Skessuhorn - 21.09.2022, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 202218
Dagur í lífi...
Bókavarðar á Bókasafni Akraness
Nafn: Geirlaug Jóna Rafnsdóttir
Fjölskylduhagir/búseta: Ég bý
á Akranesi og er gift Herði Hall
grímssyni. Við eigum þrjú börn,
einn tengdason og eitt barnabarn.
Starfsheiti/fyrirtæki: Bókavörður
á Bókasafni Akraness.
Áhugamál: Lestur, handavinna,
ferðalög og tónlist.
Dagurinn: Fimmtudagurinn 15.
september 2022
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Vaknaði klukkan 7.40 og
athugaði hvernig veðrið væri áður
en ég gerði nokkuð annað. Gamall
vani úr sveitinni að athuga veðrið.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Þar sem Abmjólkin var nán
ast tóm greip ég Abdrykk með
jarðarberjum og drakk hann.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég var mætt í vinnuna
fyrir 8.30 og fór akandi á „Bláber
inu“ (Kia Picanto), bifreið sonar
míns sem ég hef til afnota meðan
hann er í skiptinámi í Madrid.
Fyrstu verk í vinnunni? Stimpla
mig inn og gera klárt fyrir
morgunleikfimina okkar.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Þá var ég að leggja loka hönd
á að taka til bækur handa við
skiptavinum okkar sem eru í þjón
ustu sem kallast „Bókin heim“. En
það er í mínum verkahring að sjá
um þessa þjónustu. Í því felst að
þeir viðskiptavinir okkar sem eiga
erfitt með að koma sjálfir til okkar,
t.d. vegna veikinda, geta fengið
bókasendingu einu sinni í mánuði
heim til sín.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Þar
sem mínum vinnutíma var lokið
var ég komin heim og fékk mynd
símtal frá Finnlandi þar sem
barnabarnið hafði stöðugt kallað
amma Gilla. Svo mest af hádeginu
fór í spjall við hann og mömmu
hans.
Hvað varstu að gera klukkan
14? Þá var ég að taka aðeins til
heima hjá mér.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
hætti um klukkan 11.30 og það
síðasta sem ég gerði var að skila
af mér bókum sem ég hafði tekið
til baka þegar ég fór með bækur
heim til viðskiptavina okkar.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Sinnti heimilisverkum og
síðan fórum við hjónin í góðan
göngutúr.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Bóndinn skellti lamba
kótilettum á grillið og ég sá um
meðlætið.
Hvernig var kvöldið? Svona
nokkuð samkvæmt venju, horfði
á sjónvarpið og prjónaði. Púsl
aði svo aðeins í ipadinum þegar
ég þurfti að fara hugsa í prjóna
skapnum en nennan var ekki fyrir
hendi að fara að hugsa.
Hvenær fórstu að sofa? Ætli
klukkan hafi ekki verið farin að
nálgast hálftólf.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Það sama og venjulega,
fékk mér vatnsglas og burstaði
tennurnar.
Hvað stendur upp úr eftir
daginn? Ég er alltaf svo glöð í
hjartanu eftir að hafa fært við
skiptavinum okkar bækur því þetta
er allt svo dásamlegt fólk og það
er svo þakklátt fyrir þessa þjón
ustu. Svo var göngutúrinn með
manninum mínum yndislegur.
Eitthvað að lokum? Verum góð
við hvert annað.
Fyrsta æfing vetrarins hjá Slökkvi
liði Borgarbyggðar var haldin síð
asta þriðjudag þar sem farið var yfir
björgun úr bílflökum eftir umferð
arslys. Allar starfsstöðvar slökkvi
liðsins voru mættar á æfinguna en
þær eru frá Borgarnesi, Reykholti,
Hvanneyri og Bifröst. Að sögn
Heiðars Arnar Jónssonar, vara
slökkviliðsstjóra Borgarbyggðar,
var farið vel ofan í grunninn á
æfingunni þar sem mikið er um
nýliða hjá þeim núna. Þeir hafa
reyndar lokið námi en eru að
byggja upp reynslu og þekkingu.
„Við leggjum mikið upp úr því
að allar æfingar séu aðgengilegar
öllum slökkviliðsmönnum sama
hvaða stöð þeir eru á þannig að við
séum með meiri og stærri alhliða
þekkingu innan liðsins.“
Heiðar Örn segir að æfingin
hafi gengið glimrandi vel og fólk
hafi verið að skríða heim upp úr
miðnætti en hún hófst rétt eftir
kvöldmat. „Það er alltaf frágangur
og yfirferð á búnaði sem þarf að
skoða og einnig að allt sé tilbúið
fyrir næsta verkefni. Það verður
1. október þar sem allar stöðvar
taka þátt í löngum laugardegi eins
og við köllum hann. Þar erum við
heilan dag að æfa okkar vinnubrögð
og því tengt. Starfssvæði Slökkvi
liðs Borgarbyggðar er nokkuð stórt
og æfingarnar eru miðaðar við það
og það eru þessar fjórar stöðvar
sem taka þátt í þessum degi.“
En hvað gera menn til að halda
sér í formi? „Við leggjum mikið upp
úr því að slökkviliðsmenn stundi
líkamsrækt og haldi sér í formi yfir
allt árið. Samkvæmt kjarasamn
ingum hafa slökkviliðsmenn frían
aðgang að líkamsræktarstöðvum
og sundlaugum sveitarfélaganna og
við hvetjum menn alltaf til að nýta
sér það. Svo þurfa reykkafarar að
halda reykköfunarréttindum sínum
við og það þarf að taka þrekpróf
fyrir það einu sinni á ári þannig
að þau þurfa að passa upp á það að
vera í góðu formi. Flest allir sem
hafa þessi réttindi halda sér í jöfnu
formi yfir allt árið og eru tilbúnir
andlega og líkamlega þegar kallið
kemur.“ vaks
Höfði, hjúkrunar og dvalarheim
ili á Akranesi, auglýsti í síðustu viku
stöðu húsmóður lausa til umsóknar
og hefur auglýsingin vakið nokkra
athygli. Skessuhorn heyrði hljóðið
í Kjartani Kjartanssyni fram
kvæmdastjóra Höfða og spurði
hann aðeins út í auglýsinguna.
Áður fyrr var húsmóðir notað yfir
konur sem störfuðu heima og sáu
um öll verk heimilisins. Er þetta ný
staða hjá Höfða og hver er hugs
unin á bak við það að auglýsa með
þessum hætti?
„Starf húsmóður á Höfða er
ekki ný staða því það hefur verið
starfandi húsmóðir hjá okkur frá
því fyrir síðustu aldamót. Núver
andi húsmóðir var ráðin eftir
auglýsingu árið 2013 þar sem 17
umsóknir bárust. Nú þekki ég
ekki alveg forsöguna fyrir þessari
nafngift en hún hefur verið til
staðar í tugi ára. Nú þegar starfið
losnaði að nýju fór fram umræða
í stjórn Höfða um hvort ástæða
væri til að breyta starfsheitinu
en það var einróma niðurstaða
stjórnar að halda því óbreyttu.
Með því erum við að undirstrika
að Höfði er heimili í kringum 70
íbúa en ekki stofnun.“
Þið segið í auglýsingunni að
starfið henti öllum kynjum, hefði
þá ekki verið eðlilegra að auglýsa
það þannig? „Eðli málsins sam
kvæmt geta allir sótt um stöðuna.
Þess er sérstaklega getið að starfið
henti öllum kynjum og nú þegar
höfum við fengið góð viðbrögð við
auglýsingunni,“ segir Kjartan.
vaks
Húsmóðir
óskast á Höfða
Fyrsta æfing haustsins hjá Slökkviliði Borgarbyggðar
Bílflak sem notað var til æfinga. Ljósm. aðsend
Frá æfingunni. Ljósm. aðsendSlökkviliðsmenn og konur sem mættu á æfinguna. Ljósm. gj