Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 8
Þessar heimsóknir eru til þess fallnar að skapa spurningar meðal skólabarna, af hverju sumir mæti ekki í kirkju á aðventu. Jóhann Hjalti Þorsteinsson, fulltrúi Austur- listans Þá virðist það vera að færast í aukana að fyrirtæki telja sig ekki þurfa að verðmerkja á staðnum. Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnisstjóri verðlagseftirlits hjá ASÍ Íslenskir neytendur kvarta yfir því í auknum mæli að íslensk fyrirtæki fari eftir eigin reglum hvað varðar verðmerkingar á vörum. Neytendur benda einnig á misræmi upprunalegs verð- lags á tilboðsdögum og eru dæmi um að fyrirtæki birti ekki vöruverð yfir höfuð. helgisteinar@frettabladid.is NEYTENDUR Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnisstjóri verðlagseftirlits hjá ASÍ, segir það algengt í verðlagseftir- liti sambandsins að verðmerkingum í verslunum séu víða ábótavant og að ASÍ hafi fengið mikið af ábend- ingum frá fólki í samfélaginu sem kvarti undan misvísandi verðum. „Það er allt of algengt að verð- merkingar vanti á vörur og þjón- ustu. Þá virðist það vera að færast í aukana að fyrirtæki telja sig ekki þurfa að verðmerkja á staðnum heldur vísa í verð á vefsíðu fyrir- tækisins þannig að neytandinn þarf að leita sér verðupplýsinga á netinu fyrir vöru eða þjónustu í verslun sem er auðvitað ekki í lagi,“ segir Auður. Ábendingar frá viðskiptavinum Nettó hafa til að mynda borist um að bækur sem seldar eru í matvöru- versluninni séu ekki verðmerktar. Viðskiptavinum sé einfaldlega bent á að skanna QR-kóða í gegnum síma sinn sem fer með þá á vefsíðu þar sem verðin eru svo sýnileg. Samkvæmt 17. grein laga um við- skiptahætti og markaðssetningu er fyrirtækjum skylt að merkja vörur sínar og þjónustu með verði eða sýna það á svo áberandi hátt á sölu- staðnum að auðvelt sé fyrir neyt- endur að sjá það. Auður segir það vera grund- vallarréttur neytenda að vörur og þjónusta séu verðmerktar skýrt og skilmerkilega á þeim stað sem varan eða þjónustan er. „Neytendur eiga ekki að þurfa að Grafið undan verðvitund neytenda Verðlagseftirlit ASÍ segir skort á verðmerkingum slæva verðvitund neytenda og grafa undan samkeppni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR leggja í einhverja vinnu við að afla sér verðupplýsinga á netinu. Verð- merkingar eru stórt hagsmunamál fyrir neytendur en skortur á verð- merkingum slævir bæði verðvitund neytenda og grefur undan sam- keppni,“ segir Auður. Kvartanir viðskiptavina hafa verið áberandi á Facebook-síðunni Vertu á verði þar sem neytendur benda á vafasama viðskiptahætti. Einn notandi bendir á sófa sem var til sölu í Húsgagnahöllinni fyrir tæpar 350 þúsund krónur í byrjun nóvember. Upprunaverð sófans hafði svo hækkað um 50 þúsund krónur þegar Black Friday tilboðs- vika fyrirtækisins fór í gang. Var sófinn þá til sölu á tilboðsverðinu 319.992 krónur. Egill Fannar Reynisson, eigandi Húsgagnahallarinnar, segir í sam- tali við Fréttablaðið að um mannleg mistök sé að ræða. „Sófinn kemur inn og er í nokkra daga í búðinni áður en hann er birtur á vefnum hjá okkur. Það átti eftir að fara yfir verðlagninguna á sófanum og hann var bara vitlaust verðlagður,“ segir Egill og bætir við að sófinn hafi aldrei verið seldur á 349.990 krónur en skyldi einhver hafa viljað kaupa hann á því verði fyrir verðbreytingu hefði það staðið til boða. Matthildur Sveinsdóttir hjá Neytendastofu segir að ný reglu- gerð í tengslum við þessi málefni verði bráðum innleidd á Íslandi. „Evrópusambandið er búið að sam- þykkja nýja tilskipun um reglur varðandi verðlækkun. Samkvæmt þeim reglum þá þarf hærra verðið sem strikað er yfir á tilboðsdögum að vera lægsta verð sem varan hefur verið seld á á seinasta 30 daga tíma- bili.“ n kristinnpall@frettabladid.is MÚLAÞING Fjölskylduráð Múlaþings var klofið þegar kom að tillögu Jóhanns Hjalta Þorsteinssonar um að endurskoða heimsóknir á vegum skólastofnana Múlaþings í trúfélög og heimsóknir skólabarna. Fjöl- skylduráð fól fræðslustjóra að vinna reglur um samskipti skólastofnana Múlaþings og trúfélaga. „Þessar heimsóknir eru til þess fallnar að skapa spurningar meðal skólabarna, af hverju sumir mæti ekki í kirkju á aðventu. Mér finnst því tilvalið að skólarnir standi ekki að þessu heldur foreldrarnir. Með því færirðu um leið ábyrgðina á trúarlegu uppeldi í hendur for- eldranna í stað skólanna og sveit- arfélaganna,“ segir Jóhann Hjalti, aðspurður hvað liggur að baki bókuninni. „Þetta er tilraun til þess að koma í veg fyrir að barn lendi utanveltu í bekkjarsamfélögum. Þótt for- eldrarnir ráði hvort börnin fari með bekkjarfélögum sínum eða ekki þegar farið er í slíkar heim- sóknir, þá er alltaf möguleiki á að það kvikni spurningar hjá sam- nemendum um af hverju einhver aðili fór ekki í kirkju,“ segir Jóhann og heldur áfram: „Trúarbragðafræði getur vel farið fram inni í kennslustofu og ég treysti kennurum vel til þess. Ég tel óþarft að setja þetta í hendur full- trúa trúarfélaga sem eru misjafnir eins og þeir eru margir.“ Hann bendir á að hlutfall þeirra sem eru skráðir í þjóðkirkjuna í sveitarfélaginu sé lægra en lands- meðaltalið. „Hlutfall íbúa Múlaþings sem eru í þjóðkirkjunni er lægra en lands- meðaltal. Það eru stórir hópar hérna af kaþólskum uppruna og þá er skrýtið að senda þau í lútherska kirkju. Svo er líka stór hópur sem er utan trúfélags.“ Hann segir að það hafi ekki komið honum óvart að niðurstaðan væri klofin. „Þetta fór eins og ég átti von á. Þetta var í takti við f lokkslínurnar hérna í Múlaþingi,“ segir Jóhann. n Vill endurskoða skólaheimsóknir til trúfélaga aron@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR Sundkonan Thelma Björg Björnsdóttir og skíðakappinn Hilmar Snær Örvarsson voru í gær útnefnd íþróttakona og íþrótta- maður ársins 2022 af Íþróttasam- bandi fatlaðra við hátíðlega athöfn. Í f immt a sinn á ferl inu m hlýtur Thelma Björg nafnbótina íþróttakona ársins, næstoftast á eftir sundkonunni Kristínu Rós Hákonardóttur sem hlaut hana tólf sinnum. Hilmar Snær hlaut nafnbótina íþróttamaður ársins í annað sinn. Hilmar var fyrst kjörinn árið 2020 en hlýtur nú titilinn fyrir söguleg- an árangur á Heimsmeistaramót- inu í vetraríþróttum og á Vetrar Paralympics. n Thelma og Hilmar hlutu heiðurinn Sundkonan Thelma vann í fimmta sinn. Skíðamaðurinn Hilmar í annað. jonthor@frettabladid.is ÞÝSKALAND Rúmlega sjötugur prins, fyrrverandi yfirmaður úr hernum, dómari og fyrrverandi þingmaður eru í hópi 25 manna sem voru hand- teknir í Þýskalandi í gær grunaðir um að skipuleggja valdarán, til að mynda með vopnaðri árás á þýska þingið. Fram hefur komið að handtöku- aðgerðir lögreglunnar hafi verið umfangsmiklar. Talið er að þessar áætlanir hafi verið innblásnar af árásinni á Bandaríkjaþing í janúar í fyrra, sem og QAnon-samsæriskenning- unum. Þeir eiga að afneita tilvist Þýskalands eins og það er í dag og vilja meina að Þriðja ríkið eigi enn rétt á sér þrátt fyrir fall þess í síðari heimsstyrjöldinni 1945. Hópur- inn er einnig talinn hafa tengsl við f lokkinn AfD og andstæðinga Covid-bólusetninga. Innanríkisráðherra Þýskalands, Nancy Faeser, segir þennan hóp vera andstæðinga lýðræðisins, en tekur fram að það sé óljóst á þessu stigi málsins hversu langt áætlanirnar voru komnar og hvort einhverjar líkur hafi verið á því að þær myndu heppnast. Þó tók hún fram að brugðist yrði við málinu af fullum krafti. Heinrich þrettándi, leiðtogi hópsins, á ættir sínar að rekja til þýskra konungsfjölskyldna. Hann tjáði sig við þýska fjölmiðla í ágúst á þessu ári og þar sagðist hann vera „bitur gamall karl“ með „klikkaðar skoðanir byggðar á samsæriskenn- ingum“. Hann hafi snúið baki við fjölskyldu sinni, sem hafi að sama skapi snúið baki við honum. n Ætluðu að fremja valdarán í Þýskalandi 25 manns voru handteknir í að- gerðum þýsku lögreglunnar í gær. benediktarnar@frettabladid.is ÚKRAÍNA Volodymyr Zelenskyj, for- seti Úkraínu, hefur verið útnefndur sem manneskja ársins hjá banda- ríska tímaritinu Time. Zelenskyj, sem er 44 ára gamall, hefur nánast daglega verið í fjöl- miðlum um allan heim í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Í frétt Time segir að hugrekki Zelenskyjs sé smitandi og spili það stórt hlut verk í góðu gengi Úkraínu- manna gegn Rússum. Zelenskyj var áður fyrr leikari og grínisti. Hann tók við embætti for- seta Úkraínu árið 2019. n Zelenskyj maður ársins hjá TIME Það kom fáum á óvart að Volodymyr Zelenskyj yrði valinn maður ársins. jonthor@frettabladid.is ARGENTÍNA Dómstóll í Argentínu hefur dæmt varaforseta landsins, og fyrrverandi forseta, Cristinu Fern- andez de Kirchner, í sex ára fangelsi. Hún var sakfelld fyrir að koma vini sínum í opinber störf. Ólíklegt þykir að hin 69 ára gamla de Kirchner muni afplána dóminn. Annars vegar vegna þess að búist er við því að hún muni áfrýja. Hins vegar mun staða hennar sem vara- forseti veita henni vernd gegn fang- elsisvistinni. n Varaforseti fær sex ára fangelsi 8 Fréttir 8. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.