Fréttablaðið - 24.11.2022, Qupperneq 10
95 ÁRA AFMÆLISGANGA FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS
Gengið á Stóra-Hrút í Geldingadölum og heim Meradali
Gangan hefst kl. 10 frá bílastæði norðan Ísólfsskála og tekur 4-5 klst.
Fararstjórar eru Tómas Guðbjartsson, Auður K. Ebenesardóttir og Ingibjörg Jónsdóttir.
Sérstakur gestur er Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands
- sem fræðir göngufólk um jarðfræði svæðisins.
Mætið vel útbúin til gönguferðar, í útivistarfatnaði og í góðum skóm, með bakpoka og nesti til göngunnar.
Ferðafélag Íslands / Mörkinni 6 - 108 Reykjavík / sími (+354) 568 2533 / netfang fi@fi.is / heimasiða www.fi.is
Sunnudaginn 27. nóvember 2022
ÖLL
VELKOMIN
ÓKEYPIS
AÐGANGUR
Gamalreynd blóðþrýstings-
lyf virðast reynast vel sem
lyf gegn ADHD. Þetta sýnir
ný rannsókn sem gerð var á
sebrafiskum.
kristinnhaukur@frettabladid.is
VÍSINDI Ný rannsókn vísinda-
manna sprotafyrirtækisins 3Z lofar
góðu hvað varðar lyfjagjöf fyrir
þá sem eru með ADHD. Hafa þeir
prófað stór lyfjasöfn á sebrafiskum
til að finna þau lyf sem henta best.
„Ef þetta sýnir góða virkni í
mönnum, sem eru góðar líkur á,
þá myndi þetta nýtast stórum hópi
ADHD-sjúklinga,“ segir Haraldur
Þorsteinsson, rannsóknar- og þró-
unarstjóri og einn af stofnendum
3Z sem er sprotafyrirtæki sem varð
til í Háskólanum í Reykjavík.
Í dag er metýlfenídat notað gegn
ADHD. En það er örvandi og hefur
nokkuð miklar aukaverkanir, svo
sem svefntruf lanir, svefnleysi og
minnkun matarlystar. Þá er einn-
ig hætta á misnotkun. Þar að auki
virka lyfin aðeins fyrir um 65 pró-
sent sjúklinga því stór hópur svarar
þeim ekkert sérstaklega vel.
Vísindamennirnir í 3Z hafa skim-
að stór lyfjasöfn í sebrafiskum til
að þrengja hópinn. Það er, þau lyf
sem fiskarnir svara vel eru prófuð
áfram í rottum eða músum.
„Sebrafiskar og menn hafa mjög
skyld erfðamengi,“ segir Haraldur.
„Samsvörunin er yfir 80 prósent.
Þeir fjölga sér mjög hratt og við
getum gert allar okkar mælingar
í seiðum.“ Sífellt sé verið að nota
sebrafiska meira og meira í lífvís-
indum, sérstaklega taugavísindum.
En almenningur þekkir þessa
suður asísku fiska einna helst úr
gullfiskabúrum.
Vísindamenn 3Z nota sebrafiska
mikið, en fyrirtækið sérhæfir sig í
lyfjaþróun tauga- og geðsjúkdóma
og -raskana. Meðal annars hafa
þeir gert rannsóknir á MND- og
Parkinsonsjúkdómunum.
Í þessari rannsókn, sem birt var
í vísindatímaritinu Neuro psycho-
pharmacology fyrir skemmstu,
eru helstu niðurstöðurnar þær að
fjögur áður þekkt lyf og eitt nýtt lyf
gefi góða svörun gegn ADHD. Þessi
áður þekktu lyf eru í dag notuð
gegn of háum blóðþrýstingi.
„Þetta eru lyf sem hafa verið
lengi á markaði og geta verið end-
urskilgreind sem ADHD-lyf,“ segir
Haraldur. Þetta eru ekki örvandi lyf
og þeim fylgir því ekki sama hætta
á misnotkun. Það er, þau hafa ekki
bein áhrif á dópamínmóttakara í
heilanum. Aukaverkanirnar eru
einnig vel þekktar og eru minni en
þær sem fylgja metýlfenídati.
Spurður um næstu skref segir
Haraldur að það séu prófanir á
mönnum, svokallaðar fasa tvö
prófanir í þröngum sjúklingahópi.
Gefi þær góða raun eru prófanirnar
útfærðar til stærri sjúklingahóps.
Telur Haraldur að lyfjunum gæti
verið vísað til þeirra sem eru með
ADHD eftir kannski f jögur eða
fimm ár. Ferlið sé töluvert styttra
þegar verið sé að endurskilgreina
gömul lyf því þau þurfa ekki að fara
í gegnum sömu öryggisprófanir og
ný. n
Þróa lyf gegn ADHD með sebrafiskum
Sebrafiskar henta vel til að prófa stór lyfjasöfn, til dæmis við tauga- og geð-
sjúkdómum. MYND/AÐSEND
Sebrafiskar og menn
hafa mjög skyld erfða-
mengi.
Haraldur
Þorsteinsson,
rannsóknar- og
þróunarstjóri 3Z
kristinnhaukur@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Sigurður Ingi Jóhanns-
son innviðarráðherra vill breyta
lögum um Jöfnunarsjóð til að í þeim
verði hvatar til sameiningar sveitar-
félaga. Mörg af smærri sveitarfélög-
um landsins fá stóran hluta tekna
sinna úr sjóðnum.
Samkvæmt áformum ráðherra
mun sjóðurinn styðja áfram við
veikari byggðir en innbyggðir verða
hvatar til sameiningar.
Forsvarsmenn Gr ý tubak ka-
hrepps hafa verið meðal háværustu
gagnrýnenda áformanna. Í umsögn
hreppsins segir að lagabreytingarnar
hverfist að mestu um sameiningar.
„Ekki er minnst á meginhlut-
verk sjóðsins, sem er að gera öllum
sveitarfélögum kleift að veita íbúum
landsins lögbundna þjónustu og eins
sambærilega um land allt og kostur
er,“ segir þar. Skerðing framlaga leiði
af sér veikari byggðir.
Annað sveitarfélag sem gerir
athugasemdir er Skagabyggð, sem
telur innan við 100 íbúa.
„Það verður að tryggja að ekki
verði gengið á rétt minni sveitar-
félaga sem ekki hafa náð samningum
um að sameinast,“ segir í umsögn-
inni. n
Lítil sveitarfélög
ósátt við áform
um sameiningar
Sigurður Ingi
Jóhannsson, inn-
viðaráðherra
10 Fréttir 24. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ