Skessuhorn - 21.09.2022, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2022 19
Grunnskólinn í Borgarnesi hefur
gróðursett tré á vegum Yrkjusjóðs
ins allt frá árinu 1992, eða í þrjá
tíu ár. Fyrstu árin var gróðursett í
skógræktargirðingu í landi Borgar
og árið 2014 var þar gróðursett tíu
þúsundasta tréð. Það kom að því
að svæðið í landi Borgar var full
gróðursett. Haustið 2020 var fyrst
gróðursett í nýtt svæði norðan við
land Borgar og sunnan flugvallar
ins. Ákveðið var að gróðursetja að
hausti í stað vors enda hentar það
betur skólahaldi vegna anna sem oft
eru á vorin.
Nemendur úr 4. og 9. bekk
Grunnskólans í Borgarnesi gróður
settu í yrkjuskóga 17. septem
ber síðastliðinn. Í þetta sinn var
gróður sett fremur hávaxið birki
sem reyndist vel vegna þess að
gróðursetningarlandið er vel
gróið háu grasi. Gróðursettar
voru 200 plöntur. Við gróðursetn
inguna notuðu krakkarnir gróður
setningargeyspur sem þeir höfðu
gaman af að læra að nota. Gróður
setningarhópurinn taldi 70 nem
endur auk kennara og aðstoðar
manna. Hver nemandi gróðursetti
því tvær eða þrjár plöntur. Verk
efnið Yrkjuskógar er í Borgarnesi
unnið í samráði við Skógræktarfé
lag Borgarfjarðar.
mm/lh
Svandísi Svavarsdóttur matvælaráð
herra barst á þriðjudag í liðinni viku
opið bréf frá Steinunni Árnadóttur
íbúa í Borgarnesi og áhugakonu um
velferð dýra, eins og hún skilgreinir
sig í bréfinu. Þar spyr Steinunn ráð
herra þess hversu langt sé hægt að
láta skepnuníð viðgangast á einum
bæ, án þess að yfirvöld bregðist við
af festu. Að beiðni Steinunnar er
bærinn sem í hlut á ekki nefndur í
umfjöllun fjölmiðla.
„Óþarfi ætti að vera að minna
á aðkomu þessara aðila við hesta
níð í Borgarnesi. Það er um fátt
annað meira talað í sveitum lands
ins,“ skrifar Steinunn og víkur þá
máli sínu að atburðarás undanfar
inna daga. „Eftir þriggja ára inni
lokun er kindum ,,hleypt út.“ Þær
eru sem sé í lítilli rétt fyrir utan
fjárhúsin sem þær hafa verið lok
aðar inni í, já enn einu sinni, í þrjú
ár. Þetta hlýtur að vera samkvæmt
fyrirmælum ,,eftirlits aðila,“ því
bíll merktur MAST var á ferðinni.
Þessar kindur eru ekki að komast á
beit því heyrúllu er komið fyrir inni
í gerðinu. Gott og vel. Nautgripir
eru nú örugglega líka samkvæmt
fyrirmælum MAST komnir út. Þeir
eru reyndar mikið á ferðinni. Enda
hafa þeir ekki allir aðgang að vatni.
Við leit sína að vatni hafa þeir komið
sér í voða í skurðum. Einn naut
gripurinn var svo illa fastur í skurði
morguninn 13. september að hann
þurfti aðstoð að komast upp úr. Eftir
þær ,,aðgerðir“ stendur skepnan
ekki sjálf,“ skrifar Steinunn. Þá lýsir
hún því hvernig eigandi nautgrips
ins og unnusta hans taka að berja
nautið á fætur með bareflum. „Og
þar sem hann stóð bara alls ekki
upp, þá var bara að berja meira og
svo aðeins, enn meira. Nágrannar
sáu til og hringdu á lögregluna.
Lögreglan mætti á staðinn. Ekki er
vitað um afdrif skepnunnar,“ skrifar
Steinunn.
Þá ávarpar hún ráðherra og
skrifar: „Ágæta Svandís Svavars
dóttir. Meðan þú varst að maula
gotterí eftir þingsetningu voru
þessir aðilar að misþyrma skepnu
sem gat ekki staðið upp. Áður var ég
búin að senda þér bréf og láta vita af
hversu mikil illska er hér á ferðinni.
Ég hef engin viðbrögð fengið við
því bréfi frá þér eða aðstoðar
fólki þínu. Þegar lesin eru lög sem
Alþingi hefur sett um velferð dýra er
mér spurn um hvaða land þau eigi
við,“ skrifar Steinunn og vísar í laga
grein um velferð dýra.
Að endingu segir í bréfi til ráð
herra: „Og að lokum: Ástæða þótti
til að senda sérsveitina og afvopna
umræddan dýraníðing. En engin
ástæða er að svipta hann umráðum
yfir ósjálfbjarga skepnum sem hann
sannarlega misþyrmir. Það virð
ist vera kappsmál að klappa þessum
níðingi á bakið og segja ,,haltu
áfram!“ Ég endurtek því spurn
inguna: Hversu langt á skepnuníðið
að ganga,“ og tilgreinir bæinn sem í
hlut á. mm
Gróðursettu í Yrkjuskógi norðan við Borg
Hópurinn sem þátt tók í verkefninu síðastliðinn föstudag. Ljósm. Dagmar Mýrdal Harðardóttir.
Spyr ráðherra hversu langt
dýraníð eigi að ganga
Borgarbyggð hefur samið við endurvinnslufyrirtækið Hringrás um söfnun
ákveðna úrgangsflokka haustið 2022. Um er að hirðingu heim á hlað á
eftirfarandi úrgangsflokkum:
• Bílflök og annað almennt brotajárn.
• Ryðfrítt stál og ál
• Rafgeymar
• Rafmótorar
• Hjólbarðar
SÖFNUN BROTAJÁRNS OG FLEIRI
ÚRGANGSFLOKKA
Fyrirkomulagið er þannig háttað að íbúar safna úrgangsefninu saman á einn
stað þar sem það er sótt. Ef óskað er aðstoðar kranabíls er nauðsynlegt að fá
upplýsingar um slíkt.
• Við skráningu þurfa eftirfarandi upplýsingar að koma fram:
• Nafn þess sem óskar eftir þjónustunni, símanúmer og netfang.
• Nákvæm staðsetning (bær og svæði)
• Áætlað magn og stærð gáms sem óskað er eftir.
• Taka fram ef óskað er eftir þjónustu kranabíls.
Frekari upplýsingar um veita Bjarni Viðarsson í síma 660-6924 og
Hafþór Ægir Þórsson í síma 660-8916 hjá Hringrás.
Borgarbyggð tekur við beiðnum um þjónustu á heimasíðunni www.borgarbyggd.is, í
síma 433-7100 eða á póstfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is
Frestur til að senda pöntun er til og með 5. október 2022.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is