Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Síða 10
Haustið 1971 voru haldnir margir fundir víðs vegar um land-
ið með læknum og ljásmæðrum, eftir því sem föng voru á.
Var nýja fæðingatilkynningin kynnt, en þeim læknum og ljósmæðrum,
sem ekki gátu sótt þessa fundi, var rituð ýtarleg greinargerð um
málið, um leið og hinni nýju fæðingatilkynningu var dreift um allt
land fyrir árslok 1971.
Læknum og ljósmæðrum til hróss skal þess getið, að strax
frá upphafi hafa fæðingatilkynningar yfirleitt verið vandlega
útfylltar og sendar reglulega til úrvinnslu. I fyrstu har við
stöku sinnum, að ýmsar minniháttar upplýsingar vantaði, en þá var
viðkomandi lækni eða ljósmóður þegar gert viðvart og hætt úr.
Nú má telja, að allar fæðingatilkynningar séu vandlega útfylltar
og þvx öruggar heimildir.
Þó her að geta þess, að í þeim liðum fæðingatilkynningar, sem
skrá afhrigði meðgöngu og fæðingar og sjúkdóma hjá nýhurðum,hefur
ekki verið lögð næg áherzla á nákvæma skráningu.
Vísast hér til kafla III, 8, þar sem þessi vandkvæði eru nánar
rædd og leiðir til úrhóta.
Það telst ennfremur til nýjunga við þessa skráningu að rita
skal tilkynningu um allar fæðingar eftir tuttugustu viku meðgöngu.
Hingað til hefur verið nokkur mishrestur á, að læknar og ljósmæður
sendu tilkynningu um fósturlát eftir tuttugustu viku. Er þðrf á
að hæta hér um, þar sem sérstök áherzla verður lögð á þetta atriði
á vegum VÍHO framvegis.
I lok júnímánaðar 1973 var efnt til fundar á ný í Genf með öllum
þáttakendum í fyrrnefndri könnun. Niðurstöður þessa verkefnis verða
væntanlega hirtar innan tíðar á vegum WHO. Þess má geta, að reynsla
könnunar í áðurnefndum fimm löndum gaf þýðingarmiklar upplýsingar,
og virtist hún hafa náð tilgangi sínum eins og til var stofnað.
Svo sem áður er getið, var hverju þátttökulandi í sjálfsvald
sett að afla viðhótarupplýsinga. Elest þátttökulöndin fylla út
fæðingatilkynninguna þegar að fæðingu lokinni, eða innan 2-3ja
sólarhringa. Hér á landi var hins vegar álcveðið að leita þegar í
stað upplýsinga um hurðarmálsdauða, þ.e.andvana fæðingar og hörn
8