Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 27
Okkar draumur og von er að við getum komið að þessu með jákvæðum hætti. Þorvaldur Arnarsson fékk styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna í vor. Hann vinnur að verkefni sem gengur út á að fullnýta allt sem til fellur við landeldi á laxi. Hann vinnur nú að verkefninu hjá Landeldi hf. Þorvaldur er meistaranemi í sjávarauðlindafræði og hefur gríðarmikinn áhuga á fullnýtingu sjávarafurða. Það vakti áhuga hans hvað Íslendingar hafa staðið sig vel í fullnýtingu á þorski og hann vildi athuga hvort hægt væri að nýta lax á svipaðan hátt. „Núna er fordæmalaus uppbygg- ing fyrirhuguð á landeldi á laxi hér á landi. Landeldi opnar möguleik- ann á að stýra aðstæðum og grípa allt sem til fellur við fiskeldið, til dæmis mykju og eins roð, bein og annað. Á þessum grunni sóttum við um styrk til Nýsköpunarsjóðs námsmanna fyrir verkefninu Endurnýting hliðarstrauma,“ útskýrir Þorvaldur, sem starfar nú sem verkefnastjóri hjá Landeldi. „Verkefnið var í raun mjög fljótt að vinda upp á sig af því að um leið og ég sótti um styrkinn, kom út skýrsla frá Matís þar sem verið var að kortleggja möguleika í úrgangi fiskeldis. Niðurstaðan var mjög eindregið á þá vegu að hægt væri að nýta hann til áburðargerðar.“ Þorvaldur segir að verkefnið hafi því snúist að mestu leyti um það að kortleggja með hvaða hætti best er að endurvinna laxeldisúrgang til áburðargerðar. „Það er gaman að segja frá því að síðan við fórum af stað með verk- efnið höfum við sótt um styrki hjá fleiri sjóðum og það hefur hlotið brautargengi á hverri einustu víg- stöð,“ segir hann. „Það er mikið verk eftir óunnið á þessari vegferð, en vonandi höldum við áfram að njóta stuðnings þeirra sem geta aðstoðað okkur við að raungera þetta.“ Verkefnið hefur stækkað það hratt að í sumar voru Landeldis- samtök Íslands stofnuð með öllum þeim félögum sem eru að fara af stað með landeldi á laxfiskum. Samtökin hverfast um það sam- eiginlega markmið að hámarka endurnýtingu alls sem til fellur við eldið í formi hliðarafurða á borð við fiskimykju. „Það er breið samstaða landeldis- félaga að baki þessum samtökum og við höfum þegar gert viljayfir- lýsingu við Bændasamtök Íslands um verkefnið og þau styðja það af heilum hug. Sem er náttúrulega bara frábært,“ segir Þorvaldur. Atvinnuskapandi verkefni Þorvaldur segir verkefnið atvinnu- skapandi en þó nokkrir vinna að ólíkum hliðum þess. „Svona verkefni felur í sér hönn- un og uppsetningu á alls konar búnaði. Við erum að miklu leyti að hanna sjálf en svo kaupum við líka alls konar íhluti og sértækar græjur alls staðar að úr heiminum. Þetta er virkilega atvinnuskapandi. Ef það verður að raunveruleika að hægt sé að safna saman mykju úr þessum stóru landeldisstöðvum sem eru að fara að byggjast upp á Íslandi næsta áratuginn og endurnýta í öðru formi, þá opnast möguleikar á því að skapa virðisauka úr eldinu til annarra greina og efla með því hringrásarhagkerfi Íslands. Þá er ég að tala um hringrás næringarefna í matvælaframleiðslu. Það er fram- tíðarsýn sem væri bara draumur og það er það sem við erum að rembast við að gera að veruleika,“ segir hann. Þorvaldur segir verkefnið einnig hafa möguleika til að stórminnka kolefnisspor og umhverfisáhrif frá fiskeldi. „Markmið okkar er að ná fram bestu mögulegu lendingu á því Styrkurinn skapar tækifæri Þorvaldur Arnarsson segir að styrkurinn hafi gert honum kleift að taka þátt í verk- efninu sem gæti komið til góða í fleiri atvinnu- greinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR hvernig hægt er að nýta þessi affallsefni úr laxeldinu. Fari það svo að okkur takist að búa til nyt- samlegan áburð, þá verður það gríðarlegur ávinningur fyrir sam- félagið allt, sér í lagi landbúnaðinn. Áburðarkostnaður er stór kostnað- arliður fyrir landbúnaðinn. Okkar draumur og von er að við getum komið að þessu með jákvæðum hætti. Að við getum hjálpað til.“ Metnaður til að gera vel Hlutverk Þorvaldar í verkefninu snýst aðallega um það að lágmarka umhverfisáhrif framleiðslunnar. „Núna erum við til dæmis að vinna að nokkrum verkefnum sem miða að því að fjarlægja óæskileg efni úr affallinu. Í þeim vinkli erum við að vinna með fallbyssunum í Atmonia en í öðrum anga erum við að vinna með sérfræðiteymi Matís, sem ætlar að sjá um að mæla og efnagreina öll næringarefni úr affallinu hjá okkur til þess að hægt sé að kortleggja ítarlega og með skilvirkum hætti hvernig best sé að nýta það,“ segir hann. „Við erum að leggja mjög mikla vinnu og mikinn metnað í að gera þetta sem allra best.“ Þorvaldur vill koma á framfæri öllu sínu hjartans þakklæti fyrir styrkveitinguna frá Rannís. „Styrkurinn gerði það mögulegt að ég gat komið að þessu verkefni og vonandi hefur mér tekist að leggja eitthvað örlítið jákvætt á vogarskálar þess. Fyrir utan það náttúrulega að ég fékk á endanum draumastarfið mitt á besta vinnu- stað í Evrópu, hjá Landeldi hf. Þessi styrkur myndar ákveðna brú á milli menntastofnana og fyrirtækja og skapar tækifæri fyrir það fólk sem eftir þeim sækist. Svo bara takk, takk kærlega.“ n Umsóknarfrestur er til kl. 15.00, 6. febrúar 2023 Auglýst eftir umsóknum í Nýsköpunarsjóð námsmanna Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu við rannsókna- og þróunarverkefni. l Styrkir eru veittir til rannsókna- og þróunarverkefna sem þykja líkleg til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja l Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein l Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna l Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna l Úthlutun mun liggja fyrir í lok mars 2023 Hverjir geta sótt um? l Háskólanemar í grunn- og meistaranámi l Sérfræðingar innan háskóla, stofnana og fyrirtækja sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir Sótt er um rafrænt á rannis.is. Nánari á www.rannis.is 7FIMMTUDAGUR 8. desember 2022 NSN 30 ÁR A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.