækifæri
í uppbótartíma en varnarmaður
Leiknis náði að henda sér fyrir
skot hans og Leiknismenn fögnuðu
mikilvægum sigri, lokatölur 12
fyrir Leikni á Skipaskaga.
Staðan fyrir úrslitakeppni sex
neðstu liðanna er sú að Keflavík er
með 28 stig, Fram með 25 stig, ÍBV
og Leiknir R. eru með 20 stig, FH
með 19 stig og ÍA með aðeins 15
stig. Það er ljóst að baráttan um það
að forðast fall verður á milli fjögurra
neðstu liðanna. Skagamenn mega
ekki tapa mörgum stigum í þessum
fimm leikjum sem framundan eru í
október til að sleppa við það að leika
í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
Nú tekur við landsleikjahlé og
síðan úrslitaleikurinn í Mjólkur
bikar karla áður en úrslitakeppnin
hefst fyrstu vikuna í október og
lýkur henni í lok október ef Guð
og veðurguðirnir lofa. Í þessum
fimm leikjum munu Skagamenn
spila tvo leiki á heimavelli og þrjá
leiki á útivelli sökum þess að þeir
enduðu í einu af þremur neðstu
sætunum í Bestu deildinni. Fyrsti
leikur liðsins verður sunnudaginn
2. október á útivelli gegn Keflavík
og hefst klukkan 15. Í viðtali eftir
leikinn sagði Jón Þór Hauksson
þjálfari Skagamanna að þeir þyrftu
að brýna stálið og mæta af krafti
til leiks í úrslitakeppnina. „Það
eru fimm leikir eftir og mörg stig í
pottinum. Þetta er ekki búið en við
getum ekki gefið þetta frá okkur
eins og við gerðum í dag, það er
alveg ljóst.“
vaks
Víkingur Ólafsvík tók á móti
Haukum úr Hafnarfirði á laugar
daginn í lokaumferð 2. deildar karla
í knattspyrnu og unnu heimamenn
þægilegan sigur, 30. Mitchell
Reece kom Víkingi yfir eftir tæp
lega hálftíma leik og þannig var
staðan í hálfleik.
Fyrirliðinn Bjartur Bjarmi
Barkar son bætti við öðru marki
fyrir heimamenn eftir klukku
tíma leik og fjórum mínútum
síðar komst Björn Axel Guðjóns
son einnig á blað fyrir Víking. Ekki
voru fleiri mörk skoruð í leiknum,
öruggur sigur heimamanna stað
reynd og gott vegarnesti inn í næsta
tímabil.
Víkingur endaði í sjöunda sæti
deildarinnar í sumar með 28 stig,
vann sjö leiki, gerði sjö jafntefli
og tapaði átta leikjum með marka
töluna 43:41. Markahæsti leik
maður liðsins var Andri Þór Sól
bergsson með tíu mörk, Bjartur
Bjarmi Barkarson skoraði átta og
Luis Romero Jorge sex mörk. Þjálf
ari Víkings var Guðjón Þórðarson
og aðstoðarþjálfari Brynjar Krist
mundsson. vaks
Víkingur Ó vann Hauka í
síðasta leik tímabilsins
Bjartur Bjarmi í baráttu við leikmann Hauka í leiknum. Ljósm. af
Skagakonur með góðan sigur á Völsungi
Unnur Ýr skoraði fyrsta mark ÍA á móti Völsungi. Ljósm. sas
Skagamenn skoruðu öll mörkin á móti Leikni
Úr leik Skagamanna og Leiknis á laugardaginn. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
Fótboltasystur héldu
fyrirlestur í Borgarnesi
Margrét Lára og Elísa ásamt aðdáendum sem fengu myndir með
fóltboltastjörnunum.
Elísa Viðarsdóttir, næringarfræðingur og fótboltakona, gaf áhugasömum
næringartengd ráð.