Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 48
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Kolbeins Marteinssonar n Bakþankar Það var gæfa að móðir mín skyldi eignast mig 19 ára gömul. Sökum ungs aldurs hennar ólst ég upp fyrstu ár mín hjá ömmu minni, Þóru Helgadóttur. Hún varð fyrir vikið gríðarstór hluti af lífi mínu sem amma, uppalandi og leið- togi. Í daglegum samskiptum var lagður grunnur að órjúfan- legum böndum sem héldust allt til andláts hennar árið 1996. Við bjuggum líka skammt frá þannig að samskipti voru alla tíð mikil. Eitt það síðasta sem hún gerði daginn sem hún dó, áður en hún hvarf í móðu verkjalyfja sárþjáð af krabbameini, var að hringja til Danmerkur þar sem ég bjó. Hún vildi kveðja mig og brýna fyrir mér að ég hefði val um hvaða stefnu líf mitt myndi taka. Ég hugsa að hún hafi haft af mér áhyggjur sem voru kannski ekki alveg óþarfar. Við hittumst í síðustu viku stórfjölskyldan og fögnuðum því að amma Þóra hefði orðið 100 ára. Það var falleg og skemmtileg stund. Ég er samt ekkert viss um að amma hefði kært sig um að verða svona gömul með öllum þeim takmörkunum sem geta fylgt hárri elli. Við grínuðumst líka með að væri hún enn á lífi væri hún örugglega líka búin að gera okkur, afkomendur sína, alla gráhærða. Eftir stendur þó, að líf sem enn er fagnað áratugum eftir að því lauk, er líf sem var vel lifað. Fyrir mig skiptir þó mestu sú virðing, vinátta og óbilandi trú sem amma hafði á mér. Það er eitt besta veganesti sem ég fékk út í lífið og veitir mér styrk á hverjum degi. En kannski er besta lexían sú að ég ætla að verða jafngóður afi ef til þess kemur fyrir mín barna- börn og hún var amma fyrir mig. Þá kannski muna þau eftir mér þegar ég verð 100 ára. n Hundrað ára Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Allt fyrir veisluna Skreytingar Borðbúnaður Búningar Tækjaleiga Jólablað Nettó Allt fyrir jólin á einum stað Skannaðu QR kóðann B ir t m eð fy ri rv ar a um p re nt vi ll ur o g/ eð a m yn da br en gl . Jólatrén eru komin Stafafura frá Skógræktinni 125-150 CM 5.995 100-150 CM 5.995 Nordmannsþinur 150-175 CM 6.995 150-200 CM 6.995 175-200 CM 7.995 200-250 CM 7.995 Það er eitthvað við lyktina af grenitrjám. Sumir elska að skreyta það á meðan öðrum finnst skemmtilegast að velja það Öll okkar tré eru sérvalin og ættu því öll að geta fundið sitt fullkomna jólatré afsláttur af öllum kósí- og jólavörum 25%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.