Fréttablaðið - 24.11.2022, Page 52
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Kristjana Björg Reynisdóttir
fatahönnuður aðstoðaði
við gerð búninga fyrir atriði
David Guetta og Bebe Rexha á
MTV European Music Awards
í Düsseldorf fyrr í mánuð-
inum. Kristjana starfaði við
hátíðina í annað sinn og segir
það góða innspýtingu fyrir
hugann og hönnun sína að fá
að taka þátt.
lovisaa@frettabladid.is
Kristjana býr og starfar í Berlín þar
sem hún hannar fyrir fatamerkið
DSTM sem stendur fyrir Don’t shoot
the messenger. Þó svo að Kristjana
starfi sem fatahönnuður hefur hún í
gegnum feril sinn reglulega tekið að
sér verkefni sem snúa að búninga-
hönnun og segir það gott fyrir list
sína að gera það af og til.
„Þegar ég kem til baka úr svona
verkefni er ég svo full af innblæstri
og krafti. Þetta er í annað sinn
sem ég geri þetta. Samstarfskona
mín hefur gert þetta af og til. Við
fórum saman í fyrra en ég fór ein í
ár. Maður kynnist þarna fólkinu og
það er margt sem dregur að. Ég er
strax farin að huga að næstu hátíð
núna, þetta er svo skemmtilegt,“
segir Kristjana.
Starf hennar á hátíðinni var í bún-
ingadeildinni sem sér um búninga
fyrir alla dansara sem koma fram.
„Stórstjörnurnar eru í tískufatn-
aði þannig að við sjáum bara um
dansara. Annað hvort að hanna
fötin, stílísera þau eða breyta og
laga það sem þau eru í. Þetta eru alls
konar tilfallandi verkefni líka. Það
getur alveg komið eitthvað upp hjá
stórstjörnunum og þá þarf maður
að vera tilbúinn til að stökkva í það.
Að sauma fötin utan á þau rétt áður
en þau fara upp á svið,“ segir Krist-
jana og því sé rík krafa um að geta
sinnt fjölbreyttum störfum meðan
á hátíðinni stendur.
Fær úthlutað atriði
Hver starfsmaður í búningadeild fær
úthlutað atriði og hún fékk í ár atriði
David Guetta og Beba Rexha en
þau gáfu nýlega út lagið I’m Good.
Kristjana segir að klæðnaður dans-
aranna á hátíðinni hafi verið inn-
blásinn af búningi söngkonunnar í
myndbandi sem fylgir laginu en það
er ekki enn komið út.
Hún segist mjög ánægð með
útkomuna en hún hefur þó aðeins
séð atriðið á myndbandi þar sem
hún þurfti að vera til baksviðs á
meðan því stóð.
„Maður tók við dönsurum bak-
sviðs með tárin í augunum. Ég er
svakalega ánægð með útkomuna.
Það var yndislegt að sjá líka hversu
glöð þau voru.“
Svakaleg vinna en vel þess virði
Kristjana segir að það sé svakaleg
vinna að taka þátt í svona verkefni.
Hún hafi verið í vinnu í Dusseldorf
í fimm daga á þessu ári og að dag-
arnir hafi verið mjög langir.
„Það er alveg þess virði. Það er
séð vel um mann hvað varðar mat
og drykk. Svo er þetta svo ótrúlega
skemmtilegt að þú finnur í raun
ekki fyrir þreytunni fyrr en þú
kemur upp á hótel, eða bara hrein-
lega heim eftir að þessu er lokið.“
Á hátíðinni komu fram stór-
stjörnur eins og Taylor Swift, David
Guetta, Lewis Capaldi og Kalush
Orchestra frá Úkraínu. Kristjana
segir að í samræmi við það sé örygg-
isgæslan svakalega mikil en að þau
sem starfi í búningahönnun hafi
aðgang að öllum svæðum svo þau
geti sinnt hverju og hverjum sem er.
„Stundum þarf maður að passa
sig að vera eðlilegur. Þegar maður
er að taka málin af einhverjum stór-
stjörnum. Baksviðs sér maður þau
og vinkar feimnislega. Maður fær
auðveldlega stjörnur í augun,“ segir
Kristjana og hlær.
Hún segir frá einu atviki þar sem
hún var að labba baksviðs með
fullar hendur af búningum og rakst
í mann sem sneri sér við.
„Þá var það Taika Waititi sem var
kynnir á hátíðinni.“ n
Kristjana við störf á hátíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Dansarar David Guetta og Bebe Rexha á sviði FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Stílíseraði atriði
David Guetta á MTV-hátíð
Í KVÖLD
FRÉTTAVAKTIN
MANNAMÁL
SUÐURNESJAMAGASÍN
GRÆN FRAMTÍÐ
KL. 18.30 og KL. 20.30
KL. 19.00 og KL. 21.00
KL. 19.30 og KL. 21.30
KL. 20.00 og KL. 22.00
ninarichter@frettabladid.is
Fyrirsætan og leikkonan Julia Fox
hefur opnað sig um það sem hún
kallar „raunverulegar ástæður þess
að hún átti í sambandi við rappar-
ann Kanye West“. Hún sagði í TikTok-
vídeói að tilgangurinn hefði verið að
„trufla hann“ frá því að halda áfram
að áreita fyrrverandi eiginkonu sína,
Kim Kardashian. Kanye fór á sínum
tíma mikinn á samfélagsmiðlum og
úthúðaði eiginkonunni fyrrverandi
og nýjum kærasta hennar, nú fyrr-
verandi, Pete Davidson. Kim og Pete
áttu í hálfsmánaðar löngu sambandi
stuttu eftir að Kim og Kanye skildu
eftir sex ára hjónaband.
Julia Fox ætlaði upphaflega að
leysa frá skjóðunni í væntanlegri
bók um málið en ákvað að tjá sig
eftir gagnrýni á samfélagsmiðlum. n
Með Kanye til að bjarga Kim frá áreiti
Leikkonan Julia Fox.
44 Lífið 24. nóvember 2022 FréTTablaðið