Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Page 34

Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Page 34
Sýklaeyðandi lyf, sem komu til á fimmta áratugnum, gjör- breyttu viðhorfi manna til smithættu. Sem dæmi um fyrri viðhorf í þessum málum, má vitna í ummæli Vilmundar Jónssonar fyrrverandi landlæknis í Heilbrigðisskýrslum 1945, um þá þróun að byggja stofnanir fyrir fæðandi konur. " En gát þarf að hafa á þessum framkvæmdum, og ekki mega þær verða til að ýta undir það tizkufyrirbrigði, sem nú gætir allmikið, að fæðandi konur sæki algerlega að óþörfu burtu úr fyllsta öryggi heimila sinna til minna öryggis fyrir sig og afkvæmi sín. Er sannast mála, að í þeirri einangrum sem hvert einstakt heimili tryggir af sjálfu sér og því betur því dreifðari sem heimilin eru, er fólgið svo mikið heilbrigðisöryggi til handa fæðandi konum og hvítvoðungum, að allmikið má skorta á aðstoð og aðbúð á heimilinum til að vega þar upp á móti". Meðan barnsfararsótt og smitun ungbama á fæðingastofnunum var algengt, var eðlilegt, að slíkar skoðanir kæmu fram. Því fylgdi áhætta að safna saman á einn stað seengurkonum og börn- um þeirra, og þess eru mörg dæmi, að konum reyndist öruggara að fæða f heimahúsum, en jafnvel á vel þekktum fæðingastofnunum af fyrrnefndum ástæðum. Telja má, að ofannefndar ástæður hafi einkum valdið tregðu heilbrfgðisyfirvalda, bæði hér og erlendis, að byggja stærri fæðingastofnanir, en sú stefna mótaðist af biturri reynslu fyrri tíma. Eins og áður er getið, gjörbreytti tilkoma sýklaeyðandi lyfja þessum sjónarmiðum, með þeirri afleiðingu, að álag á fæðingastofn- anir hefur aukizt stöðugt sl. 25 ár hér á landi. Er það sama þróun og átt hefur sér stað f öðrum löndum. Aður en lýst er nánara jþróun fæðingadeilda á sjúkrahúsum, er rétt að geta annarra fæðingastofnana, sem gegnt hafa merku hlutverki í sögu og þróun fæðinga f landinu. Bjarni Pálsson landlæknir, fyrstur lærðra lækna á Islandi, hóf starf sitt árið 1760. Hann fékk í veganesti fyrirmæli frá heilbrigðisstjórninni dönsku, að skipuleggja ljósmæðrafræðslu f landinu. A vegum Bjarna fluttist til Islands árið 1761 dönsk ljós- móðir, sem skyldi annast kennslu f ljósmæðrafræðum. 32

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.