Skessuhorn - 21.09.2022, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2022 13
Fyrir tæpum tveimur árum hóf
Dalabyggð viðræður við ríkið um
að færa Byggðasafn sitt frá Laugum
í Sælingsdal að Staðarfelli á Fells
strönd. Kristján Sturluson, þáver
andi sveitarstjóri, sendi bréf til
mennta og menningarmála
ráðuneytisins, sem þá var, í febr
úar 2021 þess efnis að húsnæði
byggðasafnsins á Laugum væri úr
sér gengið. Þar væri hætta á vatns
tjóni vegna gamalla lagna og mögu
legra flóða vegna leysingavatns og
sé það óviðunandi áhætta með til
liti til varðveislu safnmuna. Safnið
hefur verið lokað í rúm tvö og hálft
ár og safnmunir staðið óhreyfðir í
kjallara í húsnæði gamla Laugar
skóla en þar hefur safnið verið frá
því það var opnað 1979. Safn
munirnir skipta hundruðum og
eru margir hverjir einstakir. Vatns
lagnir eru í lofti kjallarans og þar
hefur orðið vatnstjón þegar lagnir
hafa gefið sig. Þau tjón hafa þó
verið minniháttar sem betur fer en
í safninu eru til að mynda einstök
textílverk og munir sem ómögulegt
væri að bæta.
Ekkert heyrst frá
ríkinu í hálft annað ár
Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitar
stjóri Dalabyggðar, segir í sam
tali við Skessuhorn að lítil tíðindi
væru af þessu máli, í raun væri sama
staða núna og var þegar Kristján
sendi ríkinu bréfið fyrir hálfu öðru
ári. „Við höfum sáralítil viðbrögð
fengið frá ríkinu, því miður. Núna
er kaupleigutaki búinn að taka við
Laugum og við höfðum tvö ár til
að losa safnið út úr því húsnæði.
Þannig það er búið að ramma inn
þá tímalínu sem við höfum og við
þurfum að laga okkur að henni,“
segir Björn Bjarki. En er ennþá
verið að skoða aðrar mögulegar
staðsetningar fyrir safnið? „Við
erum í þreifingum varðandi Staðar
fell og ríkið, því það eru Ríkiskaup
sem eiga það en við viljum auðvitað
ekki útiloka aðrar staðsetningar.
Við erum fyrst og fremst að skoða
Staðarfell og erum að reyna að fá
ríkið með okkur í þann dans.“
Undir það tekur Þorgrímur
Einar Guðbjartsson, formaður
menningarmálanefndar Dala
byggðar. „Eins og staðan er núna
þá er þetta það sem er verið að
skoða, að færa safnið á Staðarfell.
Það er enginn annar augljós kostur
nema pakka því saman og loka því,“
segir Þorgrímur.
Snýst um hvað þú
ætlar að byggja upp
En er raunveruleg forsenda fyrir
því að færa safnið og setja það upp
aftur? „Þetta snýst ekki endilega
um að færa byggðasafnið heldur
snýst þetta um hvað þú ætlar að
byggja upp og hvað ætlar þú að
sýna. Svona byggðasöfn eru ekki
eins vinsæl og þau voru og nú
eru komin alls konar söfn um allt
land og fólk er að leita á þau mið.
Málið er kannski að gera safn sem
er minna í sniðum þannig að þegar
það er tilbúið væri skipt um sýn
ingu á nokkurra ára fresti. Þá væri
ein meginsýning, kannski sögu
leg sýning fyrir svæðið og svo
öðru hvoru settar upp sýningar
sem eru þematengdar,“ segir Þor
grímur en um land allt hafa síðustu
ár sprottið upp sértækari söfn sem
einblína á ákveðna sögu. Þar má
nefna Landnámssetrið í Borgar
nesi, Hernámssetrið í Hvalfirði,
Landbúnaðar safnið á Hvanneyri
og Eldheima í Vestmannaeyjum.
„Þetta byggðasafn verður aldrei
opnað aftur eins og það var jafnvel
þótt við fengjum húsnæði sem væri
margfalt stærra myndum við aldrei
opna það eins og það er byggt upp
núna af því fólk sækist eftir allt
öðru í dag,“ segir Þorgrímur.
Vilja koma ferða-
mönnunum út á strönd
Hvað varðar fyrirhugaða staðsetn
ingu byggðasafnsins á Staðarfelli
segir Þorgrímur marga þætti spila
saman. „Það er mikil ferðaþjónustu
uppbygging á þessu svæði og við
horfum fram á að nýta þessa stað
setningu og þetta húsnæði til
þess að koma ferðamönnum út
á strönd og fyrir strandir. Þá yrði
svona starfsemi líka að vera með
veitingaþjónustu og handverks
sölu því ferðamenn sækja í það og
vilja margir geta keypt handverk
sem hefur skírskotun inn á svæðið.
Við megum ekki heldur horfa fram
hjá því að mikið af innviðunum
sem þarf fyrir svona starfsemi er
þegar til staðar á Staðarfelli.“ Þá
sé staðsetningin líka hugsuð út frá
menningarsögulegu gildi svæðis
ins en Staðarfell hefur verið eitt af
höfuð býlum Dalasýslu um nokkur
hundruð ára skeið. Má þar nefna
að Hannes Hafstein, sem seinna
varð fyrsti Ráðherra Íslands, hafði
þar aðsetur þegar hann var sýslu
maður Dalasýslu árið 1886, þar var
húsmæðraskóli starfræktur í rúm
50 ár um miðja 20. öld og nú síðast
var SÁÁ þar með endurhæfingar
stöð en henni var lokað 2017 og
hefur Staðarfell staðið autt síðan.
Byggja þarf safnið upp
á nútímalegan hátt
„Auðvitað kostar allt,“ segir Þor
grímur en bendir á að vert sé að
prófa hluti, þeir annað hvort virki
eða ekki. „Þá verður líka að ákveða
hvaða leið menn vilja fara með upp
setningu og nálgun á byggðasafn
inu, ef við köllum þetta ennþá
byggðasafn.“ Ég hef fulla trú á að
þetta verkefni takist hjá okkur en
þetta tekst ekki nema safnið sé byggt
upp á nútímalegan hátt. Við sjáum
önnur söfn, eins og Byggðasafnið á
Skógum, sem setur upp nýjar sýn
ingar reglulega og tekst vel til. Það
safn er orðið vel gróið og skemmti
legt en það er líka yfirgripsmikið,“
segir Þorgrímur. Þá geti Staðarfell,
ef vel tekst til, orðið einn stærsti
viðkomustaðurinn í Gullna sögu
hringnum í Dölum. Hann nær frá
SuðurDölum, inn í Búðardal, út
fyrir Klofning og um Saurbæ og
snýr að því að beina ferðamönnum
á sögulega staði í Dalabyggð þar
sem þeir geta fræðst um og skoðað
staðhætti en á mörgum stöðum hafa
verið sett upp tilheyrandi upplýs
ingaskilti. „Með því að velja þessa
staðsetningu fyrir safn, hvernig safn
sem það verður, ýtum við ferða
mönnunum út á Fellsströnd og
Skarðsströnd og fáum þá til að
stoppa lengur í Dölunum sem eru
vaxandi í ferðaþjónustu. Við sjáum
fyrir okkur að Staðarfell geti orðið
eins konar miðstöð á Gullna sögu
hringum þar sem ferðamenn geta
stoppað lengur, fengið sér að borða
og jafnvel lesið sig betur til um aðra
staði á svæðinu,“ segir Þorgrímur og
bætir við „ Við megum ekki gleyma
því að saga og menning Íslands er
samgróin sögu Dalanna, sem okkur
ber að varðveita og kynna fyrir
gestum jafnt sem heimamönnum.“
gbþ
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Garða- og Saurbæjar-
prestakall
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Sunnudagur 25. september
Leirárkirkja
Guðsþjónusta kl. 11
Akraneskirkja
Sunnudagaskóli kl. 11
Messa kl. 20
Miðvikudagur 28. september
Bænastund í Akraneskirkju kl. 12:10
Opið hús í Vinaminni kl. 13:00
í umsjá sr. Ólafar
Byggðasafn Dalamanna lokað í hartnær þrjú ár
Laugar í Sælingsdal. Byggðasafn Dalamanna hefur verið þar til húsa síðan það var opnað 1979. Ljósm. úr safni.
Nemendur í Auðarskóla sitja hér í baðhúsi inni á Byggðasafni Dalamanna.
Ljósm. úr safni.
Staðarfell, en myndin er tekin um svipað leiti og meðferðarstöð SÁÁ var lokað þar.
Ljósm. úr safni.