Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Blaðsíða 60
IIi, 4. SKOliA&ANGA MÆ£>KA.
Eitt af þeim atriðum, sem samþykkt var í Genf vorið 1971
( sbr.1,2), var könnun á lengd skólagöngu mæðra.
í löndum þar sem mikill munur er á menntun stétta, má vænta,
að munar gæti einnig á heilbrigðisþjónustu. Hér á landi, þar
sem skyldunám í 8 ár, nær nú til yfirgnæfandi meirihluta þjóð-
arinnar og allir hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu og þar á
meðal mæðravernd, er vart að búast við, að verulegs mismunar
gæti um nýtingu slíkrar þjónustu. Til samræmingar við aðrar
þjóðir var samt sem áður spurt um þetta atriði í fæðingartil-
kynningum. Þótt þessi lengd skólaskyldu hafi verið 1 lögum frá
1946, hefur fram á síðustu ár ekki tekist að framfylgja lögunum
til fullnustu 1 strjálbýlli héruðum landsins, og er því nokkur
hluti mæðra með skemmri skólagöngu að baki.
línurit 11.
í línuriti 11 er sýnd lengd skólagöngu íslenzkra mæðra
árið 1972. Sézt þar, að hundraðshluti mæðra með skemmri skóla-
göngu en 8 ár er 17,5 en 2/3 hlutar mæðra hafa hlotið meiri
skólagöngu en skyldan boðar. Nánar er rætt um lengd skólagöngu
í sambandi við fjölda forskoðana í kafla III, 7.
Línurit 11.
%
25
F.jöldi námsára mæðra á íslandi 1972.
f
t
-4 5 ts ~7
fi
J-l
11 i
p
9 /o //
£3
m—
Y, 3.Z
| !„
/«2 /3 /4* /-5~ or rr>or<r. Y&czrr s c
58