Fréttablaðið - 24.11.2022, Page 4
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
JEEP® COMPASS TRAILHAWK 4XE
ALVÖRU JEPPI – ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
JEEP.IS
PLUG-IN HYBRID
ÓMISSANDI HLUTI
AF FJÖLSKYLDUNNI
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
ser@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Háfjallakvillar af
margvíslegu tagi hrjá æ fleiri lands-
menn eftir því sem fleiri þeirra klífa
hæstu fjöll heimskringlunnar á borð
við Atlasfjöllin í Marokkó, Kilim-
anjaró í Afríku og Himalajafjöllin í
Nepal, en ferðir af því tagi hafa mjög
færst í vöxt á síðustu árum.
Af þessum sökum hafa fimm
læknar tekið sig saman og safnað
áhugaverðum upplýsingum um téða
kvilla og meðferðir við þeim, svo og
forvarnir, en fimmmenningarnir
eru allir áhugamenn um útivist og
hafa tekið þátt í háfjallaleiðöngrum
erlendis.
„Þetta snýst ekki bara ferðalög
á hæstu fjöll, heldur líka skíða-
ferðir í Alpana og Klettafjöllin, en
þar komast menn í býsna mikla
hæð og kynnast hæðarveikinni, án
þess kannski að gera sér grein fyrir
henni,“ segir Tómas Guðbjartsson,
hjarta- og lungnaskurðlæknir, fjalla-
leiðsögumaður og einn höfunda
kversins. Fjölmargir sjúkdómar
geta gert vart við sig í mikilli hæð
yfir sjávarmáli, jafnt háfjallaveiki,
sem er algengasta birtingarform
hæðarveiki, sem og lífshættulegir
sjúkdómar á borð við hæðarlungna-
bjúg og hæðarheilabjúg.
„En algengustu kvillarnir samfara
mikilli hæð eru hausverkur, lystar-
leysi, meltingartruflanir og almenn-
ur slappleiki sem margir halda að sé
bara flensa,“ segir Tómas enn fremur
og minnir á að áfengi, svo sem eins
og í skíðaferðum, hjálpi fráleitt til í
þessum efnum.
Kverið er ríkulega myndskreytt
og gefið út í samvinnu við Ferða-
félag Íslands og útivistarverslanirnar
Fjallakofann, Everest og 66°Norður,
en allur ágóði af sölu þess rennur til
stígagerðar á hálendi Íslands. n
Æ fleiri landsmenn kljást við háfjallaveiki
Fjallalæknarnir fimm sem skrifa kverið um háfjallakvilla. MYND/AÐSEND
VR sakar seðlabankastjóra
um ofbeldi gegn almenn-
ingi í landinu. Hann segir
launahækkanir gagnslausar
í óðaverðbólgu. Formaður
Einingar-Iðju vill ekki slíta
kjaraviðræðum.
bth@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL Ásgeir Jónsson seðla-
bankastjóri segir vegna boðaðra
viðræðuslita stéttarfélaga í kjara-
samningum að Seðlabankinn sé
ekki aðili að kjarasamningum.
„ S e ðlaba n k i n n s a m k væmt
lögum verður að fylgja verðbólg-
umarkmiðum og það er Peninga-
stefnunefnd sem tekur sjálfstæðar
ákvarðanir,“ sagði Ásgeir í samtali
við Fréttablaðið í gærkvöld. „Seðla-
bankinn getur aldrei með beinum
hætti orðið aðili að kjarasamning-
um,“ bætir hann við.
Ásgeir segir að tal um að slíta
kjaraviðræðum muni engu breyta
um vaxtaákvarðanir Seðlabankans.
„Við þurfum að vernda kaupmátt
og vernda verðgildi peninganna. Ef
við myndum ekki standa að baki
verðgildi peninganna þá fer verð-
bólgan í hæstu hæðir og kjarasamn-
ingar yrðu algjörlega vonlausir,“
segir Ásgeir Jónsson og bætir við að
stórfelldar kjarahækkanir megi sín
lítils ef þær brynnu upp í óðaverð-
bólgu.
„Aftur á móti eru kjarasamningar
háðir því að við stöndum við okkar
hlutverk, sem er að halda verðbólgu
niðri.“
Stýrivextir eru eftir gærdaginn
komnir í sex prósent og hafa ekki
verið hærri í tólf ár. Hækkun gær-
dagsins um 0,25 prósent hefur verið
fordæmd. Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR, segir að í Þýskalandi
séu stýrivextir aðeins um tvö pró-
sent en verðbólga þó meiri en hér.
Seðlabankinn spili sóló.
Spurður út í þau ummæli Ásgeirs
að Seðlabankinn sé ekki aðili að
kjarasamningum segir Ragnar
Þór að hlutverk Seðlabankans sé að
verja lífskjör fólksins í landinu. Því
hlutverki hafi hann brugðist.
„Seðlabankastjóri hefur síendur-
tekið beint spjótum sínum að verka-
lýðshreyfingunni. Hann hefur sagt
boltann hjá okkur en nú segir hann
að Seðlabankinn sé ekki aðili að
samningum. Ásgeir talar í hringi,
hann er algjörlega ómarktækur,“
segir Ragnar Þór.
Staðan sem upp er komin er
grafalvarleg að sögn formanns VR.
„Nú þarf að rísa upp gegn fjár-
hagslegu ofbeldi Seðlabankans gegn
fólkinu í landinu. Við munum grípa
til aðgerða.“
Til marks um ójafnvægið nefnir
Ragnar Þór afkomutölur bankanna.
Hann segir að hreinar vaxtatekjur
þeirra fyrstu níu mánuði þessa árs
verði 90 milljarðar króna.
„Það er ljóst fyrir hvern Ásgeir er
að vinna. Hann kemur úr banka-
kerfinu.“
Björn Snæbjörnsson, fyrrverandi
formaður Starfsgreinasambandsins
og formaður Einingar-Iðju, sem
situr í viðræðunefnd sambandsins
er ekki á þeirri skoðun að viðræðus-
lit í kjarasamningum séu lausnin.
„Við þurfum núna að finna nýjar
leiðir til að bæta okkar kröfugerð.
Ég met það þannig að mönnum beri
skylda til að setjast niður og reyna að
ná nýjum kjarasamningi til að okkar
fólk öðlist hærri tekjur til að geta
greitt hærri reikninga,“ segir Björn. n
Verkalýðsforkólfar ósammála um slit
á viðræðum um kjarasamningana
benediktarnar@frettabladid.is
IÐNAÐURX Í gær var stofnfundur
Samtaka menntatæknifyrirtækja
haldinn í Hörpunni, en um er að
ræða nýjan starfsgreinahóp innan
Samtaka iðnaðarins.
Meinatækni er sívaxandi iðnaður
sem er metinn á 24 milljarða króna á
alþjóðavísu. Um er að ræða rótgróna
iðngrein sem á sér áratugasögu, en er
tiltölulega ung hér á landi. Greinin
hefur þó burði til þess bæta árangur
nemenda hér á landi og renna fleiri
stoðum undir íslenskt hagkerfi.
Íris E. Gísladóttir, formaður Sam-
taka menntatæknifyrirtækja segir
að stofnfundurinn sé í raun vit-
undarvakning um menntatækni og
möguleika iðnaðarins.
„Þetta er rótgróin iðngrein á
alþjóðavísu. Hún hefur ekki vaxið
hér á landi, miðað við önnur lönd
sem við berum okkur saman við. Við
viljum vekja athygli á því að þetta er
spennandi iðnaður til að fara út í
og það eru ýmsir spennandi mögu-
leikar í boði,“ segir Íris.
Íris segir námsárangur barna
almennt betri þar sem menntatækni
hefur fengið að vaxa.
„Þetta iðnaður sem getur verið
hluti af uppbyggingu á hugverka-
iðnaði á Íslandi og það hefur sýnt sig
að þau lönd sem hafa lagt áherslu á
menntatækni standa framar í náms-
árangri barna,“ segir Íris. n
Iðnaður sem
leiðir til betri
námsárangurs
Nú þarf að rísa upp
gegn fjárhagslegu
ofbeldi Seðlabankans
gegn fólkinu í landinu.
Ragnar Þór Ing-
ólfsson, VR
En það þýðir ekki að
kjarasamningar séu úr
sögunni.
Björn Snæ-
björnsson,
formaður Starfs-
greinasambands
Íslands
Grafalvarleg staða er komin upp í samfélaginu eftir útspil Seðlabankans sem
hækkaði enn stýrivexti í gær. Verkalýðshreyfingin logar og seðlabankastjóri
er borinn þungum sökum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Íris E. Gísladóttir,
formaður Samtaka
menntatæknifyrir-
tækja
4 Fréttir 24. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ