Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 4
480 þúsund greiðir Reykja- víkurborg í viðhalds- gjald á hverjum degi. Þetta er ekki forgangs- mál alls staðar en við erum að komast þang- að. Amy Wickham, sérfræðingur hjá Barnahjálp SÞ benediktboas@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Reykjavíkurborg hefur samþykkt í innkaupa- og framkvæmdaráði að kaupa níu þúsund lampa fyrir ljósastaura fyrir 1,1 milljarð króna. Gert er ráð fyrir að lamparnir verði búnir að greiða sig upp á sex til sjö árum en líftími lampa er áætlaður 20 til 25 ár. Í Reykjavík eru um 25.200 lampar í eigu Reykjavíkurborgar og 7.700 lampar í eigu annarra. Borgin er þegar búin að skipta út 12 þúsund lömpum en fjögur þúsund lampar eru til á lager og bíða þess að verða settir upp. Tveir verktakar eru að vinna að uppsetningu þeirra. „Borgin verður að einhverju leyti bjartari með nýrri lýsingu vegna þess að eldri lampar hafa veðrast með tímanum. Nýja lýsingin leggur einnig meiri áherslu á lýsingu fyrir gangandi og hjólandi,“ segir í svari borginnar við fyrirspurn Frétta- blaðsins. Í svarinu segir að rafmagns- kostnaður fyrir gatnalýsinguna sé 60 þúsund krónur á klukkustund þar sem Reykjavíkurborg greiðir 38.400 krónur en aðrir notendur 21.600 krónur. Viðhaldsgjald sé 750 þúsund krónur á dag alla daga ársins og þar af greiðir Reykjavíkurborg 480 þúsund krónur á dag. n Milljarður króna í betri lýsingu frá ljósastaurum benediktboas@frettabladid.is SAMGÖNGUR Flugfélagið Play var með betri sætanýtingu en Ice land- air annan mánuðinn í röð. Sætanýt- ing Play í nóvember var 79,1 prósent, að því er fram kemur í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í gær. Ice- land air gaf út sínar farþegatölur á þriðjudag þar sem fram kom að sætanýting í nóvember hefði verið 73 prósent. Í október var sætanýting Play einnig betri en hjá Icelandair eða 81,9 prósent gegn 80 prósentum hjá Icelandair. Stundvísi Play í nóvember var heil 98,2 prósent en samkvæmt til- kynningunni hefur Play aldrei náð betri stundvísi frá því að full starf- semi hófst. „Það hefur verið einkar ánægjulegt að sjá meiri en 90 pró- sent sætanýtingu á mörkuðum á borð við London og París. Þá er ég virkilega stoltur af stundvísi Play í mánuðinum. Okkur er mjög í mun að þjónusta farþega Play á sem best- an hátt og þetta er afraksturinn,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play. n Play var betra en Icelandair annan mánuðinn í röð Birgir Jónsson, forstjóri Play, segist vera stoltur af stundvísi félagsins. ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 R A M BÍLL Á MYND: RAM 3500 LARAMIE CREW CAB MEÐ 37” BREYTINGU, KASTARAGRIND OG LJÓSKÖSTURUM EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX! VERÐ FRÁ 10.371.732 KR. ÁN VSK. 12.860.948 KR. M/VSK. ÖFLUG 6,7 LÍTRA CUMMINS DÍSELVÉL, 370/420* HESTÖFL OG *AISIN SJÁLFSKIPTING. RAM 3500 ER MEÐ MESTA INNRARÝMIÐ (MEGA CAB) Í SÍNUM FLOKKI. BJÓÐUM UPP Á 35”, 37” OG 40” BREYTINGAPAKKA. kristinnhaukur@frettabladid.is KJARAMÁL Heilbrigðisstarfsfólk sem starfar hjá ríkinu eftir sjötugt mun geta frestað að taka út lífeyr- inn sinn. Þetta kemur fram í nýjum drögum að lagabreytingu sem Will- um Þór Þórsson heilbrigðisráðherra tilkynnti upprunalega um í sumar. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu óttaðist Landssam- band eldri borgara að eldra fólk yrði nýtt sem ódýrt vinnuafl. Samkvæmt drögum Willums mun fólk ekki greiða í samtrygging- arsjóð eftir sjötugt. Hins vegar má láta draga af launum sínum upphæð sem fer í séreignarsjóð. Greiðir hið opinbera þá mótframlag á móti. n Munu geta frestað lífeyristökunni Sérfræðingur hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna segir mikilvægt að lögð sé áhersla á börn í öllum aðgerðum og að þau fái að taka þátt. Barna- hjálpin hefur sent frá sér neyðarkall upp á tíu milljarða Bandaríkjadala til að bregðast við neyð barna, meðal annars vegna loftslagsvárinnar. lovisa@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Amy Wickham, sérfræðingur hjá Barnahjálp Sam- einuðu þjóðanna, segir algert lykil- atriði að loftslagsaðgerðir séu barn- miðaðar, að börn séu áhersluatriði þegar slíkar aðgerðir eru skipu- lagðar og að börnum sé gert kleift að taka þátt. Wickham var á landinu í síðustu viku, fundaði með ráða- mönnum og kynnti stefnu UNICEF. „Loftslagskrísan snýst um réttindi barna og börn munu þola alvar- legustu afleiðingar hennar. Á sama tíma bera þau minnstu ábyrgðina á henni og það er því skylda okkar að þau fái að taka þátt í þeim ákvörð- unum sem við tökum í dag,“ segir Wickham. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna sendi nýlega frá sér neyðarákall og óskaði eftir um tíu milljörðum Bandaríkjadala til að styðja við börn sem hafa orðið fyrir áhrifum stríðsátaka, náttúruhamfara og loftslagsbreytinga. Takist söfnunin er gert ráð fyrir að á næsta ári verði hægt að aðstoða 110 milljón börn í neyð í 155 löndum um allan heim. Í ákallinu segir framkvæmdastýra samtakanna, Catherine Russell, að aldrei hafi fleiri börn búið við neyð í heiminum vegna hamfara og stríðs- átaka og að loftslagsváin auki enn frekar á þann vanda. Amy hefur unnið að því í nærri áratug að innleiða barnmiðaðar aðgerðir í loftslagsmálum og segir að það hafi margt breyst á þessum tíma. Til að byrja með hafi fáir viljað hlusta á hana en í dag sjái hún að fleiri taki málið alvarlega og að á æ fleiri stöðum fái börn að taka þátt, að segja sína skoðun og aðstoða. „Ungt fólk fær nú oftar tækifæri til að raunverulega hafa áhrif og það er risastórt skref. Þetta er ekki for- gangsmál alls staðar en við erum að komast þangað. Bara á síðustu tólf mánuðum hef ég séð mikla þróun. En það er alltaf hægt að gera betur.“ Amy segir starfið geta tekið á en að það hjálpi að sjá von hjá ungu fólki. Hún rannsakaði fyrir COP27 hvað 167 lönd eru að gera til að bregðast við loftslagsvánni og flokk- aði þau í fjóra flokka eftir því hversu góð viðbrögðin eru og hversu vel þau taka tillit til barna. Ísland var meðal landanna sem voru rann- sökuð en Ísland var í f lokki C sem þýðir að landið uppfyllti aðeins við- mið fyrir einn af fjórum flokkum. Spurð hvar við ættum að byrja hér á landi segir Amy: „Með því að upplýsa fólk. Þetta er nýtt, þessar barnmiðuðu aðferðir, og ég held að það sé best að byrja á því að kynna þær fyrir fólki og hvernig það getur nýtt sér þær. Á sama tíma er mjög gott að líta til þeirra sem standa sig vel og nýta sér þekkinguna sem þegar er til staðar.“ Hún segir að hingað til hafi hún fundið fyrir hiki við að innleiða þessar aðferðir. Mörg lönd séu mjög fókuseruð á að innleiða aðgerðir sem eigi að koma í veg fyrir loftslagsbreyt- ingar en mjög mikilvægt að aðgerðir miði að því að aðlagast breyting- unum sem þegar eru orðnar. n Loftslagsaðgerðum verði að vera beint að börnum og þau fái að taka þátt Börn þola alvarlegustu af- leiðingar lofts- lagskrísunnar að sögn sérfræð- ings UNICEF. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY 4 Fréttir 8. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.