Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1982, Side 15

Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1982, Side 15
13 þessi var tilkynnt í bréfi til sýslumanna 7. april 1978 (32) og mælt fyrir um að þeim beri að tilkynna sveitarstjórnum, sjúkrahússtjórnum, sýslunefndum og öðrum sem hlut eiga að máli um þetta. Rökstuðningur er sá að sjúkraflutningur hafi verið einn verkþátta þeirra sem lögreglumenn hefðu haft með höndum "sem starfsmenn sveitarfélaga" þrátt fyrir aó hér væri "um að ræóa verkefni sem væri alveg óviðkomandi lögreglu". "Ráðuneytið telur eólilegast að sjúkraflutningar séu i höndum sveitarfélaga, þar sem hér sé um að ræða verkefni, sem aó mati ráðu- neytisins er nærtækast að leysa í hverju byggðarlagi fyrir sig, t.d. í tengslum við sjúkrahús, á vegum sýslu, eóa á annan hátt. Heilbrigóisráóuneytið fer með yfirstjórn þessara mála, sbr. lög nr. 56/1973". I lok bréfsins getur ráðuneytið þess aó það hafi ekkert við þaó aó athuga "að lögreglumenn annist sem aukastarf akstur sjúkraflutningabifreiða í frítíma sinum fyrst um sinn..". Auk þess sem hér var vitnað til getur orsakanna fyrir aðgeróum dómsmálaráðu- neytisins verið aö leita i þessum orðum bréfsins: "Ráðuneytió telur, að nú sé svo komið, að fela verði öðrum aðila þessi verkefni, þar sem sjúkraflutningar eru viðast hvar orðnir alltof kostnaðarsamir vegna ákvæða nýrra kjarasamninga..". Ákvæði kjarasamninga rikisstarfsmanna um hvildartima leiddi til verulegrar aukningar á yfirvinnugreiðslum. Ekki sist munu yfirvinnugreiðslur þeirra lög- reglumanna sem jafnframt önnuðust sjúkraflutning hafa leitt til útgjaldaauka. Þessum útgjaldaauka var nú reynt að sporna við. Fullyrðingunni um útgjalda- aukningu hefur verið mótmælt (33). Segja má aó bréf dómsmálaráðuneytisins hafi valdið ólgu viöa um land og þvi fer fjarri að rnálið sé enn komið i þann farveg sem dóms- og kirkjumálaráðuneytió vildi. Enn annast lögreglan sjúkraflutning viða um land og margir staðir eiga mjög erfitt, svo ekki sé dýpra i árina tekið, að leysa sjúkraflutning án að- stoðar og þátttöku lögreglunnar. Það hefur dómsmálaráðuneytið nú viðurkennt með því aó heimila lögreglumönnum þátttöku i sjúkraflutningi á nýjan leik. Augljóst er að sú breyting getur valdið nýrri ólgu og hætt er við að lögreglumenn tregðist við aó taka til við þjónustu sem þeim áður hafði verið bannað að stunda (34) . Árnessýsla er eina stóra og fjölmenna umdæmið sem enn nýtur lögreglu i sjúkra- flutningum. Sýslumaður sem þar situr hefur mótmælt ákvörðun ráðuneytisins og mun sennilega sporna gegn ósk ráðuneytisins meðan hans nýtur við. 2.11 Tryggingastofnun rikisins Sem fyrr segir kveða lög um almannatryggingar á um greiðslu vegna sjúkraflutn- inga. Fyrst og fremst segja ákvæði 32. greinar laganna (30) að þegar bótaskylt slys valdi sjúkleika og vinnutjóni i minnst 10 daga skal þá að fullu greiða sjúkraflutning með sjúkraflugvé). eða sjúkrabil fyrst eftir slys eða þegar ella verður nauðsynlegt að senda sjúkling með slikum farartækjum til meðferðar hjá lækni eða i sjúkrahúsi, þó ekki fyrir einstakar ferðir, þegar um stundun er að ræða. Ákvæði þessi geta verið erfið i framkvæmd þar sem bótaskyldan og 10 daga vinnutjón þarf ekki að vera ljóst sjúkraflutningsaðilanum, enda hefur ekki verið farið eftir þessari grein svo vitað sé. Það er fyrst og fremst ákvæði 43. greinar, stafliður i. sömu laga, sem áhrif hafa haft á þróun sjúkraflutninga. Þar segir að greiða skuli óhjákvæmilegan flutningskostnað sjúks manns i sjúkrahús innanlands að 3/4 hlutum. Þó skal ekki greiða flutning innanbæjar og frá kostnaði við sjúkrabifreið dregst kostnaóur vegna fyrstu 10 km. Ósamræmi er i reglum þessarar greinar og niðurlagsmálsgrein sama stafliðar en þar segir að um kostnað flutnings milli sjúkrahúsa fari eftir þvi sem kveðið kann að vera á um i lögum um heilbrigðisþjónustu. Það er e.t.v. aukaatriói i þessu sambandi að ákvæði þar að lútandi er ekki að finna i áminnstum lögum. Framkvæmdin er sú aö sjúkraflutningakostnaður er að fullu greiddur þegar um flutninga milli sjúkrahúsa er að ræóa. Að visu hefur komið upp ágreiningur milli sjúkrahúsa um hvaða sjúkrahús eigi að standa straum af slikum kostnaði. Ekki er kunnugt um dæmi þess að sjúkiingar hafi goldið sliks ágreinings. Þó telja þeir sem til þekkja að svo hljóti að vera (35). Hinsvegar safnast ógreiddir reikn- ingar fyrir þar sem sjúkrahús telja sér ekki bera skyldu til aó greiða sjálf flutninginn (36). Veittur er réttur i 41. grein laganna þar sem segir: "Hverjum þeim, sem sjúkra- tryggður er skv. 40. gr. (þ.e. allir landsmenn, innsk. E.Á.) ókeypis vist ... eins lengi og nauðsyn krefur, ásamt læknishjálp og lyfjum og annarri þjónustu sem sjúkrahúsið veitir".

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.