Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Síða 40
Linurit 6.
A linuriti 6 eru sýndar fæðingar í Reykjavík 1950-1972.
Línuritið sýnir hundraðstölu fæðinga á Fæðingadeild Landspítalans,
Fæðingaheimili Reykjavíkurborgar og aðrar fæðingar í Reykjavík.
A línuritinu kemur vel fram hlutur beggja þessara stærstu fæðinga-
stofnana landsins I fæðingum I Reykjavík. Heimafæðingum hefur
fækkað áfram eftir að Fæðingaheimilið t<5k til starfa, og má nefna
sem dæmi, að á árinu 1972 fæddu aðeins 15 konur I heimahúsum.
Fæðingar á öðrum s.júkrahúsum,
Stærsta sjúkrahús landsins utan Reykjavíkur, Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri, hefur síðustu áratugi, eins og önnur sjúkrahús,
tekið I vaxandi mæli konur til fæðinga. Hefur þar sl. tvo áratugi
verið rekin sérstök i'æðingadeild undir stjórn sérfræðings í kven-
sjúkdómum. Um þróun fæðinga á Akureyri og I nágrenni Akureyrar
er nákvæmlega sömu sögu að segja og um þróun á Reykjavíkursvæðinu.
A undanförnum árum hafa fæðingar I vaxandi mæli farið fram á sjúkra-
húsum, og heimaíæðingar eru nú hverfandi á öllu svæðinu, sem það
sjúkrahús sinnir. Um fæðingar á Akureyrarspítala má lesa í heil-
brigðisskýrslum og skýrslum sjúkrahússins, og verður sú þróun
ekki nánar rakin hér.
Að Sólvangi í Hafnarfirði hefur verið rekin fæðingadeild um
tveggja áratuga skeið. Hafa þar einkum fætt konur úr Hafnarfirði
og Garðahreppi og nágrenni og oft úr Reykjavik, þegar þrengsli voru
á fæðingastofnunum þar. Frá því að Selvangur tók til starfa, hafa
fætt þar frá 150-250 konur á ári. Náin samvinna er við Fæðinga-
deild Landspítalans um afbrigðilegar fæðingar.
A Sjúkrahúsi Akraness hafa einnig farið fram fæðingar I vax-
andi mæli og nú sl. 4 ár verið rekin þar sérstök fæðingadeild undir
stjórn sérfræðings I kvenlækningum.
38