Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Blaðsíða 93
Hér er ekki ástæða til aS ræða frekara einstaka kafla efnisins,
þar sem hér er aðeins um eitt ár að ræða og tölur því lágar.
Hafa höfundar að þessu sinni sleppt að mestu samanburði við
önnur lönd og haldið tölfræðilegum athugunum í lágmarki.
Tölvuúrvinnslu fyrir árið 1973 er rní nærri lokið. ( í júll 1974).
Mun skýrsla þess árs væntanlega verða tilbúin síðla árs 1974.
Þar verður að mestu sleppt sögulegu yfirliti, en I stað þess
gerður frekari samanburður milli áranna 1972 og 1973.
Ennfremur verða í nokkrum tilvikum bornar saman tölur frá Islandi
og nágrannaþjóðum.
Við lok skýrslu þessarar vilja höfundar flytja eftirtöldum
aðiljum þakkir:
Dr. W.P.D.logan og Dr. K.Kupka TOO £ Genf, ásamt meðlimum nefndar
þeirrar, sem undirbjó gerð nýrrar fæðingartilkynningar,
Dr.med. Sigurði Sigurðssyni fyrrverandi landlækni, sem ásamt heil-
brigðismálaráðuneyti tryggði þátttöku Islands I fyrrnefndri sam-
vinnu og greiðslu á kostnaði til tölvuúrvinnslu,
Olafi Olafssyni landlækni fyrir veitta atstoð við útgáfu þessa rits,
Dr.med. Jóni Sigurðssyni borgarlækni fyrir upplýsingar um fæðingar
I Reykjavík,
Benedikt Tómssyni fyrrverandi skólayfirlækni fyrir lestur á hand-
riti og margar góðar ábendingar,
Hagstofustjóra Klemenz Tryggvasyni ásamt starfsfólki Hagstofu Is-
lands, sem hefur veitt ýmsa fyrirgreiðslu og upplýsingar,
Sverri Júlíussyni sérfræðingi I skjalafræði fyrir hönnun fæðingar-
tilkynninga-, mæðraskrár og barnaskrár,
Halldóru Ásgrlmsdóttur ritara Pæðingadeildar landspltalans, sem
Refur skrásett og undirbúið fæðingartilkynningar undir tölvuúr-
vinnslu,
Slíasi Davíðssyni kerfisfræðingi fyrir skipulagningu tölvuvinnslu.
Ennfremur læknum og ljósmæðrum landsins fyrir góða samvinnu frá
upphafi og starfsfólki Pæðingadeildar fyrir margvlslega hjálp við
vinnslu.
91