Fréttablaðið - 24.11.2022, Page 56

Fréttablaðið - 24.11.2022, Page 56
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun Torg ehf. dReifing Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Kolbeins Marteinssonar n Bakþankar Heimsmeistaramótið í knatt- spyrnu karla hófst í vikunni en venju samkvæmt er keppni þessi haldin snemmsumars á fjögurra ára fresti. Sumarið 2018 var þessi keppni haldin í Rússlandi. Ísland var þar í fyrsta sinn rétt eins og smáríkið Katar sem nú tekur þátt í keppninni í fyrsta sinn. En hvers vegna eru ríki að berj- ast um að fá að halda keppnir sem þessar þrátt fyrir mikinn kostnað? Sumstaðar þykir það réttlætan- legt að eyða stórum fjárhæðum í að halda slíka alþjóðaviðburði og kostnaður talaður niður þar sem það muni svo margt jákvætt koma í kjölfarið. Þegar smáríkið Katar ákvað að sækjast eftir því að halda heimsmeistarakeppnina þótti mörgum það fásinna. Engin mannvirki voru til staðar í Katar fyrir heimsmeistarakeppni og hiti á sumrin er slíkur að ómögulegt er að spila fótbolta. Þess vegna er þessi keppni nú haldin á jólaaðventu en ekki um sumar. Katar hefur fengið mikla athygli. Sumir segja að skaðinn af henni verði slíkur að hann verði ekki metinn til fjár fyrir ríkið. Ímynd Katar sem auðgaðist óhóf- lega á olíu og gasi er nú alþekkt og skýr fyrir alheiminum. Mútur og mannréttindabrot koma fyrst upp í hugann. Stórkostleg sóun og bruðl er annað sem hlýtur að fylgja en talið er að uppbygging fótboltavalla auk annarra innviða í Katar hafi kostað 220 milljarða Bandaríkjadala. Þúsundir erlendra verkamanna létu lífið við fram- kvæmdirnar en í takt við þessa gegndarlausu sóun verður allt rifið að keppni lokinni. Ég hef staðist allar freistingar og ekki horft á einn leik og ég ætla að reyna að halda því áfram. Þegar upp er staðið munu allir tapa í þessari heimsmeistarakeppni. Gleðileg jól. n Heims um bolta Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Allt fyrir veisluna Skreytingar Borðbúnaður Búningar Tækjaleiga Kalkúnn ýmsar stærðir BJARTIR DAGAR 24. nóvember - 4. desember af völdum vörum A ll t a ð afsláttur 50% Skráðu þig á viðburðinn á facebook og þú gætir unnið Cozze pizzaofn Jólavörur - Kósývörur - Lemax jólaþorp - Ljós - Perur (ekki Philips Hue) - Ryobi garðverkfæri Ryobi verkfæri - Toe Guard og Solidgear öryggisskór - Snickers vinnufatnaður B ir t m eð fy ri rv ar a um p re nt vi ll ur o g/ eð a m yn da br en gl . 25 %

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.