Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Page 91
IY, kafli.
NIÐURSTÖiÐUR.
Við úrvirmslu fæðingartilkynninga ársins 1972, sem byggð
er á tölvunotkun, lögðu höfundar áherslu á að leggja fram sem
flestar staðreyndir, sem að gagni mættu koma við síðari skýrslu-
gerðir um fæðingar á Islandi. Því hefur tilhögun úrvinnslu og
sögulegt yfirlit verið kynnt í nokkuð löngu máli.
Hafa höfundar þegar getið nokkurra atriða, sem fyrirhugað er að
gera betri skil síðar.
Til dæmis liggja fyrir allmiklar upplýsingar um fæðingaraðgerðir
og afbrigðilegar fæðingar í skýrslum héraðslækna, sem væru þess
virði að færa I letur.
Sérstök athugun fer nú fram á keisaraskurðum á Islandi frá
upphafi. Nánari úrvinnsla er ennfremur 1 undirbúningi á mæðra-
dauða í landinu. I sjúkraskrám Ræðingadeildar Landspítalans er
margskonar upplýsingar að finna um fyrrnefnd atriði allt frá ár-
inu 1931 og raunar einnig 1 sjúkraskrám stærri sjúkrahúsa.
hótt slíkar heimildir séu mismunandi að gæðum, má samt vinna hald-
góðar upplýsingar um meiri háttar atriði, er viðkoma fæðingum í
landinu á liðnum áratugum.
Hrvinnsla fæðingartilkynninga ársins 1972 hefur leitt í ljós ýmsa
athyglisverða hluti, sem hagkvasmni er að> en einnig nokkur atriði,
sem betur mættu fara.
Hyrst skal getið helstu kosta:
1. Utfylling á fæðingartilkynningum hefur yfirleitt verið gerð
af samviskusemi og sjaldgæft er, að nokkuð vanti, sem máli
skiptir, að undanteknum sjúkdómsgreiningum. (sjá síðar)
Vel færðar mæðraskrár gera útfyllingu fæðingartilkynninga
auðvelda.
89