Skessuhorn - 21.09.2022, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 20228
Eigendur jarðarinnar Mýrarhúsa í
Grundarfirði hafa gert marghátt
aðar athugasemdir við deiliskipulag
vegna hótels sem til stendur að
reisa í landi Skerðingsstaða. Þar
er gert ráð fyrir byggingu 100
herbergja hótels og fimm smá
hýsa. Hótelið verður með útsýni
að vesturhlið Kirkjufells, sem
nýtur sífellt meiri vinsælda og er
svæðið orðið með fjölfarnari ferða
mannastöðum á landinu. Gera
landeigendur Mýrarhúsa m.a.
athugasemdir við að bygging hót
els á nærliggjandi jörð og smá
hýsa við það muni leiða til þess
að fráveita skaði lífríki Lárvaðals,
að mengun verði frá bílastæðum
auk hljóð, ljós og sjónmeng
unar. Í niðurlagi athugasemda,
sem Gaukur Garðarsson einn eig
andi Mýrarhúsa sendir Grundar
fjarðarbæ, segir:
„Það er dapurlegt að sjá hvernig
Grundarfjarðarbær hefur staðið að
þessari vinnu við deiliskipulags
tillöguna og aðdraganda hennar.
Hvernig afgreiðsla á athugasemdum
og spurningum sem sendar voru
vegna kynningu á verkefnislýs
ingu fyrir gerð deiliskipulags á reit
í landi Skerðingsstaða. Mörgum
spurningum var ekki svarað, þeim
vísað beint á framkvæmdaraðila
sem annað hvort hunsaði þær eða
svaraði þeim illa. Ég persónulega
vil taka það fram að frá því að ég
flutti burt úr sveitarfélaginu, hef ég
komið reglulega til Grundarfjarðar
til að njóta bæði náttúrunnar og
gæðastunda með vinum og ætt
ingjum. Ég er stoltur af því hversu
snyrtilegur og hreinn bærinn er og
það er umtalað bæði í mínum vina
hóp og á fólki sem ég hitti hvað
Grundarfjarðarbær er snyrtilegur
og fallegur bær og að greinilegt
sé að fólk og ráðamenn sveitar
félagsins leggi sig fram um að þar sé
allt í lagi í umhverfismálum. Nú vil
ég trúa því að ráðamenn og konur
vilji halda áfram á þeirri braut en
ekki taka séns á umhverfisslysi og
gera bara eitthvað og hugsa að
þetta hljóti að reddast. Við jarð
eigendur Mýrarhúsa höfum virki
legar áhyggjur af þessari fram
kvæmd sem fyrirhuguð er á landi
Skerðingsstaða og að hún verði
með þeim hætti að hún skaði
umhverfi og náttúru. Það er því
okkar trú að nýkjörin bæjarstjórn
sé ekki að fara að færa sig frá því
að láta umhverfið og náttúru vera
í forgrunni og ætla að taka áhættu
í þessu máli.“
mm
Ók próflaus of
hratt á óskráðu
bifhjóli
HVALFJ.SV: Ökumaður á
sextánda aldursári var síðasta
miðvikudag tekinn fyrir of
hraðan akstur á Innnesvegi
á skellinöðru en hann mæld
ist á 60 kílómetra hraða þar
sem leyfilegt er að aka á 30
km hraða. Ökumaðurinn var
ekki með ökuréttindi og var
ökutækið óskráð í þokka
bót. Haft var samband við
foreldra ökumannsins vegna
athæfisins. -vaks
Ók yfir á rauðu
ljósi
AKRANES: Rétt eftir mið
nætti síðasta fimmtudag var
ökumaður tekinn á rauðu
ljósi móts við Kirkjubraut og
Stillholts á Akranesi. Öku
maður viðurkenndi brot sitt
og þarf að greiða 50 þús
und krónur í sekt og fær tvo
punkta í ökuferilsskrána.
-vaks
Keyrði glæfra-
lega á fjórhjóli
BORGARFJ: Hringt var
í Neyðarlínuna í hádeginu
á laugardaginn og tilkynnt
um aðila í sumarbústaða
hverfi í Svignaskarði sem
væri á óskráðu fjórhjóli sem
„keyrði eins og óður maður
um allt og ylli mikilli hættu
og ónæði.“ Lögregla fór á
staðinn og fann fjórhjólið
þar sem það var við bústað.
Rætt var við umráðamenn
ökutækisins og þeim bent á
að ekki væri leyfilegt að aka
um á óskráðu fjórhjóli og
hvað þá óvarlega. -vaks
Þriggja bíla
árekstur
HVALFJ.SVEIT: Í hádeg
inu á sunnudaginn varð
þriggja bifreiða árekstur
á Vesturlandsvegi við
afleggjarann upp í Hvalfjörð.
Bíll sem var á norðurleið ók
í veg fyrir aðra bifreið og
hafnaði með framenda bíls
ins á vinstri hlið hennar og
utan í aðra. Engin slys urðu
á fólki en þrír voru fluttir á
HVE á Akranesi til nánari
skoðunar. -vaks
Þegar líða fer
að jólum
LANDIÐ: Haustið kemur
og fer og jólin nálgast óðum.
Sala á hina ýmsu jólatón
leika er hafin eða að hefjast á
næstu dögum. Það er skiljan
lega mikill jólatónleikaþorsti
í Íslendingum eftir tvö ár
með samkomutakmörk
unum. Til að mynda seldist
upp á fyrsta skammt jólatón
leika Baggalúts á klukkutíma
og var því bætt við nokkrum
dagsetningum. Ef fólk ætlar
sér á ákveðna jólatónleika í
ár er því ráð að vera snemma
í því og fylgjast með hvenær
sala á þeim hefst. -gbþ
Augnlæknir í
Búðardal
DALIR: Guðrún J. Guð
mundsdóttir augnlæknir
verður á heilsugæslunni í
Búðardal föstudaginn 23.
september. Tímapantanir
eru í síma heilsugæslunnar,
4321450 -gbþ
Sumarlestur
DALIR: Í sumar stóð
Héraðs bókasafn Dalasýslu
fyrir lestrarbingói þar sem
þátttakendur voru 512 ára
börn. Á vef Dalabyggðar
segir að þetta hafi gengið
vel og flestir sem skráðu sig
hafi staðið við markmið sín.
Þá fengu allir umbun fyrir
þátttökuna og viðurkenn
ingarskjal. Nú er stefnt að því
að þetta verði árlegur sumar
viðburður hjá bókasafninu, í
þeirri von um að allir lesi
meira og hafi gaman af. -gbþ
Aflatölur fyrir
Vesturland
10. – 16. september
Tölur (í kílóum) frá
Fiskistofu
Akranes: 3 bátar.
Heildarlöndun: 19.192 kg.
Mestur afli: Ísak AK: 11.499
kg í fimm löndunum.
Arnarstapi: Engin löndun á
tímabilinu.
Grundarfjörður: 9 bátar.
Heildarlöndun: 699.937 kg.
Mestur afli: Viðey RE:
133.089 kg í einum róðri.
Ólafsvík: 13 bátur.
Heildarlöndun: 229.889 kg.
Mestur afli: Kristinn HU:
49.904 kg í fimm róðrum.
Rif: 13 bátar.
Heildarlöndun: 409.263 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
101.171 kg í einni löndun.
Stykkishólmur: 3 bátar.
Heildarlöndun: 21.494 kg.
Mestur afli: Bára SH: 13.552
kg í fjórum löndunum.
1. Viðey RE – GRU:
133.089 kg. 13. september.
2. Tjaldur SH – RIF:
101.171 kg. 12. september.
3. Helga María RE –
GRU: 97.317 kg. 11. sept
ember.
4. Helga María RE –
GRU: 89.514 kg. 15. sept
ember.
5. Örvar SH – RIF: 87.135
kg. 13. september. -sþ
Fyrirhuguð hótelbygging á Skerðingsstöðum. Teikning: Zeppelin arkitektar.
Vill forðast umhverfisslys
við Lárvaðal
„Bæjarstjórn Akraness mótmælir
harðlega þeim gjaldskrárhækk
unum sem urðu hjá landsbyggðar
strætó síðastliðið sumar og koma
sérstaklega hart niður á reglulegum
notendum strætisvagna á milli
Akraness og höfuðborgarsvæðis
ins,“ segir í bókun sem bæjarstjórn
samþykkti á síðasta fundi sínum.
„Njóta þessir farþegar nú hlut
fallslega mun lakari afsláttarkjara
en farþegar á öðrum leiðum miðað
við muninn á verði staks fargjalds
annars vegar og mánaðar eða
árskorts hins vegar. Við umræddar
gjaldskrárbreytingar var verð á
árskorti fyrir fullorðna hækkað
úr kr. 140.000 í kr. 239.200, sem
er með öllu óásættanleg hækkun
fyrir hinn almenna strætófarþega á
Akranesi.“
Þá segir í bókun bæjarstjórnar
að við yfirferð á nýrri gjaldskrá hjá
landsbyggðarstrætó hafi vaknað
alvarlegar spurningar um jafn
ræði íbúa óháð búsetu. „Þannig
má kaupa árskort sem gildir fyrir
vegalengdina milli Staðarskála og
Egilsstaða (Norðurland árskort) á
kr. 159.200, sem þýðir að töluvert
ódýrara er fyrir fólk að komast þar
yfir mun lengri vegalengd en milli
Akraness og höfuðborgarsvæðisins.
Einnig er Borgarbyggð með sér
úrlausn innan síns sveitarfélags þar
sem lengsta vegalengdin er 22,8 km
frá Borgarnesi í Varmaland en verð
fyrir árskort er kr. 96.000.
Bæjarstjórn beinir því til stjórn
enda Vegagerðarinnar / lands
byggðarstrætó að unnið verði að
lausn til að tryggja ferðir milli
höfuð borgarsvæðisins og nær
sveitarfélaga þess (Akranes, Borg
arnes, Hveragerði, Selfoss,
Reykjanesbær) á sanngjörnu verði
og miða þá ef til vill við hámarks
fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu,
60 km og undir, og bjóða upp á
betri kjör á árskortum til íbúa þeirra
svæða. Bæjarstjórn leggur áherslu
á að gjaldskrá Strætó vegna ferða
á milli Akraness og höfuðborgar
svæðisins taki mið af vegalengdinni
á milli þessara svæða og að afslátt
arkjör vegna magnferða (árskort og
árshlutakort) séu í samræmi við far
gjald fyrir stakar ferðir.
Þá gerir bæjarstjórn alvarlega
athugasemd við það að ekki hafi
verið haft betra samráð við hlutað
eigandi sveitarfélög áður en gripið
var til svo mikilla verðhækkana og
óskar eftir betra og tíðara samtali
við forsvarsmenn Vegagerðarinnar
vegna reksturs og þjónustu lands
byggðarstrætó.“ mm
Bæjarstjórn mótmælir harðlega hækkun
á gjaldskrá landsbyggðarstrætó